Vikan

Issue

Vikan - 15.11.1973, Page 9

Vikan - 15.11.1973, Page 9
ÍR LAUREL? 8. HLUTI FRAMHALDSSÖGU MARLYS MILLHISER út. En fimmy beygði sig betur niður i áætið og saug ákaft þumal- fingurínn, staröi þögull á hliðið að húsirui, sem hann átti að erfa. Hún varð að beita sér til að ná honum út úr bilnum. Stóri forsalurinn var mannlaus og eyðilegur, eins og venjulega. Michaél leit inn i bókaherbergið, en lokaði svo dyrunum þangað inn. Svo fór hann inn i dagstofuna. Laurel fylgdi honum eftir, með Jimmy á eftir sér. — Jæja, svo þið eruð komin, alveg á réttum tima, sagbi Janet, sem stóö i tröppu við arininn. Consuela, stór og fyrirferöamikil, stóö hjá og studdi við tröppuna. Djúp raust Michaels bergmál- aði I stofunni. — A réttum tima til hádegis- verðar, vona ég? — Já, þegar þið hafið séö, það sem ég ætla að koma ykkur á óvart með, sagöi Janet, dularfull á svipinn. — Consuela, sæktu þau hin. Ráðskonan hreyfði sig ekki. — Sæktu þau, segi ég! Michael lagði arminn bliðlega um axlir Consuelu og spurði hvað stæði til. — Ó, herra Michael, það er svo hræðilegt.... — Consuela er vist ekki hrifin af tiltæki minu. A ég að sækja þau sjálf? Lágvær rödd Janet var kuldaleg. ** — Ég skal fara. En áöur en Consuela fór, lagðist hún á kné fyrir framan Jimmy og kyssti hann á kinnina. Hann hló feimnis- lega, en sleppti ekkihönd Laurel. Janet sneri sér iiú aö Jimmy og Laurel. — Setjist þið og standið ekki þarna eins og ótindir betlarar. Þið eigið vist alltþetta hús, er það ekki rétt? — Laurel, þú hefir ekki andað út úr þér einu einasta orði. Slær hann þig, til þess að þú segir ekki neitt? Hve marga marbletti ertu með? — Hvern fjgndann meinarðu með þessu öllu? Michael sneri sér að mágkonu sinni og hvessti á hana augum. En rétt i þvl kom Paul I fylgd með Claire og Consu- elu. — Hvað er um að vera, Janet, þú veizt að það má ekki trufla okkur.... ó, Michael og Laurel, ég var húnin að gleyma, að von væri á ykkur. Fyrirgefiö mér. Claire, sem eins og Paul, var klædd hvitum sloppi, gekk beint til Michaels. Laurel fannst hún jafn aumkunarleg, eins og þegar hún kom i heimsókn til hennar fyrir skömmu. Lestrargleraugun voru neðst á nefinu og hún varð að horfa yfir þau. — Hvað sem það nú er, sem þú ert með I bakhöndinni, þá bið ég þig að flýta þér að segja okkur það, sagði Paul og andvarpaði, þegar hann settist við hlið Laurel. — Ég vona bara aö þaö sé nógu bjart, til þess að þetta njóti sin, sagði Janet og kippti i snúru á grænu flauelstjaldi og þá kom i ljós málverk af konu með dreng i kjöltunni. Janet hafði búizt við einhverju óþægilegu, þegar tekið var tillit til þess hve æst Janet var og grát- bólginna augna Consuelu. En málverkið hafði engin áhrif á hana. Konan var dökk yfirlitum, grannvaxin og fögur. Laurel heyrði, aö Consuela snökkti. Paul sat hreyfingarlaus viö hlið hennar og Claire pirði augunum yfir gleraugnabrúnina. Michael var orðinn náfölur. Vöðvarnir i kinnum hans kipptust til, en hann sagði ekki nokkurt orö. Janet leit, sigri hrósandi, I kring um sig, horfði fast á hvert þeirra fyrir sig. Það var greinilegt, að málverk- ið var af Mariu meö Michael I kjöltunni. Þau hlutu að hafa séð það áður. Þetta var fallegt mál- verk og fór vel á þessum stað. Hvers vegna hafði þetta svona mikil áhrif á þau öllsömul. — Ég fann þetta málverk i ruslakompu og lét ramma það inn. Janet, sem greinilega var ánægð með verk sitt, settist I sófa og naut þess. — Þetta er fallegt málverk, finnst þér það ekki, Michael? En Michael strunsaði, löngum skrefum, út úr stofunni. Consuela flýtti sér á eftir honum. —■ Hvers vegna gerirðu þetta, Janet? sagði Paul og leit nú loks- ins af málverkinu. Þú hefir reynt að koma illu af stað i allt sumar. Og svo kemur þetta. Hvers vegna? — Hvers vegna ekki? Þetta er eina fjölskyldumyndin, sem ég hefi i þessu húsi. Paul tók af sér gleraugun og nuddaði augun. — Ég fer til rannsóknastofunn- ar, sagði hann og gekk I burtu. — Janet, sagöi Claire lágt, — þú hefðir nú getaö látið þetta vera. Ertu afbrýðisöm vegna þessarar konu, sem er dáin fyrir tuttugu árum. Janet hló illskulega. — Mig langaði til að sjá, hvort Paul væri ennþá ástfanginn af