Vikan

Issue

Vikan - 15.11.1973, Page 35

Vikan - 15.11.1973, Page 35
V I Ð T A L V I D SVEINBJÖRGU Framhald af bls. 26 Hér þarf lika að ala upp ballett- áhorfendur til að ballett fái þrifizt eðlilega, og þaö verður ekki gert nema með ballettsýningum. — Mynduð þið hjónin koma hingað til starfa, ef þið fengjuð tækifæri og viðunandi skilyröi til? — Vist gæti það komið til greina, svaraöi Gray, en á þvi eru margir vankantar. Sem stendur finnst okkur við hafa mest út úr þvi að starfa með ,,Tanz-For- um” og verða ballettinum að mestu gagni þar. og á meðan svo er, er ómögulegt tyrir okkur að slitna úr tengslum við flokkinn. En okkur þætti gaman að koma hingaö og sýna og ef til vill getur orðiö af þvi, áður en langt um lið- ur. I Tanz-Forum eru 30 dansarar og þeir eru af þrettán þjóðernum. bað má þvi segja, að þar sé al- þjóðleg samvinna höfð i háveg- um. Tanz-Forum flokkurinn legg- ur meiri áherzlu á „moderne” eöa nútima ballett, en æfir þó klassiskan ballett jafnframt. bessi flokkur er sá eini i býzka- landi, sem vinnur á þennan hátt, og það var fyrst fyrir tveimur ár- um að þetta skipulag var tekiö upp innan flokksins. Tveir aðrir ballettflokkar i Evrópu starfa meö svipuöu sniði. Rambertball- ettinn i London og Nederlands Dans Theater i Hollandi. — bað er ekki einungis ný dansaðferð, sem við notum i Tanz-Forum, heldur hafa dansar- arnir lika mun frjálsari hendur en i þeim ballettflokkum, sem ein- göngu dansa sigildan ballett. Við höldum fundi reglulega og þar hafa allir tillögurétt. bar er rætt opinskátt um verkefni, sem til greina gæti komiö að glima viö, og eins er fjallað um þá balletta, sem verið er að æfa I það og þaö skiptiö. betta hefur gefið góöa raun og i flokknum rikir mjög góður andi. — Hver er aðalmunurinn á „moderne” ballett og klassisk- um? —■ bvi er erfitt aö svara i fáum oröum, segir Sveinbjörg. En mér finnst munurinn meðal annars liggja i þvi, aö i „moderne” ball- ett hvilir meira á hverjum ein- stökum dansara en i klassiskum ballett. 1 klasslskum ballett er eingöngu notuð klassisk tækni, en i „moderne” ballettum eru möguleikarnir ekki bundnir við ákveðið kerfi. Tanz-Forum flokk- urinn æfir t.d. Martha Graham- stilinn. t „moderne” ballett getur danssemjandinn notað hvaða hreyfingar sem honum dettur i hug, einnig getur hann notað klassiskar hreyfingar og breytt þeim eftir vild. „Moderne” ball- ettinn er opinn fyrir áhrifum hvaðanæva aö, en klasslski ball- ettinn er háður sinu fasta kerfi. — Er vinnudagurinn ekki lang- ur hjá ballettdönsurum? — Ballettflokkurinn, sem viö erum I, æfir átta tima á dag, sex daga vikunnar. Við byrjum æF- ingar klukkan tiu á morgnana og æfunl til klukkan tvö. Siðdegis eru æfingar frá klukkan sex og þær standa til klukkan tiu á kvöldin. Dans er mjög erfiður likamlega og andlega reyndar lika, en ég hef komizt að raun um að dansinn hjálpar manni mikið sálarlega. Mér liður aldrei betur en að aflok- inni sýningu. bað er eins og mað- ur hafi gefið af sjálfum sér það sem maður megnar að gefa og kannski veitt einhverjum ein- hverja gleði, dansað dansins vegna en ekki fyrir sjálfan mann. Mér fellur vel að eiga fri frá klukkan tvö til sex á milli æfing- anna, þvi að þeim tima get ég al- gerlega varið meö Simoni Björg- vin syni okkar. Annars verður vinnutiminn stundum lengri en þetta, sérstaklega hjá Gray, þvi að hann þarf oft að sinna „kóreó- grafiunni” utan æfingatima. — Hvernig viljiö þið