Vikan - 01.02.1973, Blaðsíða 7
SÍÐAN SÍÐAST
AUÐUR SKAPAR EKKI
ALLTAF EININGU
Það á líklega við þegar talað er um
Paul Getty og fjölskyldu hans. Getty
er, eins og kunnugt er, álitin ríkasti
maður í heimi, enda hafði hann grætt
Mna fyrstu dollaramilljón, þegar hann
var tuttugu og þriggja ára. Fyrirtæki
hans í 82 löndum gefa honum daglega
um það bil 450 milljónir króna, svo
maður gæti haldið að hann gæti keypt
allt. En svo er ekki, það virðist ekki
vera auðvelt að kaupa gæfuna. Hann
hefur verið fimm sinnum kvæntur og
fimm sinnum hafa konur hans skilið
við hann. Hann hefur líka eignazt
fimm syni, en nýlega átti hann átt-
ræðisafmæli og þá kom aðeins einn
sonur hans, sá yngsti, til veizlunnar.
Hinir þrír (einn er látinn) sendu
gamla manninum ekki einu sinni
skeyti. Á myndinni er yngsti sonur-
inn, Gordon Getty með konu sinni í af-
mælishófinu, sem haldið var á Dor-
chester hótelinu í London.
Charles og Ulla hugguSu hvort anna'ð
eftir að hún hafSi misst fóstriS.
ULLA MISSTI FÖSTUR
Franski vísnasöngvarinn frægi, Charl-
es Aznavour, hélt nýlega söngskemmt-
un í Ólympíusalnum í París og hlaut
mjög góðar undirtektir að vanda. Engu
að síður, þegar söngvarinn var kom-
inn á bak við tjöldin á eftir, brast
hann í grát og bar sig hið hörmuleg-
asta. Eiginkona hans, sænsk ljóska að
nafni Ulla, var þar nærstödd til að
hugga hann, en ástæðan til grátsins
var sú, að hún hafði þá nýskeð misst
fóstur.
Þau hafa þegar eignazt tvö börn,
stúlku sem nú er þriggja ára og eins
árs dreng. En Charles vildi helzt eign-
ast þriðja barnið. Hann er nú fjöru-
tíu og átta ára og segist ekki vilja
komast meir til aldurs, áður en meira
fjölgar í fjölskyldunni, þar eð óheppi-
legt sé að börnin alist upp með mjög
rosknum föður.
VARASÖFI
Árið 1938 gerði Salvador Dali mál-
verk, sem var nákvæm eftirlíking var-
anna á Mae West, sem var einhver
frægasta manneskja fyrsta skeiðs kvik-
myndanna. Nú eru til sölu í Ítalíu og
Englandi sófar úr rauðu frauðplasti,
sem eru nákvæm eftirlíking listaverks-
ins. Á neðri myndinni er eitt slíkt
húsgagn, en á þeirri efri er konan sem
lagði listamanninum til fyrirmyndina
og innblásturinn, eins og hún leit út
þegar hún var upp á sitt bezta. Mae
West er raunar enn á lífi, áttræð að
aldri en furðu ern. Hún býr í Kali-
forníu.
RITA CADILLAC
Rita Cadillac er þrítug fyrirsæta og
fatafella. Eftir tólf ára starf, nú síðast
í „Crazy Horse Saloon“ í París, hitti
hún um jólin ríkan verksmiðjueig-
anda frá Briissel, sem hún ætlar að
giftast. En þar sem henni eru boðin
góð laun, ætlar hún að koma við í
Bergen aan Zee í Hollandi og þá er
sennilegt að hún sýni sig í þessum bún-
ingi, sem sýnir botnlausu tízkuna á
mjög áhrifaríkan hátt.
SA A KVÖLINA
SEM A VÖLINA
Þær eru ekki fáar ungu stúlkurnar
sem bendlaðar eru við enska ríkiserf-
ingjann Prince Charles, ekki færri en
tólf eru það vel ættaðar að þær koma
vel til greina í-hásæti drottningar. En
hver verður sú sem hreppir hnossið,
það er hin mikla gáta. Ef hann sést
dansa við stúlku, þá er óðar farið að
rekja ættir hennar og athuga hvort
blóð hennar sé nógu blátt. — Hér á
myndinni sést hann með einni, sem
hann hefur oft sézt með upp á síð-
kastið. Hún heitir Lucia Santa Cruz
og er dóttir auðugs kaupsýslumanns.
Það er sagt að prinsinn sé mjög hrif-
inn og nýlega bauð hann henni um
helgi til Balmoral, sem er aðsetur
konungsfjölskyldunnar í Skotlandi. En
nú er aðeins eftir að vita hvort hún
finnur náð og viðurkenningu.