Vikan

Tölublað

Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 10

Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 10
FYRRUM DROTTNING KVIKMYNDANNA AVA GARDNER w a Gardner býr nú í London og lætur nm Éiiii i mú . Einu sinni var hún stjarnan, sem állir töluðu um og sá dagur Ielö varla, að hennar væri ekki getið í slúðurdálkum blaðanna. Nú eru liðin tvö á frá því hún lék siðast i kvikraynd, en hún hefur ekkí iagt leíkinn á hilluna. Þvf að hún hefur samþykkt að leika i kvikmynd, sem John Huston mun stjórna. Ava Gardner er komin á sex- tugsaldur. HUn sefur ein i himin- sæng á þriðju hæð, fimmhæða húss sins, sem stendur við Alex- anderstorg i London. Þar eru járngrindur fyrir öllum gluggum og tveir lásar fyrir útidyrum. Einar dyr I kjallaranum eru læstar með þremur lásum, þær liggja að vinkjallaranum. Himin- sængin er smiðuð úr messing og klædd skrautlegri blúndu. Hana keypti Ava i Madrid, þar sem hún bjó i mörg ár. 1 rúmi þessu liggur HPSK ®SS!S Mlllll Ava flest kvöld fram að miðnætti, les og hlustar á nið umferðarinn- ar á Brompton Road. Ava var einu sinni álitin ein fegursta kona heims og umsetin karlmönnum. En nú er enginn maður i lifi hennar. Sannleikur- inn er sá, að hún hefur ekki hrifizt af neinum manni siðan slitnaði upp úr sambandi hennar við leik- arann George C. Scott fyrir sex árum. Það er eins og hjarta hennar hafi dáið við það og hún dregið sig inn i sjálfa sig. 1 stað þess að eltast við karl- menn eyðir Ava dögunum i að elda mat og bjóða vinum sinum til kvöldverðar heima hjá sér. Siðan situr hún með þeim i stássstof- unni og spjallar við þá fram á nætur. Hún borðar kvöldverð afar sjaldan úti, en hún fer við og við á tónleika i Albert Hall eða þá á bió. Einn bezti vinur hennar, Paul Mills, sem heimsækir Gardner oftar en nokkur annar, segir: Ava einangrar sig svo mikið frá um- heiminum, að fæstir hafa hug- mynd um að hún búi i London. Hann og kona hans hafa þekkt leikkonuna árum saman — alveg frá þvi hún lék i kvikmyndinni „Ólgandi blóð” árið 1956 og þau hafa haldið vináttunni siðan. En eiiis og öðrum vinum hennar hefur þeim oft orðið sundurorða við Gardner. Þau hafa mörgum sinnum farið frá övu i fússi, en hún hefur kallað i þau aftur dag- inn eftir með auðmjúkum afsök- unarbeiðnum. övurnar eru nefnilega tvær. önnur er hlýleg, skemmtileg og viðkvæm kona. En vaki hún of lengi, drekki og spili plöturnar meö Sinatra of hátt, er engu lik- ara en hún skipti algjörlega um ham. Þrátt fyrir allar sögurnar, sem gengið hafa um drykkjuskap övu er hún i rauninni alls ekki mikið fyrir vin. — Ég man aldrei eftir þvi að mér hafi þótt vin gott, segir hún. Ég drekk eingöngu til þess aö yfirvinna feimnina, segir hún. Hafi Ava drukkuð of mikið er hún rauð og þrútin daginn eftir. Svo virðist sem hún hafi glataö fegurð sinni fyrir fullt og allt. En þaö liður ekki á löngu áöur en hún er endurheimt. — Að mlnu áliti, segir Elisabet Taylor, — er Ava Gardner raun- verulega fögur. Þaö er ég ekki.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.