Vikan - 12.04.1973, Blaðsíða 34
Borgarráðsfundir eru haldnir á þriöjudögum og föstudögum. Þeir
standa einatt frá kl. :i og fram undir kvöldmat, og þá er mikiö kaffi
drukkiö, þó ekki megi þaö taka tima frá þeim máJum, sem fyrir liggja,
en þau eru oftast 20—30 talsins hverju sinni. Borgarráð skipa 5 kjörnir
fulltrúar, en auk þess eiga allir flokkar áheyrnarfulltrúa.
Borgarstjórnarfundir eru haldnir hálfsmánaðarlega 1. og 3.
fimmtudag hvers mánaðar. Konur taka vaxandi þátt i stjórn
borgarinnar, eins og á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Hér gegnir
Sigurlaug Bjarnadóttir, kennari, hlutverki fundarstjóra, en Adda Bára
Sigfúsdóttir, veðurfræðingur, er i ræðustól.
Birgir islcifur er mikið fyrir útilif, og öskjuhliöin er hans eftir-
lætisstaöur. Þennan dag var aldeilis færi til að fá sér salibunu, og litlu
tviburasysturnar notuðu sér það með aðstoðpabba og mömmu.
Litlu dömurnar, Lilja I)ögg og Ingunn Mjöll, láta sig hafa það að gretta
sig svolitið framan i Ijósmyndarann og láta sér i léttu rúmi liggja, þó
dætur borgarstjóra cigi auðvitað að vera fjarska penar.
, — Voruð þið Sonja skóla-
systkin?
— Nei, en við kynntumst, þegar
ég var i menntaskóla og giftum
okkur ung, hún var 18 ára og ég
tvitugur.
— Nú tekur þú við embætti á
svipuðum aldri og þinir fyrir-
rennarar, Bjarni, Gunnar og
Geir.
— Já, það vill nú svona til, að
viö höfum vist allir tekið við
þessu starfi á aldrinum 35-37 ára.
— Heldurðu, að ferill þinn verði
svipaður? Mundirðu vilja taka
þátt i stjórn landsins, þegar þú
hefur æft þig á Reykvfkingum?
— Það er alveg rétt, að þeir
hafa allir farið þessa leið. En ég
held við verðum að láta reynsluna
skera úr um feril minn. Ahugi á
stjórn landsmála hefur ekki
kviknað hjá mér ennþá, hvað sem
siðar kann að verða. Borgar-
stjórastarfið er það umfangs-
mikið og áhugavert á allan hátt,
að annað hefur ekki komizt að.
— Er þetta skemmtilegt starf?
— Já. Það er náttúrlega erfitt,
en mér finnst það skemmtilegt.
— Hvað er skemmtilegast?
— Að vera alltaf með stór verk-
efni i höndunum, og mér finnst
raunverulega áhugaverðast að
hafa áhrifavald til að beina
kröftum borgarinnar i eina átt
frekar en aðra, þ.e.a.s. þar sem
manni finnst þörfin mest hverju
sinni. Auðvitað er þaö borgar-
stjórn, sem markar grund-
vallarstefnuna, en borgarstjórinn
er eins konar framkvæmdar-
stjóri, og hann á að vera með
plskinn i höndunum og reka á
eftir framkvæmd verkefnanna,
og hann getur jafnframt haft
frumkvæði um að beina kröftum
borgarstjórnarinnar eftir á-
kveðnum farvegi.
— Ég held ég verði að segja, að
þetta sé það skemmtilegasta við
starfið, þó mér Hði kannski hvað
bezt, þegar tekizt hefur að greiða
götu einhvers borgara, sem
kemur með persónuleg vandamál
sin. Það eru kannski smámál
fyrir borgina sem heild, en skipta
viðkomandi einstakling miklu
máli, og það er ósköp notalegt að
geta aðstoðað á einhvern hátt.
Það eru ýmsir manneskjulegir
þættir i þessu starfi, sem eru
ákaflega aðlaðandi.
— Eru viðtalstimarnir mikið
notaðir?
— Já, það koma svona að
meðaltali 10-15 manns i hvert
skipti. Það eru fyrst og fremst
einstaklingar með pérsónuleg
vandamál, en svo koma menn
lika oft til þess að benda á, hvað
þeim finnst borgin eiga að gera i
ýmsum málum. Maður getur oft
fengið góðar hugmyndir á þennan
hátt og komið þeim áleiðis til við-
komandi borgarstofnana, svo það
eru ekki bara einstaklingarnir,
sem græða á þessum viðtals-
timum.
— Gr þvi ég spurði þig, hvað
væri skemmtilegast við þetta
starf, geturðu þá sagt mér/hvað
þér finnst leiðinlegast við það?
— Ja, svei mér þá, ef ég get
34 VIKAN 15. TBL.