Vikan


Vikan - 08.08.1974, Síða 24

Vikan - 08.08.1974, Síða 24
HENRY FONDA Hver kannast ekki við Henry Fonda og börn hans Jane og Peter? Henry Fonda er farinn að nálgast sjötugt, en hann er kvæntur konu, sem er innan við fertugt. Hann litur lika ekki út fyrir að vera mikið eldri en fimmtugur og er enn i fullu fjöri og sistarfandi. Mosagrænn Cadillac ók hratt yfir eyðimörkina I Nýju-Mexikó fagran sumarmorgun fyrir skömmu. Ákvörðunarstaðurinn var borgarrústir, þar sem kvik- mynda átti morðatriði i kvik- mynd. Moröinginn sat órakaður i aftursætinu, hár hans er lítið eitt farið að grána i vöngum, en augun eru arnhvöss og hann er teinréttur i bak og engum dytti i hug, að hann á sextiu og átta ár að baki sér. Það er skemmtilegt aö virða Henry Fonda fyrir sér á þessum slóðum, þar sem maðurinn og jörðin verða eitt, runnin saman i eina sál og eina skapgerð. Ef þessi grannvaxni en harðgerði maður stæöi andspænis sinum nánusta i lifinu — -fimm eiginkon- um, dóttur, sem er ein um- deildasta kona í heimi og syni, sem lika er mjög umtalaður, væri samt jafnvægi á milli hópanna. Þessi leikari, sem kannski er sá hæfasti, sem Bandarikin hafa nokkurn tima átt, býr yfir slikum persónutöfrum. Henry Fonda lýsti einu sinni þeirri óöryggistilfinningu sem fylgir leiklistinni þannig, aö af- lokinni hverri kvikmynd, væri hann sannfæröur um, aö leikferli sinum væri lokið. En Fonda hefur ekki þurft að kvarta undan verk- efnaskorti upp á slðkastið. Á slöustu tveimur árum hefur hann leikið í fjórum kvikmyndum, leikið á sviði I einu leikriti og sett annað á sviö, verið flugmaður I sjónvarpsmyndaflokki og leikiö I fjöldanum öllum af sjónvarps- auglýsingum. „Leikari veröur að gera næst- um hvað sem býðst,” segir hann, ,,og ég hef ekkert á móti þvl að leika I auglýsingum. Reyndar held ég að góð auglýsing sé miklu hollari leikara en slæm kvik- mynd. Auk þess hafa peningarnir sitt aö segja.” Fonda hélt upp á sextlu og átta ára afmæliö sitt á Italíu, þar sem hann lék I Ash Wednesday á móti Elizabeth Taylor. „Fonda viltu hætta að tala um aldur þinn?” ávltar Shirlee kona hans hann I léttum tóni. HUn er einkar aðlaðandi kona á fertugs- aldri. HUn er bUin aö vera gift Fonda I átta ár og bjó meö honum I tvö ár, áður en þau giftust. „Heyrðu, Shirl, ég ræð bara ekki við það,” svarar hann með hreim, sem einkennir þá, sem upprunnir eru I Nebraska. „Mér llður svo vel. Mér llður eins og strák á mótorhjóli.” „Fonda,” segir hUn ákveðin. „Ef þU hættir ekki að tala svona, verðuröu aftur aö fara að leika elskhuga.” Meðan á töku Ash Wednesday stóö sagði Elizabeth Taylor Shirlee, að hUn ætti alltaf erfitt með að gráta I kvikmyndum. HUn varð meira að segja aö beita alls konar brögðum I lokaatriðinu I Hver er hræddur viö Virginiu Wollf? En ekki, þegar hUn sá Henry Fonda aftur eftir langan tima. „Ég leit I þetta andlit,” sagði Taylor, „þetta fallega og hræðilega dapra andlit og ég réði ekkert við grátinn.” Það hlýtur að vpkja forvitni hvernig maður, sem er aö nálgast sjötugt, fer aö þvi að halda sér svona ungum. „Fyrir nokkrum árum var gerð aðgeröá augunum á mér og hárið á mér er ekki svona dökkt. Það var dekkt fyrir þessa kvikmynd. Og læknar mlnír rannsaka mig nákvæmlega einu sinni á ári. Fyrir fáeinum átum tók ég heil ósköp af vitamlni — átján tegundir með hádegismatnum minnir mig. Muniö þiö, þegar Jane var tekin föst og ekki hleypt inn I Bandarlkin frá Kanada? HUn var ákærö fyrir að vera með eiturlyf I fórum slnum. Ég var alltaf að taka sömu tegundir af pillum og þeir tóku af henni. — Ég geri engar leikfimisæfingar, af þvl aö ég er mesti stirðbusi. Eina eiginlega llkamsræktin, sem ég stunda, er þegar ég dvelst I New York og geng milli sýningasal- anna við Madison Avenue.” Sagt er, að meö fimm oröum megi telja upp allt þaö, sem Henry Fonda telji nokkurs vert, og kannski fer bezt á þvl að telja þau upp I stafrófsröö: börn, eigin- kona, garðrækt, málverk og vinna. Einu sinnig hliöraði Henry Fonda sér hjá þvl aö lesa nokkuö af þvl sem blööin skrifuöu um börn hans Peter og Jane, þvi að I þeim klausum var honum alltaf kennt um það, sem aflaga þótti fara — hann var misheppnaöur faöir, hæfileikar hans voru mjög takmarkaöir og hann unni börn- um sinum ekki vitund.... „Margt af þessu tók ég mjög nærri mér,” segir Fonda og nokkurrar reiöi kennir I rödd