Vikan


Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 12

Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 12
Ertu að byggja? Viltu breyta? Þarftu að bæta? hlm GRENSASVEG118,22,24 SÍMAR: 32266-30280-30480 <3 Dósturinn Svar til „einnar i svörtum fötum". Ósköp er vinur þinn tilfinninga- næmur. Hann heföi nú getað sannaö þér sitt rétta eöli, ef hon- um heföi veriö þaö I mun. Mér finnst þú hafa komið ágætlega fram viöhann og sýnt honuni þinn hug vel og rækilega, og senniiega hefurhann einhvern áhuga á þér. Hefuröu nokkuö betra aö gera en ,,aö pæla í honum”? ,,Þau halda hvort ööru ungu og fjörugu og bera viröingu hvort fyrir ööru”, er sagt um Ijón og hrút. Sál gleymdist t 39. tbl Vikunnar, sem út kom 26. september s.l., svaraöi Pósturinn fyrirspurn um leiklistarskóla á tslandi og nefndi ekki aöra skóla en rlkisleiklistar- skólann. Þaö gleymdist sem sé algjörlega aö benda á leiklistar- skóla SAL, sem samtök áhuga- fólks um leiklist hefur rekið af miklum dugnaöi og hefur nú nýlega byrjaö þriöja starfsárið. Þaö voru nokkrar áhugamann- eskjur um leiklist, sem tóku sig saman um stofnum leiklistar- skóla til þess aö bæta úr þvl ófremdarástandi, sem rlkt haföi um nokkurt skeiö I þessum málum. EHsabet Þórisdóttir er ein þeirra, og hún sagöi okkur, aö starfiö væri I fullum blóma. Leiklistarskóli SAL hóf þriöja starfsár sitt 1. október s.l. og er til húsa aö Hótel Vlk. Skólinn starfar I þremur bekkjardeildum meö nær 50 nemendum, og stunda 1. bekkingar sitt nám á kvöldin og á laugardögum, en 2. og 3. bekkur eru I dagskóla frá kl. 9-5 alla virka daga. Eina skilyröiö fyrir inngöngu I skólann er, aö viðkomandi hafi náö 18 ára aldri, og engin bein próf eru tekin I skóianum. Kennarar gefa hins vegar umsögn um nemandann tvisvar á ári, og hann veröur aö sýna framfarir og þroska til þess aö teljast hæfur til áframhaldandi náms i skólanum. En um frekari upplýsingar varöandi starfsemi skólans er áhugafólki bent á aö hafa samband viö Ingibjörgu Briem á Hótel Vik kl. 9-12 alla virka daga. Ruglingur i grein 1 39. tbl. varö leiðindaruglingur viö umbrot einnar greinarinnar, ,,Er hávaðinn aö æra okkur?” þar sem upphaf hennar lenti neöarlega I siöasta dálki á bls. 31, svo aö vilji menn hafa upphaf og enda á réttum stööum, þá byrja þeir I 4. linu aö neöan I slöasta dálki á bls. 31, lesa út siöasta dálk á bls. 32, og framhaldiö er svo á bls. 30. Einfalt, en engu aö siöur leiðinlegt, og lesendur eru beönir velviröingar. Langar á sjóinn Háttvirta Vika, Póstur! Ég er aöeins 14 ára og langar til þess aö spyrja spurninga. 1. Hvaö þarf ég að vera gömul til þess aö fara á sjóinn? Þarf sér- staka menntun? 2. Ég hef góöa rödd og langar mjög til þess aö komast á samn- ing viö hljómsveit. Hvernig fer ég aö þvi? Og er þaö hlægilegt? 3. Hvar er hægt að læra á trommur? 4. Er hættulegt aö vera meö beinkröm? Hvernig er þaö lækn- aö? 5. Ertu karl eöa kona? 6. Breytiö þiö oft bréfum? 7. Og þetta gamla og góöa: Hvernig er skriftin og stafsetn: ingin? 8. Hvernig eru krabbinn og tvi- burarnir i skapi og ástum? Vona, aö þiö birtiö þetta bréf (sleppi ruslakörfunni), þvl þessar spurningar eru mér næst hjarta. Veriö þiö svo blessaöir, ég bíö eftir svari. H.E. 1. Þarna er nokkuð óljóst oröuö spurning. Aldurstakmark og menntunarskilyröi hljóta aö fara nokkuö eftir þvl, hvaö þú ætlar aö gera á sjónum. Ég get þess vegna ekki svaraö þessu I stuttu máli. 2. Þú veröur bara sjálf að koma þér á framfæri viö einhverja hljómsveit. Hvernig þú ferö aö þvi? Ég held þú veröir bara aö sannfæra hljómsveitarstjórann um þaö, aö þú hafir góöa rödd, og ef þaö tekst, hlýtur framhaldið aö vera einfalt. Hlægilegt? Ja, þá hafa margir gert sig hlægilega um ævina. Blessuö, vertu ekki aö iþyngja þér meö spéhræöslu, þú kemst aldrei langt meö þvi móti. 3. i tónlistarskóla. Auk þess þjálfa lúörasveitir slna eigin trommuleikara. 4. Beinkröm er hörgulsjúkdóm- ur, sem var algengur hér áöur fyrr, þegar almenningur bjó viö skortá réttum fæðutegundum. Nú til dags er þessi sjúkdómur naumast til, svo ég get ekki I- myndað mér, aö þú þurfir aö hafa áhyggjur af honum. 5. Þú ert ekki sú fyrsta, sem spyrö um kynferöi Póstsins, en þaö er og veröur hernaöarleynd- armál ritstjórnar. 6. Merkingu bréfa breytum viö ekki, en stafsetningu þarf einatt aö lagfæra, svo og stllinn, ef hon- um er mjög ábótavant. 7. Þetta er svokölluö prent- skrift, og hún er mjög læsileg. Þaö voru a.m.k. 8 stafsetningar- villur I bréfinu þlnu og þaö er næstum þvl 8 villum of mikiö hjá 14 ára stúlku. 8. Of langt mál til þess aö svara þvi á þessum vettvangi. En haf- iröu meint, hvort þessi stjörnu- merki eigi vel saman, þá er þvi til aö svara, aö sambúö þeirra ætti aö geta gengiö, en þó ekki átaka- laust. 12 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.