Vikan


Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 45

Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 45
21. MARZ- 20. APRÍL. Reyndu að leysa vandamál þín upp á eigin spýtur, án þess að blanda öðrum inn í þau. Auðvitað er hverjum manni nauð- synlegt að létta á hjarta sínu. En þú ger- ir of mikið af því. Þú hugsar of mikið um ytra borð hlutanna. Þótt þú eignist vin, þá er ekki þar með sagt, að þú þurfir að bjóða honum strax heim til þín í mat. Reyndu að stofna til einlægrar vináttu, án nokkurrar sýndarmennsku. Þér tekst í vikunni að vinna verk þannig, að það vekur athygli. Þú skalt reyna að njóta góðs af því og færa þér í nyt tækifæri sem bjóðast. Þótt gaman sé að fá hrós fyrir iðni, skaltu gæta hófs. KRABBA- MERKIÐ 22. JÚNÍ— 23. JÚLÍ Þú neyðist til að hlaupa undir bagga með manneskju, sem er þér mjög nákomin. Minnztu þess, að ef til vill getur þú líka þurft á aðstoð að halda ein- hvern tíma. Mótlæti á vinnustað veldur þér leiðindum. LJÓNS- MERKIÐ 24. JÚLÍ— 24. ÁGÚSl MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST— 23. SEPT. ð Þú kynnist skyndilega nýrri hlið á þeirri per- sónu, sem þú hefur hingað til metið mest. Þetta veldur þér mikl- um vonbrigðum. Vertu ekki of stoltur til að viðurkenna, að þessi óvænta uppgötvun breytir miklu. Þolinmæði og þraut- seigja eru vissulega gamlar og góðar dyggðir, sem hafa ber í heiðri. En þú skalt varast að ganga of langt. Of mikil þolin- mæði getur haft alvarlegar afleiðingar. VOGAR MERKIÐ Þú nýtur venju fremur mikillar umhyggju og vináttu um þessar mundir, og í skjóli þess muntu lifa marg- ar ánægjustundir. Gamall vinur biður þig að gera sér greiða og skaltu reyna að verða við ósk hans. STEIN- GEITAR- MERKIB 22. DES.— 20. JAN. Þú hefur ástæðu til að vera bjartsýnn og ánægður um þessar mundir. Þú tefldir á tæpasta vað fyrir nokkru, en hamingjan hefur verið þér hlið- holl og áhættan var sannarlega þess virði að taka hana. DREKA- MERKIB 24. OKT.- 22. NÓV. Þú hefur löngum trú- að því, að draumar þínir rætist, ef þú sért bara nógu viljasterkur. Þú munt sjá þess nokkur merki í vikunni að langþráður draum- ur ætlar að verða að veruleika. BOGMANNS- MERKIÐ 23. NÓV.- 21. DES. Taktu ekki of nærri þér, þótt þú hafir ekki sömu skoðun á öllum málum og elsk- hugi þinn. Þótt ykkur greini á um margt, þá eigið þið nógu margt sameiginlegt til að samband ykkar geti orðið varanlegt. VATNSBERA MKRKID 21. JAN.— 1». FBB. Þetta verður hagstæð vika að öðru leyti en því, að þú munt eiga við peningavandræði að stríða og rætist ekki úr þeim, fyrr en einhvern tíma síðar. Helgin verður sérstak- lega ánægjuleg. FISKA- MERKIB M. FBB.— 20. MARZ Þú hefur náð takmarki þínu með því að fara ýmsar krókaleiðir. Sumir hafa snúizt gegn þér, en það stafar mest af öfund. Þú hefur ekki sýnt neinum óheiðarleika og skalt því ekki hafa neitt samvizkubit. Við bjóðum yður velkomin á Aðalskrifstofu ökkar í Ármúla 3. Starfsfólkið þar er reiðubúið til að ganga frá nauð- synlegum tryggingum fyrir yður og gera. áætlun um heildartryggingaþörf yðar persónulega eða fyrirtækis yðar. Skoðunarmenn tjóna eru sérmenntaðir á sínu sviði og leggja kapp á að hraða uppgjöri hvers konar tjóna og láta sanngirni ráða við ákvörðun tjónbóta. Eftirlitsmenn á sviði eldvarna og tjónavarna veita yður leiðbeiningar um varnir gegn slysum á vinnustöðum og eidsvoða hjá atvinnufyrirtækjum. Við erum reiðubúin að leysá hvers konar vandamát yðar á sviði trygginga, tjóna og tjónavarna. Þér eruð velkomin í Ármúla 3. S\M\ 33509 SAMVirsnNUTRYOGIINGAR 35. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.