hinni fögru konu föður sins. En ég hélt aö Michael væri kominn yfir þessa móðurtilbeiðslu sina. En aðallega vildi ég láta ykkur sjá þetta mál- verk. — Hvers vegna? spijrði Claire. — Vegna þess að þið báðar vilj- ið eiga Michael. En þið sáuö hann núna. Janet benti á málverkiö. — Þetta er eina konan, sem hann hefir nokkurn tima elskað og hann mun aldrei elska aðra konu. Hún sneri sér að Laurel. — Þú ert að reyna að fá hann til þin aftur, en hann hefir aldrei verið þinn I raun og veru. Hann kvæntist þér eingöngu vegna þess, aö þú liktist svo móður hans. Janet hallaði sér fram og greip 1 handlegg Laurel. — Taktu nú vel eftir, sjáðu augun, höfuðlagið og svipinn á andlitinu. — Hefiröu nú lokið þér af? Laurel kippti til sin handleggnum og Janet tók i höndina á Jimmy. Hann reyndi að losa höndina, en hún hélt fast og talaði hratt og ákaft. — Nei, það er eitt eftir. Littu á Jimmy og siðan á Michael og Mariu. Hún skældi sig i framan og munnurinn varð að einni grettu. — Þarna hafið þið sönnunargagn- ið! — Hvaða sönnunargagn? — Fyrir þvi, að Jimmy er ekki sonur Michaels, Janet sleppti hönd Jimmys og sneri sér að mál- verkinu. — Hvernig ætti Michael sem átti mexikanska móður og þú, sem sjálf ert svona dökk, að geta eignazt ljóshært barn. Þaö er mjög ósennilegt. Claire gekk nú alveg aö arnin- um og leit af málverkinu á Jimmy. Janet hélt áfram, sigri hrós- andi: — Nú hlýtur jafnvel Micha- el, að sjá þaö sem við hin höfum alltaf vitað, að faðir Jimmys hlýt- ur að hafa verið ljóshærður. Erf- inginn er ekki réttur erfingi! Laurel tók Jimmy i faöm sér og þrýsti honum upp að brjóstinu. Gamlar spurningar, sem áður höfðu sótt á hana, komu nú fram á ný. T fyrsta sinn, sem hún sá Jimmy, hafði hún sjálf furöað sig á þvi, hve ljóshæröur hann var. Colleen hafði lika tekiö eftir þvi. Hún virti betur fyrir sér myndina af Michael. Hann hlaut að hafa verið á svipuðum aldri og Jimmy núna, þegar myndin var máluö. En skyndilega sá hún hve likir þeir voru. Það var sama höfuö- lagið, sama nefið. Ef Jimmy væri dökkur yfirlitum, gæti þetta rétt eins verið málverk af honum. EFTIR An þess að segja nokkurt orð, fór hún með Jimmy út úr stofunni og skyldi konurnar tvær eftir. Claire var eitthvað hikandi, svo Janet sá, að hún hafði ekki unniö algeran sigur. — Ég vil fara heim, sagði Jimmy, án þess að taka út úr sér þumalfingurinn. — Það vil ég gjarnan lika. Við skulum leita að pabba og fá hann til að aka okkur heim, sagði Laurel þunglega og gekk upp stigann. Þau hittu Michael I svefnherberginu, sem Laurel hafði áður veriö i. Hann stóð við gluggann, sem sneri út'að eyði- mörkinni. Um leið og þau komu inn, sneri hann sér við og starði á Laurel. Þaö var eitthvað við augnaráð harts, sem hún var hrædd við. — Við Jimmy.... við viljum fara heim. — Þetta hús er heimili okkar Jimmys og það er mitt eigið hús. — Ég held þetta sé ekki hent- ugur timi til að heimsækja þau. Finnst þér það? Hann svaraöi ekki, en hélt á- fram að stara á hana. — Hvað er að, Michael? — Ég var næstum búinn aö gleyma hvernig móöir min leit út. Ég mundi ekki hve þú likist henni mikið. — Var þaö þess vegna, sem þú kvæntist mér? — Ég var oröinn fulloröinn maður, þegar ég kynntist þér, Laurel. Ég vildi eignast konu, ekki móður. — Janet heldur að Paul elski ennþá móður þina, og að þú hafir kvænst mér, eingöngu vegna þess hve mjög ég likist henni. Hún segir að þú munir aldrei elska aðra konu en hana og aö Jimmy geti ekki verið sonur þinn, þar sem hann er ljóshæröur,sagði Laurel. — Vitleysa! sagði Michael og lyfti Jimmy upp og þrýsti honum fast að sér. — En hvers vegna varð þér svona mikiö um þetta, Michael? Þetta er fallegt málverk og fer vel á þessum stað. Hvers vegna viltu ekki láta minna þig á hana? — Veiztu hvers ég minnist.... hvað þetta málverk minnir mig á? óp! Iskrandi hemla og óp konu. Mömmu minnar, sem svar- aði mér ekki, þegar ég talaði við hana. Blóð, lakið var rautt af blóði, blóði drifið hár og opin svöðusár.... Arma, sem héldu mér fast, svo ég komst ekki til hennar. Rödd hans var lágvær en svo áköf, að þessi hræðilega Framhald á bls. 36 46. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.