Vikan


Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 26

Vikan - 31.08.1972, Blaðsíða 26
ÞÝZKIR OLYMPÍULEIK/* Á Olympiuleikunum i Munchen, sem nú eru nýbyrjaðir, er allur aðbúnaður fullkomnari en nokkurn tima áður. Ef til vill verða þetta glæsilegustu Olympiuleikar, sem haldnir hafa verið. ólympiuleikarnir 4. 1908- London 14. 1948-London Þris frá upphafi. 5. 1912 - Stokkhólmur 15. 1952 - Helsinki 6. le 7. 1920 - Antwerpen 16. 1956-Melbourne en 1. 1896 - Aþena 8. 1924 -Paris 17. 1960 -Róm 12. ( 2. 1900-Paris 9. 1928 - Amsterdam 18. 1964 - Tokyo en þ 3. 1904-St. Louis 10. 1932-Los Angeles 19. 1968-Mexico tóki 1906-Aþena 11. 1936-Berlin 20. 1972 - Munchen Und l>ar sem Olympiuleikvangurinn var reistur, var áður fiugvöllur. athygli. Hér er um að ræða stærsta þak i heimi. Margir voru vantrúaðir á, að takast mundi að reisa það. Hundruð arkitekta og verkfræðinga hafa unnið að smíði þess meira og minna frá þvi að ákveðið var, fyrir sex árum, að 20. ólympiuleikarnir skyldu lialdnir i Munchen. Sifelldar cfasemdir og háðsglósur juku að sjálfsögðu spennuna til muna, meðan á smiði þaksins stóð. En tæknin sigraði eins og fyrri daginn. Þakið er fyrir löngu komið upp og hefur þegar gefið góða raun. Þeir, sem að þvi stóðvt, hafa unnið afrek á sviði bvggingarlistar, sem lengi verður minnzt-. Leikmönnum finnst undri likast, að þetta risavaxna tjaldþak, sem er úr „acrylic”- gleri, skuli geta hvilt á aðeins tólf stálstöplum. Annað er eftir þessu. Sumir vilja nefna þessa Ólympiuleika tölvu-leikana”, þvi að auðvitað cru tölvur nú notaðar meira en nokkurn tima áður. Og aðstaða fyrir fjölmiðla er sögð með af- brigðumgóð. Reiknað er með, að um þriðjungur jarðarbúa geti fylgzt með leikunum i sjónvarpi á sömu stundu og þeir gerast, og stór hluti þeirra i lit-sjónvarpi. Allt tilstandið i kringum þessa Ólympiuleika og það mikla fé, sem eytt er i undirbúning þeirra, hefur ekki hlotið náð fyrir augum allra Þjóðverja. Þegar hafa þúsundir manna látið i ljós andúð sina og óánægju, og forráðamenn leikanna óttast, að mótmælendur fari aftur á kreik, þegar leikarnir eru hafnir. „Byggið heldur skóla handa börnunum okkar!” stóð á skilti eins mótmælanda. Og hjá öðrum stóð: „Við þurfum ekki stærsta þak I heimi, heldur aðeins þak yfir höfuðið!”. Borgarstjórinn I Munchen, dr. Hans-Tochen Vogel, hefur barizt fyrir þvi árum saman, áð Ólympiuleikarnir yrðu haldir I borginni hans. Hann er ekki i nokkrum vafa um, að leikarnir muni verða Vestur-Þýzkalandi mikil lyftistöng og flýta fyrir vexti og viðgangi Munchen- borgar um fimmtán ár. Hefur hann þar sérstaklega i huga hið Byggingarframkvæmdir eru hafnar og undirbúningurinn i fullum gangi. i Þegar 8. Ólympiuleikarnir voru haldnir i Paris árið 1924, vakti það mikla athygli, að reistir höfðu verið um fimmtiu litlir skálar i námunda við leikvanginn handa þátttakencfum aðbúa i. Þetta var fyrsti visirinn að byggingar- framkvæmdum i tilefni af Ólympiuleikum, sem siðan hafa farið ört vaxandi. Má segja, að nýtt met hafi verið sett i þessum efnum með hverjum nýjum leikum. Á ólympiuleikunum i Munchen, sem nú eru nýlega hafnir, hefur þetta met verið slegið enn einu sinni og það rækilega. Allur aðbúnaður er sagður stórkostlegri og fullkomnari en nokkru sinni fyrr. Kostnaðurinn er kominn yfir tvo milljarða marka, eða hvorki meira né minna en rúmlega fimmtiu milljarða islenzkra króna. Af einstökum byggingar- framkvæmdum vekur þakið yfir áhorfendasvæðinu langmesta 26 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.