helzt verja fristundum ykkar? — Ég vil helzt vera sem allra mest heima, segir Sveinbjörg, en Gray brosir við spurningunni og segir að litið sé um eiginleg fri hjá honum, en þaö komi ekki að sök, þvi að hann sé svo heppinn að hafa aöaláhugamál sitt að at- vinnu. — Ég ver miklum tima við að hlusta á tónlist, segir Gray, þvi að ég þarf að þekkja mjög vel tón- listina, sem ég sem dansa viö. Ég hef að undanförnu verið að kynna mér islenzka tónlist, þvi aö ég hef hug á að semja tvidans við is- lenzka tónlist. — En vitanlega höfum við áhuga á fleiru en dansi, segir Sveinbjörg. Okkur þykir mjög gaman að ferðast og i sumarfri- inu okkar i fyrra fórum við til Júgóslavíu. bar tjölduðum við á ströndinni og nutum þess að vera frjáls. 1 styttri frium grip- um við oft tjaldiö og tjöldum ein- hvers staöar fjarri skarkala borgarinnar. — Attu eitthvert uppáhalds- hlutverk Sveinbjörg? — Mér þykir nú eiginlega gam- an aö dansa allt, en mér er minnisstæðast hlutverk mitt i „Syndunum sjö”. Sá ballett var byggöur á ljóöum Bertolts Brecht og tónlist Kurts Weil viö þau. „Syndirnar sjö” voru meðal ann- ars á efnisskránni, þegar viö dönsuðum I Opera di Roma i vor, en þangað var flokknum boöið aö koma og dansa. — Ballettinn er i stöðugri þró- un, segir Gray. Við höfum samið balletta án þess aðhafa tónlist viö þá og við höfum samiö balletta án tónlistar en meö tali. Allar slikar tilraunir hjálpa okkur til að þróa og nýta þetta stórkostlega tján- ingarform, ballettinn. Enginn vafi leikur á, að árangurinn verður góður, þegar fólk nýtur starfs sins i eins ríkum mæli og þau hjónin gera. Vikan óskar þeim góös gengis i Köln og viö hlökkum til aö frétta af þeim þar, þó aö við vonum í aðra rönd- ina að þeim verði sköpuð freist- andi aðstaða til að starfa að hugö- arefnum sinum hérlendis. ÓSKAVIÐTAL Framhald af bls. 22 — Ég hef aldrei orðið fyrir þvi, nema i sambandi við björgun Súsönnu. Vfirleytt yfirgefur áhöfnin undir eins skipið, og þetta er strax orðið mál trygginga- félagsins. — bú stundaðir sjálfur sjóinn hér áður fyrr, var það ekki? — Jú, ég er fæddur og uppalinn við sjó, Patreksfirðingur og Tálknfirðingur, og þegar ég var að alast upp, þá var eiginlega ekki ferðast öðru vfsi en á sjó, það var fljótlegra að fara bæjarleið á sjo heldur en hesti. — Nú ert þú ekki gamall, voru engir vegir komnir á þessum árum? — Engir vegir þarna, nákvæm- lega engir vegir. Ég man raunar vel eftir því, þegar fyrsti vegar- spóttinn var lagöur milh Patreks- fjarðar og Tálknafjarðar, mig minnr 1935-6. bað komu þarna verkfræðingar að sumarlagi og völdu vegarstæðiö þvert ofan i vilja heimamanna, sem vissu auðvitað ofurvel, hvar snjóalögin eru mest. Svo kom ég vestur fyrir nokkrum árum og sá, að vegar- stæðinu hafði verið breytt. Veg- urinn liggur nú þar, sem heima- menn vildu upphaflega. — En svo við vikjum aftur að umsvifum þinum hérna. bið dælið stööugt sandi úr sjó á milli þess sem þið bjargið skipunum. — Efnistakan er nátturlega aðalliöurinn i okkar starfsemi, og við þurfum að stækka við okkur, viö rétt slefum i þvi að hafa nog, gætum selt meira. Sem stendur erum viö bara með eitt skip i þessu, Sandey, en erum nýbúnir að kaupa pramma úti i Englandi, sem á að breyta i sandflutninga- skip. — Ég get sagt þér það.að Sandey er eina skipið á Islandi, sem er gjörnýtt. Hún er alltaf i gangi, gengur 24 tima á sólar- hring helgar sem virka daga, þ.e.a.s. frá þvi i april og fram i