Vikan


Vikan - 08.08.1974, Page 36

Vikan - 08.08.1974, Page 36
ÞEGAR ÉG ER HORFINN í næsta blaði hefst ný og æsi- spennandi framhaldssaga, sem gerist á hásléttu Andalusiu, þar sem stigamenn hafast við i fjöll- unum og ráðast á vegfarendur. Árið 1790 ræðst ung, brezk stúlka til aðalsfjölskyldu, sem þarna býr og hlutverk hennar er að kenna tveim ungum heimasætum. Eins og gefur að skilja er þetta mikil lifsvenjubreyting og hún lendir i ýmsum ævintýrum. VEGG-OG LOFTKLÆÐNINGAR Grensásvegi 5—P.O.BOX1Q85 Slmar85005 - 85006 pÍJfll 1 (I i v llllNlDU L 1 ;V ' ' ’ uxj beina afa hennar sem var fyrr- verandi öldungadeildarþing- maður. En á siðustu stundu hafði hún sagt — Ég fer ekki neitt. Nú ætla ég að finna hann pabba minn. Og möðir hennar hafði sagt: — Já, það ættirðu að gera. Þvi hafði hún beðið þangað til þau voru farin og þá náð i lestina til Fleming. Þegar máltiðinni var lokiö, sagði hún við föður sinn: — Hvað varstu að gera áður en ég kom hingað? — Fella tré og búta eldivið. — Get ég nokkuð hjálpað þér? Hann horfði á langar og hvitar hendurnar á henni, sem voru eins og á Lily — Þú getur komiö og horft á. — En ég vil hjálpa til. Viktor stóð upp um leið og þau. Það var biðjandi svipur á honum — Kom þú lika, sagði Carol við hann — En þú hefur vist bara ekkert sérlega gaman af þvi. — Jú, ég vil gjarnan koma með ykkur, sagði hann feimnislega. Þau gengu svo i halarófu þangað, sem hann hafði verið að höggva Þar lágu mörg tré, sem búið að að afkvista, en greinarnar lágu i hrúgum á við og dreif.<Elgur lét það eftir dóttur sinni að fá að taka i sögina móti honum. — Það er þreytandi, en það er gaman af þvi. Við skulum saga. Svo hömuðust þau þangað til sólin fór að siga. — Hérna er eins og i kirkju, sagði Carol — Þessi grenitré. Hún leit allt kring um sig. — Ég er farin að skilja yður, hr. Thoreau Augu þeirra mættust: — Nei , liktu mér ekki við hann. Ég likist meira honum Simoni á súlunni. Hún stóð kyrr með forvitnisvip á andlitinu, eins og hún skildi ekki, hvað hann var að fara. En svo breikkaði á henni brosið og augun ljómuðu. — Ég áttaði mig ekki strax á þessu. En þú hefur bara valið þér skemmtilegri stað en hann Simon á súlunni sinni. — Viktor lagði frá sér öxina — Ég verð að fara. Það verður oröið dimmt áður en ég rata i stiginn. Hún sagði: — Ég ætla að ganga með þér heim að kofanum, Vikki. Hún stanzaði og horfði á föður einn. Getur þú ekki komið strax, pabbi? — Ég ætla að leggja eitt tré að velli fyrst, sagði hann. Hann beið þangað til þau voru horfin fyrir horn. Hann hóf ekki öxina á loft, heldur settist á trjá- bol. Hann þyrfti að hafa ofurlitiö tóm til að átta sig á þessu, sem skeð hafði. Einhvernveginn voru þær komnar hingaö allar þrjár, Lily og telpurnar, voru hérna allarsamankomnar I Carol og ást hennar. Flótta hans var lokið og nú var engin þörf lengur á aö taka til fótanna. Það var komið kvöld i skógin- um, en þegar hann kom niður að vatninu gat hann grillt ofurlitla birtu milli trjánna. Hann sá Carol vera að synda i vatninu. Þegar hann settist niður á bryggjuna til að horfa á hana, brosti hún til hans. — Ég varö að þvo af mér sagið. Hún steig upp á bryggjuna og strauk vatnið úr sundbolnum sinum. — Viltu sjá. Ég er ekkert nema beinin, alveg eins og þú. Engar boglinur eins og á mömmu og Stebbu. Hún settist hjá honum og studdist á oln- bogana og teygði frá sér fæturna. — Ég verð að skrifa henni og segja, að ég hafi fundið þig. En hvar er hægt að koma bréfi i póst hérna? — Viðgetum fariðinn i bæinn. En það leggst einhvernveginn i mig, að hann Viktor komi hingað á morgun. Hún hló feimnislega. En svo varð munnurinn að breiðu brosi. — Pabbi, þegar hann Fenning kynnti mig honum Viktor, þá glápti ég bara. Ég hef aldrei á ævinni séð jafn laglegan pilt. Gylltan og platinuhvitan. Og svo vel vaxinn. Rétt eins og eitthvað, sem mann dreymir en fínnur aldrei. — Það er allt i lagi með hann Vikka. Eða var að minnsta kosti þangað til að kona þarna i bænum — þú hittir hana seinna — fór að segja honum, að hann ætti að fara i kvikmyndirnar. Nú er hann orðinn allur öfugsnúinn. Veit ekki, hvort hann er heldur bjáni eða einhver hálfguð. En hann jafnar sig ef hún bara getur látið hann i friði. — Er hún falleg? — Svo segir fólk. En i minum augum er hún hreinasti hænsna- matur. Hann virðist almennilegasti piltur. — Það er hann sjálfsagt. En hann er að reyna að vera eitthvað sem fólki finnst hann ætti að vera, en ekki það sem hann er. Hún skrifaði bréfin sin um kvöldið við lampaljósið, meðan faðir hennar sat á rúmstokknum, og fylgdist með hverri hreyfingu hennar. Eins og Elgur hafði spáð, kom Viktorþarna næsta morgun. Þau Carol fóru svo á bátnum til aö sjá sig um og veiða fisk. XIII. I augum Rósu var hun einmana og yfirgefin og tók ekki eftir árs- tiðaskiptunum. Hún var búin að búa sér heim, sem var alsvartur og fullur gremju. Hún vildi ekki fara á fætur á morgnana, fyrr en hún vissi að maðurinn hennar væri farinn út úr húsinu. Og hún heimtaði að láta bera sér kvöld- matinn áður en hann var kominn heim. Hún talaði ekki við hann nema einstaka snöggt og hörku- legt orð. Hann kvaldist og þetta var eina huggunin á þessum lif- vana stundum. Viktor var hættur að koma og þvi var hún fegin. Hún óskaði einskis nema fá að vera i friði I þessum vetrardala einverunnar. Einn morguninn hafði maðurinn hennar sagt i einhverju gleðikasti: — Gettu hvað ég veit, Rósa. — Ég er ekkert fyrir neina gátu- leiki, sagði hún. Hann hélt áfram rétt eins og hann heföi ekki heyrt til hennar: — Hann Elgur er búinn að fá dóttur sina hingað. Hún leitaði 36 VIKAN 32. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.