hans. „En ég geröi mér vel ljóst, að krakkarnir voru uppreisnar- gjörn og voru að reyna að finna sjálf sig. Og um leiö losnuöu þau undan áhrifum minum. Ég er svolitið sakbitinn vegnabernsku þeirra, en ég gerði hvað ég gat til að veita þeim gleðileg uppvaxtar- ár. Peter sagöi einu sinni frá þvl I blaðaviðtali, að ég hafi látiö hann afskiptalausan, þegar hann var litill drengur. NU hefur þessi hrappur yfirgefið konu sina og börn og býr um borö I báti. Mér þætti gaman aö vita, hvernig hans börnum líöur.” En Fonda viðurkennir hæfileika Peters til aö gera kvikmyndir. „Ég man eftir þegar ég horföi á skólaleikrit, sem sonur minn lék I. Hann stóð sig hreint ekki vel og ég bjóst ekki við þvl, aö hann myndi leggja Ut á þessa braut. NU er hann með handrit, sem hann vill fá mig og Jane til að leika og hann ætlar að stjórna. Þá á ég að hlýða fyrirmælum sonar mlns. Ekki svo að skilja, aö hann viti ekki miklu meira um tæknilega hlið -kvikmyndunar en ég mun nokkurn tlma vita.” Fonda er áreiöanlega eini afinn i Los Angeles, sem stundum fær heimsókn fimm ára gamallar dótturdóttur, sem ber kröfu- spjöld. HUn heilsar afa slnum glaðlega og bætir við kveöju- orðin: Power to the People! (Valdið til fólksins.) Þaö er Shirlee, sem sér um aö- dáendabréf manns slns. En Henry Fonda fær lika skamm- arbréf —- sum eru svo illkvittin, að Shirlee getur ekki á sér setið að rlfa þau I smátt. „Aður byrjuöu bréfin oft svona: Enginn getur gert aö þvi, hvernig dætur hann á og ég dáist aö þér þrátt fyrir Jane. En nU.er al- gengt, að bréfin séu eitthvað á þessa leiö: Ég dáðist aö þér sem leikara og sem manni, en ekki lengur. Þú hlýtur sjálfur aö vera mesti svikahrappur Ur þvl að þU átt dóttur eins og Jane.” En Fonda stendur á sama. Hann er frjálslyndur sjálfur og umber ádeilu Jane — kannski hann sé sammála henni um eitt og annaö. „Sambandið milli mln, Peters og Jane er mjög gott núna,” segir hann. ,,Viö erum saman öllum stundum; þegar við getum. Og þegar viö erum saman, eru frjálsar umræður. Við rlfumst heil ósköp. Ég er vanur að segja við Jane, að hUn fari of geist I sakirnar, þvi að fólk sé ekki vant henni eins og ég er.” Þegar Fonda sá dóttur slna leika I Klute fyrir nærri þremur árum, var hann ekki I neinum vafa um, að hUn myndi vinna til Óskars verðlauna. „En ég óttaöist uppátæki henn- ar við verölaunaafhendinguna. Ég var hræddur um, að hUn myndi nota tækifærið til þess að fara að ræöa stjórnmál. Jane kom hingaö til okkar og dvaldi hérna I tvo eða þrjá daga, áður en af- hendingin fór fram og hUn sagöi mér, að samstarfsmenn sinir leggðu mjög hart að henni að halda ræðu á móti Vletnam- strlöinu við athöfnina. Ég ræskti mig og lét hana hafa þaö: „Jane, þér er sýndur mikill heiöur og sá mesti sem leikara er nokkurn tima sýndur og þaö yrði þér aö- eins til vansæmdar aö fara aö prédika viö afhendinguna.” Nóttina, sem Óskarinn var af- hentur, sat Fonda og horföi á sjónvarpsUtsendinguna hjá vin- um sínum. Þegar nafn Jane kom upp Ur umslaginu, gat hann hvorki hrært legg né lið. „Ég hef aldrei á ævi minni verið eins stjarfur,” segir hann. „En þegar hún sagði aðeins: Ég þakka. Ég á ýmislegt ósagt, en þetta er ekki rétti staöurinn til þess að segja það, var ég stoltasti faöir i heimi.” „Ég hef aldrei sagt margt um Jane og ég skil ekki fólk, sem ætlast til þess að ég áfellist hana. Hún lifir sinu llfi, sem er ekki mitt lif, og hugsanir okkar og skoðanir falla oft ekki saman. En ég viröi rétt hennar til þess að segja þaö, sem henni býr I brjósti, ég viröi hana sjálfa og ég ann henni mikið.” Nú búá þau Shirlee og Henry Fonda I Bel-Air, þar sem Fonda stundar mikla grænmetisrækt. Hann ræktar næstum allt, sem ræktanlegt er I S-Kaliforníu, að eigin sögn, og kveðst hafa mikla ánægju af ræktuninni. A löngum leikaraferli hefur Henry Fonda haldið flestum frægustu leikkonum heimsins I faðmi sér. Og hann á margar minningar um þær. „Bette Davis var einstök kona, en ég held okkur hafi tekizt bezt upp I Jezebel. Einu sinni meöan á töku myndarinnar stóð, sagði hún frá þvl, að hún væri ástfangin af mér. Ég vildi, að hún hefði sagt satt.” „En eftirlætið mitt er samt Stanwyck, Barbara Stanwyck. Það gat enga indælli að leika á móti. Hún var jafnheilsteypt i einkalifinu og I kvikmyndunum. 24 VIKAN 32. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.