Vikan - 08.08.1974, Qupperneq 5
Konan hefur miklu hlutverki aö gegna sem veiðidýr i bókmennt-
um, málaralist og i kvikmyndum. Fyrirmyndirnar eru bæði sótt-
ar i sögur og raunveruleikann. Glöggt dæmi þar um eru kvenna-
burin og nauðganirnar, sem krydda morgunverð dagblaðales-
enda. Konan, sem er bráðin, styrkir karlmennskutilfinningu
þess, sem bugar hana. Og þeir, sem engu slíku státa af, dreymlr
um það i kvikmyndahúsum að vera i hlutverki kynorkumikla
apans King-Kong. Við tslendingar höfum enn ekki fengið að sjá
King-Kong i kvikmyndahúsum hér á landi, en margur landinn
hefur sézt læð'ast um i vissum hverfum Kaupmannahafnar I
þeim tilgangi einum að fá að sjá persónur i ætt við þennan ágæta
apa.
...og látið hana dansa.
Á þeiin frjáislyndu tlmum, sem við liíum á, er nektardans allt að
þvi sjálfsagður hlut. Nekt er seld i fjöldanum öiium af timaritum
og blöðum og I auglýsingumkog á sama hátt er reynt að draga
gesti að veitingahúsum með fáklæddu kvenfóiki. Þaö er meira að
segja fariö með nekt i sýningarferöalög eins og sjá má á mynd-
inni. Þessi mynd er einmitt gott dæmi um það hvað konan er I
hugarfylgsnum fjöida karlmanna: hiutur.
... lika á skrifstofunni.
Einkaritaraskritlur, sem eru
jafnheimskulegar og þær eru
vinsælar eru allar á einn veg:
Velritunarstúlkan hefui* meiri
barm en greind og fær greitt
cftir liigun sinni en ekki starfs-
hæfni. ,,Sé litið á vöxt konunn-
ar sézt, að hún cr hvorki fallin
til likamlegra né andlegra af-
kasta”. skrifaði heimspeking-
urinn Schopenhauer á 1!). öld.
Einkaritaraskritlan til vinstri
er frá þvi I ágúst 1973.
32. TBL. VIKAN 5