Vikan

Issue

Vikan - 01.04.1976, Page 2

Vikan - 01.04.1976, Page 2
 Vikan heimsækir Rolf Johansen stórkaupmann og fjölskyldu. í Laugarásnum eru tvö barnaheimili, annað er barnaheimili Thorvaldsensfélagsins, en hitt rekur Johansensfjölskyldan, sagði Rolf Johan- sen kaupsýslumaður og stoltur 6 barna faðir, þegar Vikan bað um áheyrn á dögunum. Síðan bætti hann við, eftir að áheyrnin hafði verið fúslega samþykkt: — Við erum fyrir neðan Laugarásveginn, svo þið farið ekki húsavillt. Rolf, sem er umsvifamikill og löngu lands- kunnur kaupsýslumaður, er innflytjandi ótal vörutegunda, allt frá snyrtivörum upp í hjólbarða. Hann hefur rekið fyrirtæki sitt Rolf Johansen & Company frá árinu 1955 og heldur því upp á 21 árs starfsafmæli fyrirtækisins í ár. Sjálfur er hann ekki nema liðlega helmingi eldri en afsprengið, en hann varð 43 ára daginn sem Vikan rakti úr honum gernirnar. Kristín og fíolf meö örverpin sin, litlu tvíbura- systkynin Kristínu og Ásgeir sem urðu fimm ára nýleaa. 2 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.