Vikan

Issue

Vikan - 28.06.1973, Page 37

Vikan - 28.06.1973, Page 37
— Það er kominn hádegis- veröartimi, sagði Mariotti. — Þá sting ég upp á, að við borðum saman, svaraði Verrell, — en við ættum bara að vera hérna kyrrir þangað til viö heyrum eitthvað meira. — En það er enginn ástæða til aö verða af matnum fyrir þetta, sagði Mariotti, hneykslaður. — Það er hægt að koma til okkar boðum, hvert sem er. Ef þeir ættu að búast við nokkurm árangri, yrðu þeir að bjóöa fulltrúanum i mat með sér, hugsaði Verrell... Hann stóð upp. — Jæja, viö skulum þá fara eitthvað og fá okkur matarbita, sagði hann. Mariotti baröi á borð- ið með feitum fingrunum. — Það er ágætt á Miramare, en þó ekki eins gott og á Borgia. En þvi miður er dýrt á Borgia.... Hann þagnaði.... — Við skulum reyna Borgia, sagði Verrell. Klukkan var orðin hálfsex. Sólin var farin að siga niður undir sjónhring, en hitinn var enn sá sami. Vindur var enginn og rykið á götunum, lá kyrrt i loftinu, ef við þvi var hreyft og ætlaði alveg að kæfa vegfarendur. Hestar stóöu spenntir fyrir vagna sveitamannanna og hengdu niður haúsinn, menn hölluðu sér upp að húsaveggjum og voru of máttfarnir til að tala, en hálfsoltnir hundar voru meira að segja hættir að róta i rusla- haugunum. Verrell og Georg sátu i loftlausum forsalnum i gistihúsinu sfnu og drukku úr hverju iskældu glasinu á fætur öðru, bullsveittir, og biðu báöir eftir þvi, sem þeir vissu nú oröiö, að mundi aldrei ske. Þjónninn, sem gekk svo hægt, aö nálgaðist kyrrstööu, færði þeim ný glös og tók hin af borðinu. Lengst i burtu var rafvirki að fitla vió loftræstikei fið og var sýnilega ekkert nær þvi að ljúka verki sinu en þegar hann haföibyrjað á þvi um morguninn. — Hvað eigum við að hanga hérna lengi? spurði Georg. Verrell hikaði með svarið. — Ég veit það eiginlega ekki. svaraðihann loksins. Ég býst við. að þegar dimmt er orðið, verði öll von úti, hversu hægfara sem þessi bátur hefur verið, þá hlýtur hann að veröa kominn hér móts við fyrir aftureldingu, nema þvi aðeins hann hafi bilað. — Hann hefði fariö einhverja lengri leið. — Þvi gátum við alltaf búizt við. Georg þerraði af sér svitann meö gegnblautum vasaklút. — Ég hefði ekkert á móti þvi að losna héðan. — Segjum tveir. — Ég hef alltaf haldið, að ég gæti þolað hvaða hita, sem vera skal, en þetta hérna .... Þjónninn kom enn með iskæld glös og setti á borðið. — Eruö þér hr. Verrell? spurði hann. - Já. — Þaö eru skilaboð til yöar, sagði hann. — Þau eru vist eitt- hvað áriðandi, bætti hann við, hver fjandinn getur það þá verið? Við aðra tilraun skildi þjónninn fyrst, við hvaö var átt og svaraöi: — Þaö veit ég ekki, herra. Verrell reyndi að stilla óþolinmæði sina, — Hver veit, hvað þau eru . — Viö afgreiðsluboröið, herra. Þau sögðu, að . . . . Verrell ruddist framhjá þjóninum, sem var steinhissa á öllum þessum hamagangi. Georg elti en gaf sér ré.tt tima til að taka upp tvö nýju glösin af borðinu og hafa á brott meö sér. Afgreiöslumaðurinn sem var að horfa á pappirsblað, og virtist hafa verið lengi aö þvi. — Já, herra, sagöi hann á ensku. Framhald á bls. 50

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.