Vikan - 06.02.1975, Blaðsíða 19
Það varð löng þögn handan lin-
unnar og svo heyrðist hann hrópa
upp yfir sig .. þá var skellt á.
—0—
Ég held að þaö hafi veriö á
þriðja degi, að simskeytið barst
frá borg i Minneasota, undirritað
Henry C Gatz. Þar stóð aðeins að
sendandinn legði samstundis af
staðog hann baö um aö jarðarför-
inni yrði frestaö, unz hann kæmi.
Þetta var faðir Gatsby, alvöru-
gefinn gámall maöur, afar ósjálf-
bjarga og umkomulitill. Hann var
dúöaður inn i siðan og ódýran ull-
arfrakka i heitu septemberveðr-
inu. Hann sýndist spenntur og
augun voru á flökti. Þegar ég
tók við ferðatöskunni hans og
regnhlifinni, byrjaði hann að
klóra sér i þunnu og gráu skegg-
inu af þeim ákafa, að ég átti I
vandræðum með að koma honum
úr frakkanum. Hann var að
niðurlotum kominn, og fór ég þvi
með hann inn i tónlistarherbergið
og lét hann setjast, meðan ég
sendi eftir einhverju að borða. En
hann vildi ekki boröa og mjólkin
skvettist úr glasinu i skjálfandi
hönd hans.
— Ég las það i Chicagoblöðun-
um, sagði hann. — Það stóð allt
um það i Chicagoblöðunum. Ég
lagði strax af stað.
— Ég vissi ekki hvar ég gæti
náð til þin, sagöi ég.
Hann litaðist stöðugt um i her-
berginu með augum, sem ekki
festi á nokkrum hlut.
— Brjálaður maður, sagði
hann. — Hann hlýtur að hafa
veriö brjálaður.
— Kannski þú viljir dálitiö
kaffi? spurði ég.
■ — Nei, ég vil ekkert. Mér liöur
ágætlega nú, herra ...
■ — Carraway.
— Já. Mér liður ágætlega nú.
Hvert fóru þeir með Jimmy?
Ég fór með hann inn i borðstof-
una, þar sem sonur hans lá og
skildi hann þar eftir einan.
Nokkrir smádrengir voru komnir
upp i þrepin og gægðust inn i for-
dyriö, þegar ég sagði þeim hver
kominn væri, fóru þeir nauðugir i
burtu.
Aö skammri stundu liðinni lauk
herra Gatz upp dyrunum og kom
fram fyrir, — munnurinn var
hálfopinn og andlitið dálitið rjótt.
Úr augunum höfðu runnið fáein
tár. Hann var nú kominn á þann
aldur, þegar mönnum þykir
dauðinn ekkert ógnvekjandi
undur lengur, og þegar hann leit
nú í kringum sig i fyrsta sinn og
sá hæð og iburð gangsins og stóru
herbergjanna inn af honum og
herbergja inn af þeim, tók sorg
hans að gerast blandin lotningu
og stolti. Ég fylgdi honum til
svefnherbergis uppi á loftinu, og
meðan hann tindi af sér jakkann
og vestiö sagði ég honum að öllum
undirbúningi heföi verið frestað,
þar til hann kæmi.
— Ég vissi alls ekki hvernig þú
vildir hafa þetta, herra Gatsby...
— Ég heiti Gatz. Ég hélt að
' kannski vildir þú láta flytja likiö
vestur eftir.
Hann hristi höfuðið.
Framhald i næsta blaftr
Auðbrekku 63. Simi 44600
GISSUR
GULLRASS
E-FTIR-
BILL KMANAGU e.
FRAKK FLETCUBR
6. TBL. VIKAN 19