Vikan - 01.02.1973, Síða 6
MIG DREYMDI
BLOKKIN BRENNUR
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir nokkru.
Mér fannst húsið, sem ég á heima í, vera að brenna (það
er blokk). Ég hljóp sífellt út og inn eins og ég væri að
reyna að bjarga hlutum. Sumu fleygði ég út um glugga,
þar á meðal strigapoka, sem í voru þrjú lömb nýfædd. Mér
fannst pokinn lenda hjá læk, sem rann bak við húsið. Ég
fór hann að leita að pokanum og fann hann, en þá voru ekki
lengur lömb í honum, heldur þrír kettlingar. Þeir voru
allir kafnaðir. Ég reyndi að bjarga þeim með því að blása
upp í þá. Gekk mjög auðveldlega að koma lífi í fyrstu tvo
kettlingana, en erfiðlega með þann þriðja. Ég var farin að
örvænta, þegar það loksins tókst. Þá kemur frændi minn
til mín og fer að dást að þeim (hann er við nám í Kaup-
mannahöfn, og hef ég því lítið samneyti við hann, og auk
þess er hann tíu árum eldri en ég). Ég sagði við hann, að
þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þetta kæmi fyrir, en þá
hafi þeir allir dáið, enda hefðu þeir verið miklu minni og
eldri.
Við það vaknaði ég. v
Mig hefur áður dreymt að húsið sé að brenna, og ég sé
að reyna að bjarga öllu. Þá kom líka köttur til sögunnar.
Vinkonu mína er alltaf að dreyma mig innan um skran
og rusl í gömlu húsi. Henni finnst ég vera alveg ósjálf-
bjarga og að hún sé að reyna að bjarga mér, en takist það
aldrei.
Hvað táknar að hlæja í svefni? En að stela peningum?
(í draumnum voru það 2300 kr., sem ég og vinkona mín
tókum úr gömlu húsi niður við sjó, og skiptum jafnt á
milli okkar).
Vonast eftir ráðningu sem fyrst. B.
Þessi draumur táknar að öllum líkindum reiði eða öllu
frekar hættu, sem þér tekst naumlega að afstýra. Einhver
maður, sem þú hefur ekki áður haft mikið samneyti við,
kemur þar við sögu. Það er talið vera fyrir gremju og skap-
raun að heyra eða sjá hlátur í draumi. Aftur á móti er það
fyrir góðu að dreyma að maður sé að stela — einkum ef
upp kemst.
HVITT OG SVART
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum.
Hann er svona:
Mér fannst bróðir vinkonu minnar vera að aka bíl. Á
leiðinni mætir hann tveimur manneskjum eða verum.
Önnur var í hvítum klæðum, ung stúlka, en hin var í
svörtum klæðum, sem líktust nunnuklæðum. Svarta veran
var móðir hvítu verunnar. Það var mjög dimmt úti, svo
að hann ók yfir svörtu veruna, þar sem hann sá ekki nema
hvítu veruna. Sú hvíta reiddist að sjálfsögðu geysilega. En
seinna fannst mér hún giftast honum. Þau urðu mjög ham-
ingjusöm.
Seinna fannst mér líka systur mínar tvær, sem eru eldri
en ég, vera á leið til vinnu sinnar. Þær voru báðar svart-
klæddar. Ég bað þá yngri að fara í hvita frakkann minn
og lét þá eldri hafa endurskinsmerki, svo að þær yrðu ekki
fyrir bíl á leiðinni. Það var mikið myrkur úti, en samt var
þetta að morgni dags.
Lengri varð draumurinn ekki.
Með fyrirfram þökk.
Bróður vinkonu þinnar mun verða hált á vegi gleðinn-
ar og léttlyndisins. Hann mun eiga vingott við tvær konur
samtímis og lenda í þeirri erfiðu aðstöðu að þurfa aff velja
affra en hafna hinni. Þetta tekst þolanlega, en hefur þó
óþægindi og sársauka í för meff sér. Þú munt óttast, aff
systur þínar lendi í svipaffri aðstöðu, vegna glaffværffar
þeirra og ásóknar í skemmtanir. Þú gerir þitt bezta til aff
reyna að forffa þeim frá óþægindum í ástamálunum.
ÞRIÐJA AUGAÐ
Kæra Vika!
Mig dreymdi, að ég væri að snyrta mig til. Þá tek ég
allt í einu eftir því, að á milli augnanna er rauðleitur
blettur. Eftir dálitla stund stækkar hann og verður að
eins konar þykkildi. Loks opnast það, og ég sé móta fyrir
auga. Fyrr en varir er komið þarna stórt auga. Við það
hangir Ijós taug, óg það lafir niður á móts við nefið.
Ég fæ mér baðmull og reyni að halda undir nýja augað.
Mér fannst þetta svo mikil ógæfa, sem hafði dunið yfir
mig, að það setti að mér óstöðvandi grát.
Óska eftir svari sem fyrst. Með fyrirfram þakklæti.
Ástrós.
Þetta er sannarlega sérstæður draumur og einkennileg-
ur. Það er nokkuff algengt, aff fólk dreymi, aff þaff missi
annaff augað effa bæffi, og er þaff slæmur fyrirboffi. Þess
vegna álitum viff, aff draumur þinn sé fyrir góðu. Líklega
opnast augu þín fyrir einhverju, sem áffur var þér hulið.
Og þessi uppgötvun verffur þér til mikillar gleffi, því aff
grátur boffar fögnuff.
KONAN I GARÐINUM
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum. Hann
er svona:
Mér fannst ég fara með mömmu til einhverrar konu, sem
hún þekkti. Hún sat úti í garði, og við mamma fórum
þangað til hennar. Þá segir konan:
— Þú ert alltaf að stækka.
En ég er ekki stór eftir aldri.
f sama bili vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk. Guðrún.
Garður táknar bjarta framtíff. Og hvort sem þú átt eftir
að verða hávaxin eða lávaxin, þá er eitt víst: Þér mun tak-
ast að vinna afrek, sem gera það aff verkum, aff stærff þín
skiptir engu máli.
SVAR TIL NN:
Þaff er engin ástæffa til aff óttast þennan draum. Hann
er aff vísu ógnvekjandi í fljótu bragffi, en viff nánari íhug-
un er hann alls ekki sem verstur. Þú munt þurfa aff ganga
í gegnum nokkra erfiffleika, en þeir opna augu þín fyrir
nýjum andlegum verffmætum, svo að erfiðleikarnir mega
teljast áfangastaður á leið þinni til hamingjusamara lífs.
Ein úr Eyjum.