Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 13
skemmti sér alveg prýðilega. Og
svo vildi ég fá upplýsingar frá
honum, nákvæmar upplýsingar
um hana, ýms atriði um vöxt
hennar, hrjóst, hörundsblæ og
fleira og fleira.”
,,Ég skil ekki, við hvað þú átt.”
,.Þú skilur bráðum. Þegar ég
hafði fengið að vita þetta allt, fór
ég til — hvernig á ég nú að koma
orðum að þvf? Ég fór til manns,
sem stundar viðskipti — þú veizt
— eins af þessum mönnum, sem
sjá um alls konar viðskipti og
brall — eins af þessum mönnum
— jæja. þú skilur, við hvað ég á.”
,,Ég hugsa, að ég fari nærri þvi.
Og hvað sagðirðu við hann?”
,,Ég sýndi honum myndina af
Clarisse — hún heitir Ctarisse —
og sagði honum, að ég þarfnaðist
herbergisþernu, sem liktist
þeirri, sem þessi mynd væri af.
Ég sagði, að hún þyrfti að vera
lagleg, snyrtileg og til i tuskið, og
ég skyldi borga henni hvaða
kaup, sem farið yrði fram á. Ég
sagði honum einnig, að ég þarfn-
aðist hennar ekki lengur en þrjá
mánuði.”
Maðurinn varð hissa og sagði:
,,Æskið þér þernu með óaðfinnan-
leg meðmæli? ” Ég stamaði og
sagði: ,,Já, auðvitað, hvað ráð-
vendni snertir.” Hann hélt
áfram: ,,En hvað kvenlega
dyggð snertir, frú?” Ég þorði
Framhald á bls. 34.
35. TBL. VIKAN 13