Vikan - 22.03.1973, Page 10
Adlai Stevenson var vinur minn, hann var alltaf göfuglyndur og örlátur.
— Sú söngUona í Ameríku, sem ég held mest upp á, er Billie Holyday.
Ronald Reagan fylkisstjóri og
Nancy kona hans. Hún er svo
elskulega amerísk, að hún vekur
hjó mér heimþró.
ég einbeitt huganum að því
sem ég sé og farið út þegar
mig lystir, án þess að þurfa að
ræða um myndina við ein-
hvern. Hvað mig snertir leiða
slíkar samræður alltaf til ósam-
lyndis eða óþæginda.
Sg vil helzt vinná á morgn-
ana og þá í fjóra til fimm
klukkutíma. Og ef ég er einn
í borginni, hvaða borg sem er,
þá borða ég venjulega hádeg-
isverð með einhverjum kunn-
ingja mínum á veitingahúsi,
sem ég kann vel við. Margir
halda því fram að maður eigi
ekki að borða hádegisverð, það
sé of fitandi, en hvað mig snert-
ir, þá líður mér bezt um há-
degið. Mér þykir gaman að
borða með einstaka karlmönn-
um, en tek samt fagrar konur
fram yfir þá.
Þótt ég sé álitinn mikill sam-
kvæmismaður, þá þykir mér
mjög gott að vera einsamall.
Éig hef líka mikið dálæti á
hraðskreiðum og glæsilegum
bílum og mér þykir gott að
gista á motelum. Stundum sezt
ég undir stýri og ek eitthvað
út í bláinn, stundum allt að
hundrað og fimmtíu milum.
Einu sinni fór ég til sálfræð-
ings, ég hefði betur farið í góða
ökuferð í opnum bílnum og
látið vind og sól leika um mig.
Hvað hræðist þú mest?
Að minnsta kosti ekki dauð-
ann. En mér finnst sársauki
óþægilegur. Ég er ekki hrædd-
ur við þá hugsun að sofna eitt-
hvert kvöldið, til að vakna ekki
aftur. Það væri að minnsta
kosti eitthvað nýtt. Árið 1966
lá við að ég léti lífið í bílslysi,
ég slengdist • gegnum framrúð-
una og slasaðist mikið og eig-
inlega viss um að dauðinn væri
í nánd, þá lá ég þarna í blóð-
polli með fulla meðvitund og
gaf upp símanúmer hjá mörg-
um vinum mínum. Síðan hef
ég líka gengið í gegnum krabba-
meinsaðgerð og það var sann-
arlega andstyggilegt; verst var
að bíða eftir úrskurði rann-
sóknarinnar, áður en aðgerðin
var gerð.
Mér finnst bæði andstyggi-
legt og heimskulegt hvernig
snyrtivöruiðnaðurinn byggir
alla sína afkomu á æskudýrk-
un og hræðslu við ellina og
dauðann. Fjandinn hafi það,
hver vill lifa til eilífðarnóns?
Það vilja sjálfsagt flestir, 'en
það er heimskulegt. Maður
getur stundum fengið sig full-
saddan á lífinu.
Fátækt? Fanny Brice segir:
..É7. hef verið rik og ég hef ver-
ið fátæk. Trúið mér, það er
miklu þægilegra að vera rík-
ur.“ En ég er ekki sammála
henni. Ég held ekki að pening-
arnir geri gæfumun, eða til að
orða það einfaldlega, held þeir
veiti ekki raunverulega ham-
ingju. Eg þekki margt mjög
ríkt fólk (þá á ég við fólk, sem
getur lagt fram fimmtíu millj-
ónir dollara á staðnum), en ég
man ekki til að neinn þeirra sé
nokkuð hamingjusamari en við
hin. Ég er sjálfur jafnsæll í
gömlum kofa í Detroit og í
glæsilegum skrautibúðum. Eg
hef aldrei þrætt fyrir að ég sé
snobb, ég held því bara fram
að ég sé ekki hræddur við fá-
tækt.
Mótlæti? Mótlætið er krydd
sem kryddar velgengnina. Sg
hef svo sem fengið nóga gagn-
rýni (sérstaklega í sambandi
við leikrit) og það er aðeins til
að yppa öxlum yfir. Ef satt skal
segia, bá snertir það mig ekki
hvað fólk segir um mig, hvorki
í tali né á prenti. Það var að
vísu ekki þannig, þegar ég var
yn?ri og var að gefa út fyrstu
bækur mínar. Að nokkru leyti
snertir betta mig ennþá, ef ein-
hver bregzt trúnaði mínum,
verð ég argur, en veniuleg
gagnrýni og ósigur, er jafnfjar-
lægt mér og fjöllin á tunglinu.
Nú eru rúm sex ár, síffan þú
skrifaffir „Meff köldu blóffi“,
hvaff hefur þú gert síffan?
Ég hef sent frá mér langa
skáldsögu, „The Thanksgiving
Visitor“. Svo hef ég unnið við
kvikmyndahandrit „Trilogy"
sem er byggt á þrem af sög-
um mínum („A Christmas Me-
mory“, „Miriam“ og „Among
the Paths to Eden“); ég hef
gert heimildarhandrit um
dauðarefsinguna, „Death Row
in U.S.A.“, sem ABC hefur
fengið, en hefur ekki verið
sýnd í Bandaríkjunum ennþá
(hún hefur verið sýnd annars
staðar, t. d. í Kanada), af
ástæðum, sem mér finnst dá-
lítið dularfullar. Ég hef nýlega
lokið við leikgerð af „Hinn
mikli Gatsby" eftir Scott Fitz-
gerald, sem er stutt skáldsaga
(m.ö.o. löng smásaga) hvað var
erfitt verk, vegna þess að sag-
an er byggð á endurminning-
um og atvikum, sem ekki koma
fram á sviðinu, ef svo má
Framhald á bls. 47.
10 VIKAN 12. TBL.