Vikan


Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 30

Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 30
...Ég veit ekki hvor okkar varð meira undrandi, hún eða ég, þeg- ar viö stóöum skyndilega augliti til auglitis i dyragættinni. Ég haföi tæplega búist við þvi, aö hún væri ennþá ráöskona hjá pabba eftir öll þessi ár, en ég þekkti hana samt strax, þó að það væru tiu ár frá þvi aö viö höföum sést siöast. Þá stóö hún þarna, á þessum sömu þrepum og grét, meö beinabera handleggi um hálsinn á mér, og tárin láku niður á kápuna mina. Þaö var daginn, sem ég fór aö heiman. Ég haföi ekki talaö um þaö við nokkurn mann, sist af öllum föður minn, en ungfrú Block dró mig aftur inn i forstofuna og hvislaöi að mér: — Faröu ekki á þennan hátt, Sue. Faöir þinn veröur svo leiður. Leiöur? Ég hló hæðnishlátri framan i ungfrú Block, þegar ég heyröi þetta, og nú langaði mig til aö gera þaö sama. Hún var nú tiu árum eldri, en alveg eins og þegar ég sá hana siöast. Sami hrossasvipurinn, sömu litlausu augun, sem voru svo náin, og sömu stirðlegu hreyf- ingarnar, en hárið var hvitara. Hún hrökk við, þegar hún sá, hver þetta var. Hún hörfaöi aftur á bak nokkur skref og starði á mig. Hún þekkti mig strax, þótt ég heföi veriö hálfgerö krakka- nóra, þegar ég fór að heiman. Ég setti töskuna frá mér á gólf- iö og fann fyrir skammbyssunni, þegar hún kom viö lærið á mér um leiö og ég beygöi mig. — Og pabbi? sagði ég. — Hvernig liöur pabba? Hún stóö þarna ennþá, meö hálfopinn munninn, og góndi á mig i skininu frá loftljósinu. — Prófessornum líöur ekki vel, sagöi hún lágt. — Hann fékk heilablæðingu og er að nokkru leyti lamaöur siöan... það eru handleggirnir, sem eru lamaöir. En honum er nú samt aö skána. — Hann er þá ekki I llfshættu? — Nei, en hann er sofandi núna. Hún leit I áttina aö lokuöum dyrunum, sem lágu aö bókaher- bergi og svefnherbergi pabba. Þaö var llklega gamla hjúkrunar- konan, sem kom upp i henni, er hún vildi ekki láta trufla svefnró hans. Ungfrú Block hefur nefni- lega ekki eingöngu hugsaö um hússtörfin fyrir hann I öll þessi ár, frá þvi aö mamma dó, hún hefur llka veriö hjúkrunarkonan hans. Nú fór hún aö taka viö sér. Hún lagöi þessar stóru krumlur slnar á axlirnar á mér og horföi I augu mln. • — Þú ert orðin breytt, Sue... en samt ekki ýkja mikið, háríö er jafn sitt og rautt og það var. Já, pabbi véröur bæöi hissa og glaö- ur... 'Ég fór úr sumarkápunni og hengdi hana upp, hlassaði mér svo niöur I skinnstólinn I forstof- unni, sem ég var vön aö kalla gestastólinn, þegar ég var barn.. Mér fannst hann reyndar vera miklu minni núna. Þegar ég var barn, haföi ég haft gaman aö þvi aö leika mér I þessum stól og hafa hann fyrir skip. — Ég ætla aö llta inn til hans, sagöi ungfrú Block. — Biddu hérna, Sue. Ég verð að búa hann undir komu þina. Það gæti riðið honum aö fullu.... Ég hallaði mér aftur á bak i stólnum og lokaöi augunum. Ung- frú Block geröi þetta allt miklu flóknara. Ég fann fyrir óróleika, ég fann jafnvel fyrir kippum við augun. Ég kannaöist viö þau við- brögö, svo ég stóö upp og gerði nokkrar likamsæfingar. Það lag- aöi þessa kippi venjulega. Eftir nokkrar knébeygjur og hliöar- hopp, hætti ég, stóö kyrr og hlúst- aði. Þaö heyröist ekki nokkurt hljóö frá svefnherberginu. Herbergi pabba... Það voru nú tlu ár, frá þvl ég þrammaði út úr herberginu þvi. Þá fannst