Vikan - 06.02.1975, Blaðsíða 23
Mike Henry, Ken Swofford og Charlton Heston.
„Það er flugstjórinn, sem
talar... bað er flugræningi um
borð. Viö vitum ekki, hver hann
er. Hann hefur fyrirskipað, aö
vélinni verði snúið til.”
Þetta eru orö flugstjórans i
kvikmyndinni Flugvélarránið
(Skyjacked), sem Gamla bió
sýnir um þessar mundir.
Með aðalhlutverk i myndinni
fara þau Charlton Heston, sem
leikur flugmann, og Yvette Mimi-
eux,sem fer með hlutverk einnar
flugfreyjunnar.
Um þessa kvikmynd sina hefur
Hestori, sem öllum islenskum
kvikmyndahúsagestum er vel
kunnur úr þeim fjölmörgu kvik-
myndum, sem hann hefur leikið i
og sýndar hafa verið hérlendis,
þetta aðsegja: „Margir segja, aö
Skyjacked sé ádeilumynd, en ég
fæ ekki séð, aö ádeilan i henni
beinist gegn neinum, nema ef
vera kynni flugræningjum, sem
eru ákaflega litill hópur
samfélagsins...Þegar atburður
e.ins og flugrán er kvikmyndaður,
tekur kvikmyndagerðarmaður-
inn á sig ábyrgð, sem enginn
annar listamaður, hvorki skáld
né málari, þarf að taka á sig. Og
þessa ábyrgð verður kvikmynda-
gerðarmaðurinn að gera sér
ljósa.. í myndinni kemur ekk-
ert það fram, sem dregur taum
flugvélaræningjans, enda er
myndin gerð frá þvi sjónarmiði,
að slikt komi hvergi fram.
Flugvélaræninginn okkar fær
makleg málagjöld, og alla
myndina er greinilegt, aö hann er
ekkert góömenni — meira að
segja heldur leiðinlegur, ef svo
má segja.”
Farþegar um borð i vélinni.
Sprengja um borð. Ekki grin! Ekki leikaraskapur! Þér farnast best
með þvi að hlýða skipunum mlnum, les Heston á speglinum.
karlmanna. Það er augljóst, aö
hærri aldur kvenna viöast hvar I
heiminum stafar fyrst og fremst
af þessum stöðuga ótta
karlmanna við alla nýbreytni og
tilbreytingu.”
Með önnur hlutverk i myndinni
fara, svo einhverjir séu nefndir:
Jeanne Crain, sem leikur
velefnaða eiginkonu á ferð með
manni slnum, Leslie Uggams,
sem leikur flugfreyju, Susan Dey,
sem flestir muna efalaust eftir úr
Söngelsku fjölskyldunni, en hún
leikur farþega I þessari mynd, og
er þetta raunar fyrsta kvikmynd-
in, sem hún leikur i, Kelley Miles
leikur einnig farþega um borð ‘i
flugvélinni, sem rænt er. Hins
vegar er ekki látiö uppskátt, hver
leikur ræningjann, né hver
farþeganna hann er.
Charlton Heston leikur flugmann.
Yvette Mimieux, sem leikur
Angelu Tacher flugfreyju I mynd-
inni, er harla óvenjuleg kona að
þvi leyti, að hún berst fyrir karla-
frelsi, en ekki kvenfrelsi á þessum
kvenfrelsistimum. Yvette segir
karlmenn þjást af ótta. „Konur
kunna ekki að hræðast, en
karlmenn eru alltaf að drepast úr
hræðslu,” segir hún blákalt.
Þessu til staðfestingar bendir hún
á, hve karlmenn séu hræddir við
að skipta um klæðaburð, jafnvel
þótt þá dreplangi til þess. Og
Yvette heldur áfram: „Við
konurnar munum gera allt, sem i
okkar valdi stendur, til þess að
vinna bug á þessum stöðuga ótta
6. TBL. VIKAN 23