Vikan

Útgáva

Vikan - 06.02.1975, Síða 27

Vikan - 06.02.1975, Síða 27
•Stöð- stööugum förum milli Grindavik- ur og Reykjavikur, því starf hans I SIF hefur i för meö sér miklar utanferðir, m.a. til Suður-Evrópu og Suður-Ameriku, landanna, sem kaupa af okkur saltfiskinn og skreiöina. En heimili Tómasar hefur alltaf verið I Grindavik. begar við ókum eins og leið lá eftir Vikurbrautinni og inn i Grindavik, fannst okkur þvi ómögulegt. annað en stoppa við Gnúp, heimili Tómasar og konu hans Huldu Björnsdóttur. Synir þeirra þrir eru farnir að heiman, tveir búa i Grindavik, einn er viö nám i Reykjavik, en dóttir á unglingsaldri er heima. Tómas gæti frá mörgu sagt úr sögu Grindavikur, þvi hann þekk- ir plássið manna best, hefur kynnt sér talsvert sögu þess og fylgst vel með uppbyggingunni. En saga og uppbygging yrðu langt mál og I þetta skipti lék okk- ur meiri forvitni á að heyra svo- litiö um manninn sjálfan og feril hans. Tómas var heldur tregur til að tala um störf sin og þann árangur, sem þau hafa borið — en á þætti úr starfsferlinum sjálfum var hann fús aö minnast. Tómas er fæddur og uppalinn i Grindavík, á Járngerðarstööum. — Eg fór til sjós fjórtán ára gamall og var á sjó i hálft tólfta ár, sagði Tómas. — bá hafði ég lokiðbarnaskólanámi. Eftir að ég fór á sjóinn var ég tvö haust i ung- lingaskóla, en reri jafnframt, þegar gaf. Eldri systir min var mér þá hjálpleg og las með mér þaö, sem ég missti úr i skólanum. Eftir þetta notaði ég timann á haustin, þegar róörar voru stopul- ir, til að afla mér þess fróðleiks, sem ég gat, og meðal annars læröi ég ensku hjá Tómasi Snorrasyni, sem var giftur móö- ursystur minni. — Sjö fyrstu árin reri ég á opn- um bátum, en á striðsárunum á dekkbátum, héðan, úr Keflavik og viðar. Eftir 12 ár á sjónum fór ég að vinna I landi og læra vinnu- brögö I fiskiönaöi og fór þá einnig á námskeið til að öðlast réttindi til fiskvinnslu. Ég vann i 7 ár I Hraðfrystihúsi Grindavikur og var þar við ýmis störf; var bil- stjóri, annaðist útréttingar _o.fl. •Og eitt sumar var ég verkstjóri á Siglufiröi. Um áramótin 1952-53 var útgerðarfélagið borbjörn stofnað, og stóöum við að þvi fjór- ir. baö rekur saltfiskvinnslu, skreiöarvinnslu og sfldarsöltun, og auk þess eru gerðir út þrir bát- ar, sem allir heita Hrafn Svein- bjarnarson, en það nafn hafa bát- ar okkar borið frá upphafi. Nafnið fengum við með báti, sem keypt- ur var frá Akranesi, en ekkja Bjarna Ölafssonar, sem hafði verið með þennan bát óskaði eftir þvi, að nafninu yrði haldið — og það hefur reynst okkur vel. — Hvað vinna margir hjá bor- birni? — Á vetrarvertið erum við með 5 til 6 báta, og á hverjum er 10 til 12 manna áhöfn, svo þar eru 50 til 60 manns. 1 landi vinna milli 40 og 50, svo alls eru þetta rúmlega 100. Hugur Tómasar hefur verið bundinn sjónum og slysavarna- málum frá unga aldri og hann hefur lengi veriö einn af forystu- mönnum slysavarnamála hér á landi. — Ég gekk I Slysa varnadeildina borbjörn á stofnfundinum, en þá var ég 10 ára gamall. Ahugi á þessum málum var geysimikill og fjölmennt á fundum. Maður hlakkaði allt árið til aðalfund- anna. Arið 1930 fór hér fram. fyrsta björgun með fluglinutækj- um, sem framkvæmd var hér á landi, en það var þegar franski togarinn Cap Fagnet strandaði á Hraunsfjöru. bá var bjargað á land 37 mönnum, og siðan hefur verið bjargað 194 með sömu tækjunum, en þau eru enn i notkun hér. Arið 1947 var stofnuð sérstök björgunarsveit innan slysavarnadeildarinnar, og var ég fenginn til að stofna hana. Sveitin var stofnuð til að hafa alltaf til reiðu menn, sem væru þjálfaðir i björgunarstörfum og kynnu á sjó- björgunartækin. Við vorum lengi 12 I sveitinni, en nú erum við yfir 30. Ég er formaður, en hef með mér fjóra þjálfaða forystumenn, þannig að það er alltaf tryggt, ef eitthvað ber aö höndum, að á staönum eru menn, sem geta tek- ið að sér stjórnina og einnig all- stór hópur þjálfaðra björgunar- manna. Svo er alltaf nóg af sjálf- boöaliðum, þvi ef skip strandar eða eitthvað ber út-af, eru allar hendur réttar fram til hjálpar og heimilin tilbúin að veita þá að- stoö, sem þau geta. — Hvað er ykkar svæði stórt? — Svæðið á að ná frá Vala- hnúksmöl austur fyrir Selvog. betta er mikið svæði og erfitt, og oft á tlöum hafa björgunarmenn orðið aö sýna ofurmannlegt þrek og dugnað. — Við höfum að mestu leyti haldiö okkur viö sjóbjörgun og ekki gert mikiö af þvi að leita að fólki, t.d. rjúpnaskyttum. En þetta á eftir að breytast, þegar við eldri mennirnir hættum og þeir yngri taka við stjörninni, þvi þá hlýtur sportmennskan að koma inn i þetta hér eins og ann- ars staðar. En sjóbjörgunin verð- ur þó alltaf aðalviðfangsefni björgunarsveitar á stað eins og Grindavik. b.A. Björgvin og sonur hans, Óli Björn. Ameðan veiði gefst Viðtal við BjÖrgvin Gunnarsson skip- stjóra og útgerðarmann. Stærsti báturinn, sem gerður er út frá Grindavik, heitir Grindvik- ingur og er tæp 300 tonn að stærð. Fiskanes hf. i Grindavik gerir Grindviking út, og skipstjóri á honum er Björgvin Gunnarsson, sem jafnframt er einn hluthafa I Fiskanesi. Við stöldruðum við hjá Björgvini stundarkorn og inntum hann eftir starfi hans og fleiru. — Ég er fæddur hér i Grindavik og alinn hér upp. Ég man eigin- lega ekki fyrr eftir mér en ég var farinn að fara i einn og einn róður meö bátunum hérna. Fjórtán ára fór ég svo til sjós fyrir alvöru og hef verið á sjónum mestan part siðan. — En hvenær varðstu fyrst skipstjóri? 6. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.