október, þá verðum viö nú aðeins að hægja á feröinni. Venjulega leggjum viö henni svo um jólin, notum janúar til viögeröa og byrjum svo aftur I febrúar — marz. — Og þið dælið alltaf upp úr Hvalfiröinum? — Já, þetta er svo sem ósköp einfalt mál. Við erum með 2 skiþshafnir á Sandey, og hún kemur hingað fjórum sinnum á sólarhring meö sin þúsund tonn af sandi, dælir þeim inn I leiðslur, sem flytja sandinn ögn hérna upp á bakkann, og þar tekur harpan við. — Harpan? — Já, þetta er kölluð sand- harpa, sennilega sú afkastamesta I heiminum, flokkar þúsund tonn I fjóra grófleika á einni klukku- stund. Við smlðuðum hana sjálfir. Viö höfum oröiö aö finna út allar okkar aðgerðir sjálfir, þaö hefur enginn gert þetta hérna áður. — En erlendis? — beir koma til okkar aö leita ráöa. Viö fáum alltaf fyrirspurnir viðs vegar að, m.a. alla leið frá Kenya. Janvel Norðmenn hafa komið til að læra af okkur. — Hverjir eru annars þessir við? — Við Hreinn Pálsson, við höfum átt þetta saman sfðan 1958. — Allir athafnamenn hafa eitt- hvert hobbi, og þú elur upp fisk. Mér skilst það eiginlega vera orðið álika mikið fyrirtæki og Björgun hf. — Já, allir hafa sitt hobbi, sumir eru vitlausir I hesta, ég hins vegar rækta fisk. Viö Snorri heitinn Hallgrimsson, læknir byrjuöum á þessu saman, Hann var gifurlega mikill atorku- maður, ég hef engan mann vitað vinna eins mikið og hann. Við vorum miklir vinir, og við byrjuðum að ala upp seiði i bil- skúrnum hjá mér. Nú, þetta svona smáhlóð utan á sig, og nú erum við komnir með þrjú eldis- hús, eitt á Keldum, eitt i Tungu i Landbroti og loks eitt á öxnalæk i ölfusi, sem er verið að klára um þessar mundir. — Eldishúsið á öxnalæk er ekkert smáhýsi, 850 fermetra hús, og þ'ar á að verða fiskibú, við ætlum að rækta þar matfisk. Ég held það séu gifurlegir mögu- leikar i þeirri grein hér, við höfum svo margt fram yfir aðra I þeim efnum. Við höfum allan þennan jarðhita, við höfum ómengaö vatn, og við erum ennþá a.m.k. laus við sjúkdóma i fiskinum. Ég man alltaf þegaF Snorri kom með ameriskan pro- fessor til að skoða eldishúsið okkar hér á Keldum. Hann ætlaði ekki að trúa þvl, að við gætum haldiö llfi i fiskinum, svona þröngt i meira en einn dag. Sam- kvæmt hans kenningum og til- raunum var það ekki hægt. En það er vatniöokkar, sem er svona gott. — Hitinn er lika ómetanlegur. Við gerðum tilraun með ræktun bleikju á öxnalæk, og á einu ári náðum við henni upp i þá stærð, sem t.d. Dani og bjóöverja tekur 18 mánuði að ná regnbogasil- ungnum upp I. bað er allt að þakka hitanum og okkar góða vatni. — Eitthvað kostar nú svona fyrirtæki, Kristinn. — Við höfum áætlað, að eldis- húsið á öxnalæk kosti u.þ.b. 20 milljónir. — bað er dýrt hobbí. — betta er nátturlega orðið meira en hobbi, og það er verst, hvað maður hefur litinn tima til að sinna þessu áhugamáli. Auðvitað er ég ekki einn I þessu, við höfum nokkrir saman stofnað um þetta fyrirtæki, sem heitir Tungulax hf„ og út frá þessu er búið að stofna fóöurverksmiðju og allt hreint. Eldisstöðin á Keldum var byggð 1960, stöðin i Tungu I Landbroti komst i gang i fyrra, og öxnalækjarhúsiö verður vonandi komið i gang, áður en langt um liður. bað er hins vegar bara einn liöur i keðjunni, næst dreymir okkur um aö koma upp sjóeldisstöð, rækta lax i stórum tjörnum, og við höfum alveg ákveöinn stað i huga, Reykja- nesið. bar er hlýr sjór og nægur 46. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.