Vikan

Eksemplar

Vikan - 13.03.1975, Side 6

Vikan - 13.03.1975, Side 6
1.“»* sá fyrir mörgum að auki. Og enn þann dag i dag eru útslitnir bóliviumenn að grafa og grafa silfur úr Cerro Rico. I La Paz, höfuðborg Bóliviu, fá fátæklingarnir ekki einu sinni að þræla við silfurgröft. La Paz er hvað verst sett og fátækust allra höfuðborga Suður-Ameriku, og er þá mikið sagt. Á þeim 150 árum, sem liðin eru frá þvi bóliviumenn brutust undan spánverjum, hafa verið gerðar þar 197 stjórnarbylt- ingar. Og hvitu mennirnir hafa verið einir að kljást um völdin. beir eru nú eitthvað i kringum 700.000 talsins i Bóliviu, indián- arnir eru tvær og hálf milljón talsins, og auk þeirra búa ein og hálf milljón mestiza — kynblend- inga — i landinu. 700.000 hvitir menn berjast um völdin og pen- ingana, en fjórar milljónir indiána og kynblendinga lifa við skort og stundum hörmungar. Væru frumbyggjar Suður- Ameriku ekki eins góðlyndir og seinreittir til reiði og raun ber vitni, hefði hvita manninum ekki veist svona auðvelt að brjóta heimsálfuna þeirra undir sig. Indiánakonurnar kasta grjóti, þegar þær sjá myndavél. l'að er ekki nema myndavél sé beint að þessu svarthærða, brons- fólki, að það skiptir skapi. Á landamærum Chile og Bóliviu var kastað grjóti og sandi i ljósmynd- arann, og þegar hann ætlaði að taka mynd i lestinni, tóku nokkr- ar indiánakonur sig til og vöfðu klæði um höfuð hans. Innlands- indiánarnir hafa semsé þá trú, að eftir dauðann verði þeir að sveima um alls staðar, þar sem fyrirfinnast myndir af þeim. Borgin Santa Cruz er i 442 metra hæð yfir sjávarmáli hand- an Andesfjallanna, og þaðan átt- um við að leggja af stað klukkan 14.30. En hvergi sást til neinnar lestar nærri brautarpallinum. Klukkan 15.30 sjáum við til tutt- ugu ára gamals eimvagns, sem dregur fjóra opna vagna, og á þeim eru kálfar. Og skömmu seinna kemur skiptivagn -með það, sem á vantar: Fimm hlaðna vöruvagna og fjóra tóma, sem ætlaðir eru farþegunum. Við komum okkur fyrir i aftasta vagninum. Hann samanstendúr af gólfinu og fjórum veggjum, og i honum hreiðrum við um okkur. Með okkur ferðast um það bil tylft indiána. Og auk þeirra þau Jonathan og Noelle. Jonathan kveðst hafa verið á ferðalagi með En fyrst ætla ég aö semja sjónvarpsóperu um þig. Ö <-J. 6 VIKAN 11. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.