Vikan


Vikan - 08.08.1974, Blaðsíða 35

Vikan - 08.08.1974, Blaðsíða 35
SKOGINN Framhalds saga 7 hluti nýja fjölskyldu alveg eins og hún mamma. — Á hún aðra fjölskyldu? — Já, ég á tvo hálfbræður. Þeir eru báðir i háskóla. Hún gekk um gólf. — Ég sé, að þú átt nógu margar kojur. Það er ágætt, afþvi að ég er komin fyrir fullt og allt. Brosið ljómaði um allt andlitið — Það er að segja, ef þú vilt lofa mér að vera. — Carol... Carol... Hann endur- tók nafnið aftur og aftur. Viktor hafði gengið að elda- vélinni og kveikt upp. Hann sagði: — Heyrðu, Elgur, hún þarf að fá eitthvað að borða. A ég að malla eitthvað? Elgur sneri sér við: — Nei, það verð ég að gera. — Nú, hversvegna ekki að lofa mér að gera, það, sagði Carol. — Ég kann það. En ég hef aldrei notað eldiviðarvél, en ég gæti haft gaman af þvi. Hún gekk að vélinni, en stóð þá kyrr eins og i vandræðum. Faðir hennar snerti við handleggnum á henni, næstum hræddur. Far þú út. Ég skal sjá um þetta. Og svo þarf ég að raka mig. Ég hlvf að lita út eins og ... villimaður. Hann strauk hendinni yfir andlitið. Hann hafði ekki rakað sig siðan hann byrjaði á siðasta fylliriinu. Farðu út. Ég þarf að búa um rúmið og hafa skyrtuskipti. Hann hló með sjálfum ser. — Það er nú ekki á hverjum degi, sem maður fær dóttur sina i heimsókn. Hún gerði sem hann bað og Viktor fór út með henni. Og hann, faðir hennar, hafði ekki af henni augun fyrr en hún var horfin út um dyrnar. En svo gekk hann til dyranna og horfði á hana. Viktor var við hliðina á Carol, og benti og talaði. Það var auðséð, að hann var að lýsa fyrir henni um- hverfinu hérna, vatnalilju- breiðunum þar sem áin rann inn i vatnið og hvar bezt væri að fiska á morgnana — skógunum þarna i kring og lengst burtu var veður- barða Latimerhúsið. Grönn eins og lilja, hugsaði hann. Sjálfur hafði hann flúið frá ástinni, en ástin hafði leitað hann uppi aftur. Með hraða, sem hann átti annars ekki til, tók hann til i kof- anum, rakaði sig og fór i fötin, sem hann hafði verið i þegar hann lagði af stað til bæjarins. Svo þegar maturinn var tilbúinn, fór hann út i dyrnar til að kalla á Carol og Viktor. En þau var hvergi að sjá. Hann gekk niður að vatninu og kallaði á hana. Honum var svarað utan úr skóginum, og svo komu þau Viktor i ljós. Þegar hún kom til hans. sagði hún: — Við sáum broddgölt. Hann var svo stór, að ég hélt að hann væri björn. — við eigum einn björn fyrir nágranna, hérna inni i kjarrinu. Við rekumst einhverntima á hann. Hún leit á hann — Þú ert eins og einhver allt annar maður núna, svona skegglaus. Mamma sagði, að þú værir laglegur. Og þar hafði hún rétt að mæla. Viktor stóð hjá þeim og hlustaði á, brosandi. Carol lyfti höndunum, eins og i vandræð 'm og brosið hvarf af henni — Ég vil vera hérna kyrr, en ég held ekki að þú kærir þig neitt um mig. Ég vil læra að þekkja þig. Þannig ætti það Hka að vera. — Mig hefði ekki einusinni getað dreymt, að þú mundir nokkurntima koma. Hún hló og kreisti á honum handlegginn — En ég kom nú samt. Eitthvert okkar varð að finna þig. Mamma gat það nú ekki vel, og Stebba er i Manila með manninum sinum. Hann er i flughernum. Þau eiga strák, sem heitir Mack. Þú vissir ekki, að þú værir orðinn afi, var það? — Þykir henni mömmu þinni vænt um þennan mann sinn. Carol leit út á vatnið og svaraði lágt: — Já. Hann er góður maður og hefur verið okkur Stebbu faðir. — Þá er hann beti;i en ég, og á alla ást ykkar skilið. Elgur sneri sér við og gekk á undan þeim inn i kofann. Svo sátu karlmennirnir tveir við dúklaust boröið og hlustuðu á Carol segja frá þvi, hvernig hún hefði komizt til* Fleming. Móðir hennar og stjúpi höfðu farið til Evrópu, til að vera þar i heilt ár, að minnsta kosti. Hann var i ein- hverri stjórnarskrifstofu og hafði fengið þessa sendiferð fyrir at- EGE GÓLFTEPPIN DÖNSK GÆÐAVARA I MIKLU URVALI VEGGFÓÐUR ÚRVAL GÓLFDÚKA MALNINGARVÖRUVAL 32. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.