Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.08.1973, Side 4

Vikan - 30.08.1973, Side 4
Ef blí ert að: BYGGJA. BREYTA EBABÆTA bá litti vM í litaveri. bví bafl hefur ivalt horaal síp UTAVER Símar 32262-30280 oo 30480 Grensásveoi 22 - 24 Dóstufinn TÓNLISTARNAM í SKALHOLTI Kæri póstur! Ég þarf ekki að skrifa þér út af einhverjum strák sem ég er skotin i, heldur vildi ég biðja þig að veita mér örlitlar upplýsingar um Lýöháskólann I Skálholti: Er kennd einhver tónlist og tónlistargreinar? Og svo þetta venjulega: Hvernig er skriftin og hvaö lestu úr henni? Pianónemandi. * Það er alveg sérdeilis gott að ástarmálin skuli vera i lagi hjá þér, én ég hringdi i Heimi Steins- son, rektor Lýðháskólans i Skál- holti, og hann gaf eftirfarandi upplýsingar: t vetur sem leið var kenndur organleikur og nótnalestur, einnig var söngur og gitarsláttur kenndur. Ætlunin er að þessu verði iikt hagað á komandi vetri. t haust fær skólinn pianó en ekki er neitt ákveðið um kennslu á það. Ef þú vilt fá nánari upplýsingar skaltu bara hringja til Heimis og spyrja hann. Skriftin er falleg og þér viröist lagið að skrifa vel án þess að vanda þig sérstaklega. DANSLAGATEXTAR Elsku hjartans Póstur! Kómdu blessaður og sæll! Mikið óskaplega finnst mér frá- bært að lesa svörin við póstinum sem ykkur berst. Þessi opna I Vikunni er ómissandi. En þar sem ég er hvorki i vand- ræðum með að kynnast eða segja upp einhverjum „ofsa sætum” strák þá ætla ég að biðja þig að gera mér stóran greiöa og svara þessari spurningu: „Hvar i Reykjavikurborg get ég keypt danslagatexta?” Þar á ég ekki við söngbækur, heldur hef ég eindreginn áhuga á að læra textann við nýjustu lögin. Lagið eftir Gylfa Ægisson „Minmng um mann”, sem Logar frá Vestmannaeyjum flytja, finnst mér alveg ljómandi, og þaétti vænt um aö fá textann birtan, þvi eins og þú veizt, þá gengur betur að vaska up p, ef maöur syngur um leið. Siðan vil ég þakka þér lestur þessa bréfs, ég tala nú ekki um sé þvl einnig svaraö. Kannske gætjr þú að lokum sagt mér, hvaða merki passa bezt meyjarmerkinu, ég reyni þá að velja mér einhvern eftir þvi, (hömm). Með beztu kveöjum og fyrir- fram þakklæti, Gunna stöng. Það er alltaf ganian að fá svona skemmtilegt hrós um póstinn, og er ég sammála þér, aö þessi opna Í Vikunnu er ómissandi. Eftir þvi sem ég bezt veit hafa allir gefizt upp á að gefa út dans- lagatexta. Ef þú hefur alveg eld- legan áhuga á danslagatextum ættir þú að geta notast viö gömul danslagatextahefti og þaii geturðu fengið hjá fornbóka- verzlunum I Reykjavfk. Einnig er til i dæminu að þú hreinlega kaupir þér plöturnar og dundir þér við að læra textana af þeim. Ég birti hér textann við lag, sem nýlega er komið út á hljóm- plötu Loga frá Vestmannaeyjum: „Minning um mann”. „Nú ætla ég að syngja ykkur litið fallegt ljóð um Ijúfan dreng sem fallinn er nú frá um dreng sem átti sorgir en ávallt þó svo stóð sperrtur þó að sitthvað gengi á. í kofaskrifli bjó hann sem litinn veittiyl andvaka á nóttum oft hann lá. Portugal hann teygaði, það gerði ekkert til. Það tókst með honum yl i sig að fá. Þið þekktuð þennan mann þið all oft sáuð hann drykkjuskap til frægðar sér hann vann. Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann. Þau hræddu hann og gerðu aöhonumgys. Þau þekktu ei litlu greyin, þennan mæta mann margt er það sem börnin fara á mis. Þið þekktuð þennan mann....... Munið þið að dæma ’ei eftir útlitinu menn, ýmsum yfir þessa hluti sést. Til er það að flagð v er undir fögru skinni enn, fegurðin að innan þykir bezt. Þið þekktuð þennan.... Ljóðið er á enda um þennan sóma svein, sem að þráði brcnnivln úr stæ. Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvilir bein undir öskuhrúgu í Vestmannaeyjabæ. Þið þekktuð þennan mann....” Þá hefurðu textan þinn, Gunna, og vona ég að uppvaskið gangi betur á næstunni. Steingeitin er sögð eiga mjög vel viö meyjuna, en nautið og krabbinn eru ekki siðri. 4 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.