Vikan - 27.07.1972, Page 43
SHIRLEY TEMPLE
Framhald af bls. 19.
Það er oft spurt að því hvort
Shirley Temple hafi verið ham-
ingjusamt barn, í mótsetningu
við, til dæmis, Judy Garland,
sem lýsir æsku sinni sem hrein-
asta víti.
Shirley heldur því fram að
hún hafi verið mjög glöð og
hamingjusöm, þrátt fyrir að
það hafi verið þreytandi að
hafa alltaf vopnaðan lífvörð á
hælunum. (Það var oft reynt
að ræna henni). En hana hryll-
ir uppi, þegar hún minnist á
öll þau tilboð sem hún fékk á
unglingsárunum „þegar vissir
framkvæmdastjórar komu með
skammarleg tilboð“ í skiptum
fyrir góð hlutverk.
Shirley var aðeins sautján
ára, þegar hún giftist í fyrra
sinn, leikaranum John Agar.
Þau urðu fljótt þreytt hvort á
öðru og skildu eftir þrjú ár. Þá
höfðu þau eignast eina dóttur,
Susan, sem nú er orðin tuttugu
og fimm ára.
Shirley Temple fór þá til Ha-
waii, til að finna sjálfa sig.
Það gerði hún og þessutan hitti
hún milljónamæringinn Char-
les Black. Þau hafa nú verið
gift í tuttugu og eitt ár og eiga
tvö börn, soninn Charles, sem
er tvítugur og dótturina Lori,
sem er átján ára.
Þau hjónin eiga glæsilegt
einbýlishús við San Francisco-
flóann. Þar voru oft teknar
myndir af henni sem glæsilegri
húsmóður, áður en hún fór út
í stjórnmálin. En nú, þegar hún
tekur þátt í kosningarbaráttum,
lætur hún venjulega taka af
sér myndir við eldavélina, til
birtingar í blöðum og sjón-
varpi. Hún hefir reyndar nóg
af þjónustufólki, sem sér um
hússtörfin fyrir hana.
Shirley Temple er fyrir
löngu hætt að leika í kvik-
myndum, en samt vekur hún
mikla athygli í Bandaríkjunum
og hún hefir ekkert á móti
heiðursútnefningum og opin-
berum störfum, ef þau eru sið-
ferðilega uppbyggileg að henn-
ar mati.
Smám saman fór henni að
þykja of þröngt um sig í Kali-
forníu og hugsaði sér að ná
frama í Washington. Hún bauð
sig því fram til þings í fulltrúa-
deildina (hún er Republikani),
en hún féll í kosningunum.
Kosningaundirbúningur henn-
ar var í veikasta lagi, jafnvel í
fylki þar sem Ronald Reagan,
fyrrverandi kvikmyndastjarna,
var fylkisstjóri og þrátt fyrir
Normandi notar ekki lengur lampa í sjónvarpstæki.
Nú eru það transitorar.
r/(f I t;
spectra
electronic
Það þarf talsvert til að standa
fremst á þýzkum sjónvarps-
markaði.
Tæknileg fullkomnun, glæsi-
bragur og úrval ólíkra gerða
segja sitt.
Nordmende þýðir að njóta þess
bezta.
Óskirnar fá menn uppfylltar þar
sem úrvalið er mest.
Klapparstíg 26, sími 19800, Rvk. og
N Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630.
30. TBL. VIKAN 43