Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.08.1973, Qupperneq 12

Vikan - 30.08.1973, Qupperneq 12
 Huglaus, einmitt huglaus, ég hef allt mitt lif veriö huglaus. Aörir kalla mig kannske skyn- sama, en nei. . . Nú var það lik- legast oröiö of seint, ég ætti aö hafa þoraö fyrr. Lena sneri sér i stóra hjóna- rúminu. Viö hliö hennar lá Sten og svaf jafn rólegur og öruggur og hann var vanur. Hún kenndi ó- skynsamlegrar reiöi. Alltaf gat hann sofiö. t>egar hún var leiö, þegar hún þurfti aö fá aö tala, þegar hún þarfnaöist hlýju og hjálpar. En þaö var nú líka henn- ar sök, hugsaöi hún svo. Þrátt fyrir allt, var þaö hún, sem haföi fælt hann frá sér, oft og mörgum sinnum, þegar hún haföi veriö þreytt, þegar hún haföi bara vilj- aö sofa. Sofa, komast burt frá áhyggjunum vegna vinnunnar, heimilisins, barnanna, fjárhags- ins. Nú gat hún ekki einu sinni sofiö. Vaknaöi á hverri nóttu og hugsaði um lif sitt. Nágrannar og vinir myndu kalla lif hennar fyrir- myndarlif. Góður eiginmaöur, fjárhagurinn góður, vel uppalin börn á táningaaldri, einbýlishús, skemmtilegt starf, já, þetta var allt alveg prýðilegt. En hugsaðu þér, hversu lftiö þau vita, allt þetta efnislega var út af fyrir sig ágætt, en allt hitt. . . Aö lifa i tómarúmi, tilfinningalegu loft- tæmi, eins og hún geröi, þaö var helviti og þaö vissu þau ekkert um! Smásaga eftir Katarina Smedberg EGVIL VERA Hugsaöu þér, hugsaöu þér, ef ég heföi beðiö meö aö gifta mig. Hugsaðu þér, ef ég heföi þoraö aö skilja viö manninn. Hugsaöu þér, hvað lifið væri öðru visi þá. Lena horföi á sjálflýsandi vekjara-. klukkuna. Eftir tvo tima yröu þau komin á fætur og boröuöu morg- unmat meö drengjunum. Sten les blaöiö uppgötvar aö hann er orö- inn of seinn eins og venjulega og þýtur af staö. Enn einn venjuleg- ur morgunn, enn einn venjulegur dagur. . . En þetta skal ekki verða venju- legur dagur, það vissi Lena. Það er i dag, sem hún veröur aö taka örlagarika ákvöröun, þaö er i dag, sem hún verður aö tilkynna yfirmanni sinum, aö hún hafi ákveðiÖ sig. Þegar hann talaöi viö hana fyrir nokkru um hinar fyrir- huguöu breytingar, haföi hún orð- ið undrandi og upp meö sér, siöan rugluö. Hún haföi sagt, aö hún yröi að ráðgast viö fjölskyldu sina, beöiö um viku umhugsun- arfrest. Nú var vikan liöin og hún haföi ekki einu sinni haft kjark til aö tala viö Sten. Hún vissi jú, aö honum fyndist þaö indælt, aö hún, Lena, haföi fengið gott tilboö. En svo sæi hann, hvaö þaö heföi i för með sér. Hún yröi aö feröast mik- iö, hann og drengirnir neyddust til aö sjá um sig sjálfir. Og þaö myndi ekki veröa honum aö skapi — hún haföi i gegnum árin dekraö Sten hafði einn slæman galla — hann var leiðinlegur. í sautján ár hafði Lena umborið hann og lifað i tilflnningalausu hjónabandi. Hún hafði oft hugsað um hjónaskilnað, en það voru jú hörnin. .. Dag nokk- urn fékk Lena tilboð og varð að gera upp hug sinn. viö þá, og þaö.hefði hún ekki átt aö gera, þaö sá hún núna. Nei, hún gæti ekki talaö um þetta viö hann, ekki frekar en um annaö. Lena vissi, aö hún gæti ekki sofnaö aftur, steig upp, sveipaöi morgunsloppnum um skjálfandi kroppinn og gekk niöur i eldhús. Sólin var aö koma upp, fuglarnir kurruöu hamingjusamir. Hugs- aöu þér, ef mér gæti liö'ið eins og þeim, fundiö til gleði vegna þessa dýrölege dags! Lena andvarpaöi og enn einu