Vikan

Eksemplar

Vikan - 15.11.1973, Side 4

Vikan - 15.11.1973, Side 4
Hvað á ég að * gera? Notaðu SUPER COREGA Svarið er einfalt. Þetta nýja tannlím heldur gervitönnunum á sinum stað. Þaö erjafnvel betra en gamla, góða COREGAtannlimið,sem stendur þó ennþá fyrir sinu. COREGA OG SUPER COREGA FÁST í APÓTEKUM Kemikalia h.f. Tei6 er tilbúiö, ástin! Dósturinn Hótar lifláti Kæri Póstur! Ég sný mér til þin i vandræðum minum, þvi ég veit ekki, hvað ég á aö gera. Ég er alveg I ferlegum vandræðum með strák, sem ég er búin aö vera lengi með, en er ekki nógu hrifin af. Það er svo sem ágætt að sofa hjá honum, en eiginlega ekkert meira. Mér finnst hann ekkert skemmtilegur, þó hanri sé góður strákur. Hann tekur allt ógurlega alvarlega, er allur á kafi i einhverju skáld- skaparþrugli og yrkir m.a.s. ljóð Hann vill hafa mig alveg út af fyrir sig, ég má helzt ekki tala við aörar manneskjur og náttúrlega siztaf öllu aðra stráka. Hann seg- ist elska mig einhver ósköp og mundi svipta sig lifinu, ef ég segði skilið við hann. Ég hef nokkrum sinnum reynt að losna við hann, jafnvel verið með öðrum strák- um, og það var nú meira vesenið. Hann varð alveg óður hótaði öllu illu og mest að drepa sig, ef ég yröi ekki með honum áfram, og i eitt skiptið rauk hann til og brauzt inn og stal og lenti i fang- elsi. Mér var náttúrlega kennt um allt saman af vinum hans, og mér fannst ég verða að taka hann aft- ur. En ég er orðin ægilega pirruð á þessu, mér finnst ég aldrei frjáls að neinu. Hvað á ég eigin- lega að gera? Auðvitað vil ég ekki, að strákgreyið fari i hund- ana, hann fer náttrulega alltaf á fyllirí, ef eitthvað slettist upp á vinskapinn hjá okkur. En ég get ekki hugsað mér að sitja uppi meö hann allt mitt llf. Hvernig eiga annars saman vog og naut? Og lestu eitthvað út úr skriftinni. Ambátt. Þetta samband getur aldrei oröið gott, og þvi fyrr sem þú kemur honum I skilning um það, þeim mun betra. Sjáifselska hans kemur i veg fyrir að hann geri al- vöru úr sjálfsmorðshótun sinni, þeir sem hæst tala um slikt, láta sjaidnast af þvi verða sem betur fer. Auðvitaö er hann vis til þess að setja eitthvaö stórkostlegt á sviö til þess að reyna að vekja meðaumkun þina eða hefna sin á þér, en þér þýðir ekkert að vera að burðast með samvizkubit út af þvi, og láttu ekki vini hans rugla þig i riminu. Þegar fram i sækir, er það bezt fyrir ykkur bæði að slita þessu sambandi og það strax. Bezt væri, ef þú gætir farið i burtu um skeið. Það getuí brugðið til beggja vona með sambúð vogar og nauts. Skriftin bendir tii þess, að þú sért góð- hjörtuð og svolitiö ósjálfstæö. Hvað kostar smásjá? Kæri Póstur! Ég þakka allt gamalt og gott. Ég ætla ekki að skrifa þér um hvort ég sé i ástarsorg eða svoleiðis, þvi I sliku get ég bjarg- aö mér sjálf. En tilefnið að ég skrifa þér er það, að mig langar mikið að vita, hvað sæmilega góð smásjá kostar. Mig grunar, að þær séu allar of dýrar fyrir mig, þar sem ég er ekki annað en skólablók. Ogsvo er það annað. Hvernig á að losna við vörtur af höndum? Ég er með nokkrar, þó ekki stór- ar, en samt finnst mér það alveg hræöilega ljótt. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Hvað lestu úr skrift- inni? Hvernig eiga fiskarnir og vogin saman? Vona, að þú viljir svara þessu, þvi ég hef mikinn áhuga á að vita þetta, sérstaklega þetta meö smásjána. Grúskari. Samgleðst þér að vera svona sjálfbjarga i ástamálunum. t verzlun Hans Petersen hf. feng- um við þær upplýsingar, að þar fengjust fjórar geröir af japönsk- um smásjám. Sú dýrasta dregur 900 og kostar rúmar 2.000 krónur. Tvær gerðir draga 750 og kosta rúmlega 1300 og tæplega 1200 kr. ódýrasta gerðin dregur 300 og kostar rúmar 900 kr. Geturðu ekki óskað þér einnar 1 jólagjöf frá fjölskyldunni? Reyndu ekki að krukka I vört- urnar sjáif láttu lækni ná þeim burtu. Skriftin er i sjálfu sér góð, en tæpast nógu læsileg, stafsetning virðist vera I lagi. Skriftin bendir til dugnaðar og viljastyrks. Fiskur og vog eiga saman að vissu leyti, en ekki. I sambúð. Svar til Lilju Fiski og steingeit er spáð öllu góöu, en þið eruð alltof ung til þess aðbinda ykkur. Kannski hef- ur einmitt sú staðreynd áhrif á framkomu konunnar gagnvart þér, henni finnst þú e.t.v. vera að ánetja son 'sinn. En það er von þér sárni umtaiið. Það er bara litiö fyrir þig, að gera annað en sanna það með timanum, að orð heunar séu ósönn, a.m.k. hvað sjálfa þig snertir. Ileyndu að skýra afstöðu þina æsingalaust fyrir stráknum, og i ölium bænum verið varkárari I sambandi ykkar. Þið hafið ekki minnslu vitund með barn að gera. Af skriftinni má ráða, að þú sért óeigingjörn og dálitið viðkvæm. 4 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.