mér hann andstyggilegur, sköllóttur, þrjóskur og smámunalegur gam- all durgur. En ég var einkabarn hans og hafði sennilega ekki upp- fyllt þær vonir, sem hann haföi bundiö viö framtiö mlna. Hinn þekkti prófessor Lunden, geröi miklar kröfur til einkadótturinn- ar. Vegna einhverra afglapa var ég rekin úr skóla. Pabbi sendi mig þá til Englands, I von um að ég gæti lært eitthvað gagnlegt á stórri tryggingarskrifstofu. Ég fékk að visú töluveröa lifsreynslu þar, en ekki þá, sem hann haföi hugsað sér. Eftir mánaðardvöl þar hitti ég náunga, sem ég strauk með til Ameriku. Já, þaö geröi ég og án þess að spyrja pabba. Hann heföi aldrei veitt sitt samþykki til þess. Hann heföi heldur ekki viðurkennt það starf, sem ég stundaði, og þvi siöur þá vini, sem ég eignaðist. Siðan hafði ég ekki komið heim... ekki fyrr en nú i dag. Þaö voru alltaf þessir peningar. Ef þér finnst lifið blasa við þér, þá leynist alltaf eitthvaö á næsta leiti: Ég haföi ekki haft heppnina meö mér slðustu árin. Ég var ó- heppin með vinnu, lika I hjóna- bandi. Svo varö ég slæm á taug- um og þurfti aö fara á sjúkrahús. Þar hefði ég eflaust verið ennþá, ef ég heföi ekki brugöið fyrir mig betri fætinum og stokkið út um glugga á vit frelsisins. Ég hikaöi lengi viö að skrifa pabba og biöja hann ásjár, biöja hann um peninga, þótt ég vissi, aö hann var raunar milljónamær- ingur. Ég skrifaöi mörg bréf, reyndi aö oröa þau sem best, en þau enduöu öll i ruslakörfunni. Svo frétti ég, aö hann hefði oröiö alvarlega veikur. Þá myndi ég kannski bráöum erfa bæöi húsiö og milljónirnar, ég á viö, ef hann heföi nú gefist upp á lifinu, já væri kannski dáinn. En hann dó ekki. Ungfrú Block hjúkraöi honum dag og nótt. Mánuöir liöu. Aö lokum skrifaöi ég bréfiö, betlibréfiö... „Elsku pabbi...” Hann svaraöi, hæversklega aö vfsu, neitandi. Bréfið var vélrit- aö. t hans augum var ég ekki lengur dóttir hans, heldur einhver manneskja I Ameríku, sem haföi fariöfram á fjárkröfur, sem hann haföi ekki hugsaö sér að sinna. Þess utan lét hann þess getiö, aö þótt ég kæmi I eigin persónu, myndi þaö ekki gefa neitt betri raun. „Faöir þinn”, stóö undir bréfinu. Skrifað með prentstöf- um. Einhvern veginn fann ég ekki ró i mínum beinum, eftir að ég fékk þetta bréf. Ég lá andvaka á nóttunni og hugsaöi út setningar og orö, sem ég ætlaöi aö nota I svarbréfi til hans. Ég reyndi að muna allt um hann, persónu hans og hugarfar, til ab geta verið nógu hvassyrt I svari minu, ég vildi helst særa hann með hverju oröi, hverri setningu. Ég sagöi aö hann heföi eyðilagt bæöi mitt lif og móöur minnar og að ég myndi ekki einu sinni hafa geð I mér til aö taka við nokkrum hlut frá hon- um, hvorki peningum né nokkru ööru. Ég stakk upp á þvi, að hann notaöi peninga sina, til að láta reisa sér minnismerki, stórt minnismerki úr sama efni og hjarta hans væri, nefnilega marmara. Ég geröi mörg uppköst af þessu bréfi, en ég sendi aldrei neitt bréf. Mér varð ekki rótt, fyrr en ég var búin að taka þá ákvörðun. að fara heim og sækja mina peninga. Klunnalegur skrokkur ungfrú Block birtist i gættinni að bóka- stofunni. — Hann er ennþá sofandi... Ég ætla að sitja hjá honum, þangað til hann vaknar. Þú biður hér á meöan. Við verðum að fara var- lega aö honum. — Ég bið, ég hefi nógan tima til aö biöa. Það yrðu ekki nein vandræði meö pabba. Húsið stendur af- skekkt, nokkuð langt frá veginum