Vikan - 27.07.1972, Blaðsíða 49
Hermenn í vestur-þýzka hernum hafa ekki
Aðstoðarforinginn Andreas Schonhardt er dálítið raunalegur yfir hár-
missinum, en svolítil huggun er þó að fá hárið heim með sér og geta
síður en aSrir mikið dálæti á síðu s,rokið f>ví viS °svia
hári og hafa verið stoltir af lokkunum. En þá
kom hljóð úr horni...
Þessir bera sig hetjulega eftir aðgerðir hárskerans, en hvort þeir verða
betri eða verri hermenn á eftir, verður ósvarað.
Og nú á friðartímum var
friðurinn skyndilega úti:
Þetta kvað við meðal
hermanna í vestur-þýzka
hernum og ástæðan var
hernaðarlega mikilvæg skipun:
Hún gekk út yfir hárið. Hár-
lubbi þeirra var orðin svo fyr-
irferðarmikill að hann komst
ekki fyrir undir stálhjálmun-
um og það var aðeins hægt að
halda hárinu frá augunum með
hárnetum, sem komust í tizku
meðal hermannanna, til mik-
illar ánægju fyrir framleiðend-
ur. En þegar hermönnum var
skipað að skera hár sitt, héldu
hermennirnir ráðstefnu í her-
búðunum, meðan hárskerar
nudduðu saman lófunum af
ánægju og í von um góða ver-
tíð. Hinir einkennisklæddu
borgarar vildu halda því fram
að þeir einir hefðu ráðstöfunar
rétt yfir hári sínu. ekki ríkið!
„Þetta er svínarí". — „Kær-
astan mín lítur ekki við mér“!
„Konan mín skilur við mig“!
—■ Þannig hljómuðu athuga-
semdir þeirra. En ekki þýðir
að deila við dómarann og lokk-
arnir féllu. Margir fengu tár í
augun, þegar þeir litu í spegil
eftir að hárskerinn hafði farið
óblíðum höndum um höfuð
þeirra. Sumir tóku þessu hetju-
lega. Til þess að enginn mis-
skilningur kæmi upp milli her-
mannanna og heitmeyja þeirra
og eiginkvenna, var gefin út
opinber yfirlýsing um að sam-
kvæmt tilskipun frá yfirstjórn
hersins, 14. maí 1972, réðu her-
mennirnir ekki yfir sídd hárs-
ins.
Margar skopsögur urðu til út
af þessum atburðum og marg-
ar myndir teknar, bæði fyrir
og eftir „rúningu". Sumir
gengu svo langt að láta krúnu-
raka sig í mótmælaskyni.
Flestir tóku þessu samt með
góðu og skemmtu sér vel yfir
því að „German Hair-Force“
væri nú aftur orðið „German
Air-Force“ ...
30. TBL. VIKAN 49