Vikan - 01.02.1973, Qupperneq 11
VÍSNAÞÁTTUR VIKUNNAR
FRAMUNDAN
ER
GATAN
GREIÐ
Áður en vikið skal að fyrripörtunum
tveimur um áramótin, skulu tilfærðar fá-
einar eftirlegukindur frá jólunum. Sá
fyrripartur virðist hafa falliö hagyrðum
vel í geð, ef dæma má eftir þeim fjölda
botna, sem borizt hafa við hann. En fyrri-
parturinn var þannig:
Skýrðist’land þá skyggja fer
,skjannahvitum feldi.
Ekkert riki af þvi ber
i öllu heimsins veldi.
Ágúst frá Urðarbakka.
Næðir þá um norðursker
nistings kuldaveldi.
Petrónius.
Jólastjarnan blessuð ber
hirti: i ijóssins veldi
Magnús Guðbrandsson,
Garðahreppi.
Þegar tunglið bjarta ber
birtu af sólareldi.
Óli.
Og þá er bezt að snúa sér að
áramótunum. Við birtum tvo fyrriparta
annan fyrir bjartsýnismenn og hinn fyrir
þá, sem bölsýnir eru. Margir botnuðu
báða, en þó voru þeir fleiri sem kusu að
yrkja um hinar björtu hliðar tilverunnar.
Arangurinn varð þó ekki eins góður og
siðast, hverju sem um er að kenna.
Botnarnir voru margir keimlikir, sumir
nánast alveg eins. „Gatan greið” eða
„bökin breið” virðast hafa komið i hug
flestra hagyröinganna. Ef til vill hafa
fyrripartarnir ekki boðið upp á nægilega
finlbrevtni bvað rim snertir Við treystum
okkur ekki að þessu sinni til að velja
nema butna, sem tramur skari, en birtum
nokkur sýnishorn af framleiðslunni hér á
eftir:
Blessað árið ljúfa leið,
Ifzt mér vel á þetta.
Ekkert fárið okkur sveið,
enn skal hugann létta.
Það er ekki nokkur*neyð,
ef náðarblómin spretta.
Bjartar vohir bæta i neyð
og blöðum lifsins fietta.
Oft var fjnr og gatan greið
og gjöfui lifsuppspretta.
Rikisstjórn með bökin breið
bæta vill og rétta
Finnur Baldursson,
Asvegi 20, Akureyri.
Afram verði gatan greið,
göngum veginn rétta.
Sólveig frá Niku.
Við sem höfum bökin breið
borgum minnsta skatta
Jóhannes Laxdal.
Menntask. Isafirði
Öjlum verður gatan greið,
sem ganga veginn rétta
Ingigerður Einarsdóttir,
Tálknafirði.
Nú er öllum gatan greið
að ganga veginn rétta.
Mundi Jör.
Y1 og sKugga enn um skeið
örlög sai; in flétta.
t litlum dal á lágum meið
lifsins blómin spretta.
Páll E. Jóhannsson, Tálknafiröi.
Eiga munum eftir skeið
i allsnægtir að detta.
Reykur Logason, Hlóðum.
Framundan er gatan greið,
gætum ei að detta.
Lafðin fyrir Lúlla skreið,
lá þó við að detta
BirgirLaxdal, Stýrimannask.
Vestmannaeyjum.
Rikisstjórnar bökin breið
brátt úr söðli detta.
Jón Sigfinnsson, Seyðisfirði.
Framundan er gatan greið,
göngum hana rétta.
Konni, Vestmannaeyjum.
Framundan er gatan greið
og gjöful hver uppspretta.
Ólafur R. Gunnarsson, Reykjavik.
Eflaust verður enga neyð
um áramót að frótta
Theodór Einarsson,
Akranesi.
Bölvað árið loksins leið.
lizt mér illa á þetta.
Gefin var oss gömul sneið,
þvi gengið fékk að detta.
Heimsbyggðina i heljarneyð
liotðnu; larnir pyiMl.i
Finnur Baldursson,
Ásvegi 20, Akureyri.
Látum aldrei svartan seyð
sjónir vorar bletta.
Sólveig frá Niku.
A braut sem sýnist góð og greið
„gæöingarmr'' detta.
N
Stjórn sem þreytir Skúlaskeið
skramhi oft vill detta.
Jóhannes Laxdal,
Menntask. Isafirði.
Landsmenn þurfa lengra skeið
til losta, svika og pretta.
Reykur Logason, Hlóðum.
Hundahaldi og hungursneyð
heizt var af að frétta.
Birgir Laxdal, Stýrimannask.
Vestmannaey jum.
Máske bæta myndi úr neyð
meira skyri að sletta.
Sig. Magnússin, Hafnarfirði.
Rikisstjórnin gerðist gleið,
gengið fékk að detta.
Konni, Vestmannaeyjum.
Förum allir fjandans skeið,
finn ég okkur detta.
Óskar.
Nú er allt á niðurleið
og nærri við að detta.
Mundi Jör.
Margir hafa sent okkur sjálfstæðar
visur og íyrriparta og þökkum viö kær-
lega fyrir það. Jón Sigfinnsson frá Seyðis-
firði sendi okkur visu, þar sem hann lýsir
áhyggjum sinum af unga fólkinu. Við
birtum fyrripart visu hans og eftirlátum
svo öllum okkar mörgu og góðu hag-
yrðingum að botna hana:
l'ngar sálir okkar lands
eru á hálum brautum.