og billinn til reiðu rétt við dyrnar. En svo var það ungfrú Block. Ég hugsaöi með viðbjóði til hrossa- tannanna og beinabera skrokks- ins. Hennar herbergi sneri út i garðinn, svo það var um að gera aö loka öllum gluggum og hurð- um. Þaö var grafarþögn I húsinu. Ekkert heyröist nema tifið i klukkunni i bókaherberginu. Ó, hve vel ég kannaðist viö þetta hljóö, frá margra klukkutima lexiulestri þarna inni. Þetta var svo svæfandi hljóð, og oftar en einu sinni haföi ég dottað þarna yfir bókunum. En svo haföi ung- frú Block alltaf vakið mig, með þvl aö reka þurra og beinabera hönd I kinnina á mér til aö segja, aö þaö væri kominn háttatimi. Ég var komin I miklu léttara skap. Þetta hlaut að fara allt eftir áætlun. Glataöa dóttirin var svo sniöug, aö hún myndi ekki láta finnast nein fingraför. Heimilis- fang mitt myndi ábyggilega finn- ast I plöggum fööur mlns, og svo yröi mér tilkynnt um þennan sorglega atburö. Ég varö bara aö reyna að finna „betlibréfið” og koma þvl fyrir kattarnef. Ég varö aö gæta þess vel aö breiða yfir öll spor og allt, sem gæti vakiö grun. Vinnustofa pabba var viö hlið- ina á bókaherberginu. Huröin var I hálfa gátt, og ég læddist þangaö inn. Þaö var ekkert skritiö viö þaö, aö mann langaöi til aö llta 1 kringum sig á æskuheimili slnu, eftir svona margra ára fjarveru. Ég kveikti. A skrifborði pabba var stór mynd af móöur minni, meö lltinn ljóshærðan engil i kjöltunni, engil, sem var framtlð- arvon foreldra minna, Bréfamöppur pabba lágu lika á borðinu, snyrtilega merktar með rithönd ungfrú Block. Alls staðar varö maöur var viö anda ungfrú Block. Hún var ráöskona, hjúkr- unarkona og einkaritari. Perla meðal kvenna. 1 möppunni, sem var merkt einkamál, fann ég bréfiö. Ég varð eiginlega hreykin, þegar ég las þaö. Þaö var áhrifamikið bréf, örvæntingin skein úr þvi, en samt töluvert stolt. Undir þessu átak- anlega bréfi lá annaö bréf. Þaö var vélritað á hvitan pappir og undirritaö af mér. t þvl bréfi var sagt I stuttum og hrokafullum setningum, að ég væri oröin þreytt á að biðja hann ásjár,en að ég þyrfti þess heldur ekki lengur. Ég hefði verið heppin i viöskiptum undanfarið, þótt það væri nú reyndar með slikum brögöum, að hann, gamli fýlu- púkinn, myndi sennilega ekki vera hrifin af þeim aðferöum. Ég tilkynnti honum líka hátiðlega, að ég myndi hvorki nú eða siðar kæra mig um neitt af peningum hans og ætlaði að leggja á það mikla áherslu að gleyma þvi, hver væri faðir minn, ég ætlaði sannarlega að láta samband okk- ar fara I glatkistuna. Undir þetta furðulega bréf var ekki skrifað „dóttir þin, Sue”, eins og ég var alltaf vön að skrifa, heldur einfaldlega „Sue”, en það var sannarlega likt rithönd minni. Svo var lika dregið feitt strik undir nafnið, eins og til að á- rétta, að þetta væri endanlegt og mitt siöasta orð i okkar samskipt- um. Sem sagt, þetta var bréf, sem án efa hefur komið gömlum föður til að titra af bræði. Ég setti bæði bréfin á sama stað aftur, og nú sá ég, aö það heföi ekki mátt seinna vera, að ég leit- aöi heimahaganna. Ég gekk aftur fram I anddyrið og tók byssuna upp. Það gljáði á hana frá skini ljóssins. Ég var ekkert hrifin af þessum grip, þessvegna stakk ég byssu- skömminni aftur niður i töskuna. Ég hélt niðri i mér andanum og hlustaöi. Það heyröist hvorki stuna né hósti I húsinu. 30 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.