Vikan


Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 16

Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 16
MYRKRIÐ SKELLUR Á Þa5 haföi verið óvenjulega fagur dagur, siðla um haustið, svolitiö frost i lofti, tilvalinn dagur til að láta sér liöa vel viö arineld, draga tjöld fyrir glugg- ana og byrgja fyrir myrkrið. Þegar Janet ók heim frá Friarhamton, hugsaði hún að þaö ætlaöi hún einmitt að gera fyrir manninn sinn, taka vel á móti honum í björtu og vistlegu húsinu. ,,t siðasta lagi klukkan hálf , átta”, hafði Bill sagt, ,,og lestin vogar sér ekki aö vera of sein”. En þegar hún nálgaðist Belldale, hvolfdist myrkrið yfir dalinn og það dró svoiftiö úr ákafa hennar og eldmóði. Og þegar hún kom f sjónmál við Strangers Mills, fornlega byggingu frá átjándu öld, fannst henni húsiö skuggaiegt og síöur en svo aðiað- andi. Þokan skyggði á útsýnið til nágrannahúsanna og eitt andar- tak hvarflaði það að Janet aö snúa viö og bíða eftir Bill á brautarstöðinni. En hún vissi með sjálfri sér að það mátti hún ekki gera, Bill yrði svo vonsvik- inn yfir kjarkleysi hennar. Þótt þau hefðu þekkt hvort annað frá isarnæsku, skyldi hann ekki alltaf hvernig henni leiö. En henni var ljóst að það var vegna þess að hún hafði fengið styrk frá honum, að hún hafði ekki aiveg gefizt upp, það var hann sem hafði veitt henni það öryggi, sem hún þurfti. Hún hafði ifka haldiö sjálf að hún væri alveg búin að ná sér, það var aöeins nú, þegar hún sá húsið, að hún mundi svo glöggt eftir hinum hræöilegu atburðum og ofboðs- legur óttinn náði tökum á henni. Skyldi hún nokkurn tíma losna viö þennan ótta? — Það hlýtur að takast, sagði Bill alltaf, þegar hún talaöi um þessar hugsanir sinar. — Þú ert að komast yfir þetta. Og þegar maöur talar um allar aðstæður, þá er það mesta furða hve vel þér hefir tekizt að gleyma. yndur. Það var Bill sem var mesta undrið. An hans hefði hún ekki getað hugsað sér aö Jifa. Svo brosti hún með sjálfri sér og hræðslan hvarf. Klukkan var rétt um sex, það var of snemmt að kveikja eld og undirbúa matinn. Hún hugsaði með sér að liklega hefði Rósa, húshjálpin, gleymt að taka inn brenni, áður en hún fór i helgarfrf. Þaö var sennilegast. Jæja, það gerði ekkert til, hún gæti séð um það sjáif. Þaö yrði dásamlegt aö hafa Bill Framhald á bls. 23 Fyrri hluti. Mary Kay Simmons. Spennandi saga i tveim hlutum. Fyrir fjórum árum hafði hún farið að heiman, frá gamla húsinu, þar sem hún hafði látið sig dreyma um hamingjusamt lif i sambúð við Stepen. Hún hafði aldrei séð Stephen, eftir það sem hafði skeð. Hún var eiginkona annars manns núna og hans vegna hafði komið aftur. Til að sýna að það sem á undan var gengið, hefði ekki lengur vald yfir henni.... 16 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.