sinni hugsaði hún um sitt eigið kjarkleysi. Vist verö ég að hætta nú, skapa mér eigin framtiö. Nú, þegar drengirnir geta séö um sig sjálfir, nú þegar ekki var þörf fyrir hana á sama hátt og áður. Ég hef öll tækifæri til aö spjara mig, launin nægja vel. Hún gæti örugglega fengiö ibúö i gegnum vinnuna. Hugs- anirnar svifu fyrir hugskoti hennar allan morgundaginn, ná- kvæmlega eins og verið hafði siöustu sautján árin, allan timann, sem hún haföi veriö gift. Þaö var bara I dag, sem hugsan- irnar voru áleitnari en venjulega. Hún vissi, aö núna varö hún aö gera upp viö sig, hvaö hún ætlaöi sér með framtfðina. — Lena kemuröu meö út aö boröa? Hún var vakin upp úr sin- um þungu þönkum af Mariu, unga, laglega ritaranum á skrif- stofunni. Þegar Maria birtist, fannst Lenu alltaf, aö hún væri gömul og þreytt. Maria var alltaf jafn ung og fersk i útliti, jafnvel þegar hún haföi veriö I gleöskap alla nóttina. Hvilikur munur aö vera 22 og 37, hugsaöi Lena. Hugsaöu þér, þegar ég var 22, þá var ég gift og haföi eigna^t fyrsta barniö. — Já, gjarnan, hvert eigum viö aö fara? — Til krárinnar á horninu, þú veizt, þessi sem ég talaöi um um daginn. Þeir hafa finan mat, og mig langar i eitthvað virkilega gott. — Allt i lagi, ég verö tilbúin eftir kortér, verö bara aö hringja tvö samtöl áöur. — Þú viröist ekkert sérstak- lega glöö, Lena. Hefur forstjórinn veriö leiöinlegur aftur, sagði Maria, meöan hún lyfti vinglas- inu. — Glöð, nei þaö er satt. Allt I einu opnuöust gáttir Lenu. Hún sagöi frá tilboöinu, sem forstjór- inn haföi gert henni, um leiöindin heima, tilfinningakuldann, þaö viti aö deila húsi og rúmi meö manni, sem hún átti ekkert sam- eiginlegt meö. — Hugsaöu þér, sagöi hún hægt, hugsaöu þér aö hafa veriö gift i sautján ár og meir en helm- ing timans búiö án samlifis, án nokkurs umræöuefnis. Vegna barnanna muldraöi hún og fann, aö nú gat hún ekki sagt meira. María myndi ekki skilja. Og Lenu fannst hún þvinguö eftir aö hafa opnaö sig i fyrsta skipti fyrir einhverjum. — Þú ættir aö skilja viö mann- inn, og þaö er ekki einum degi of snemma, sagöi Maria. Ég hef hugsaö um þaö nokkuö lengi, ég hef reyndar vitaö, aö lif þitt væri ekki eins og bezt yröi á kosiö. Og svo veröur þú auövitaö aö krækja þér I karlmann. Svo einfalt var þaö fyrir henni. Og kannske var það ekki svo erf- itt. Lena vissi, aö Maria haföi rétt fyrir sér, Maria haföi sagt þaö upphátt, sem Lena haföi lengi hugsaö. Lena vissi, að hjónaskiln- aöur var hiö eina rétta. Hún haföi vitaö þaö I mörg ár, en ekki þor- aö. Hún haföi faliö sig aö baki dulu, gert sjálfa sig og þarfir heimilisins fyrir hana meiri en þær raunverulega voru, gert sjálfa sig óþolandi. En hún vissi, aö þaö var jú enginn. Hún lauk úr vinglasinu og fann, aö ákvöröun haföi veriö tekin, hún ætlaöi i vinnuna og þiggja nýju stööuna, siöan ætlaöi hún heim og ræöa um þetta viö Sten — og hún ætlaði einnig aö segja honum, aö timi væri til kominn aö þau skildu. Hún kom heim á undan. Hún var dálitiö leiö, en samtimis glöö. Hún heföi talað viö yfir- mann sinn og þeim haföi komiö saman um, aö hún skyldi hiö fyrsta byrja á aö undirbúa sig undir hiö nýja starf. „Þú þarfn- ast aölögunar og undirbún- ings-timabils, og þaö er jafn gott aö ljúka þvi af fyrir sumarleyf- iö”, haföi hann sagt. 12 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.