Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 44
Gömul föt - nýtt
tískufyrirbrigði
Síðustu 2—3 árin hefur gamla
tizkan-haft mikil áhrif á fram-
leiðslu tizkufatnaðar. Hönnuðir
hafa sótt hugmyndir sinar aftur i
timann, og má finna áhrif
frá hvaða tima sem er siðustu 60
árin. .Siðan hippatizkan var vin-
sæl hafa vissir hópar ungs fólks
sótzt eftir að klæðast gömlum og
notuðum fatnaði. Hefur það
einkum verið fólk, sem andúð
hefur á gróðabraski tizkuverzl-
ananna. 1 New York, London og
Kaupmannahöfn hafa viða skot-
ið upp kollinum sérverzlanir
með gamlan fatnað, sem um
þessar mundir er alger tizku-
dilla. Það er gamall, aflóga fatn-
aður, sem gerður hefur upp,
þveginn eða hreinsaður og oft
litillega breytt. Yfirleitt eru
breytingarnar þannig, að aðeins
eitt stykki verður til af hverju,
og geta þvi allir fengið eitthvað
við sitt hæfi. Hér eru myndir af
gömlum fatnaði, sem finna má i
þessum verzlunum.
eva
VILHELMSDÓTTIR
TÍSKUHÖNNUÐUR