Vikan - 01.04.1976, Síða 2
Vikan heimsækir Rolf
Johansen stórkaupmann og fjölskyldu.
í Laugarásnum eru tvö barnaheimili, annað er
barnaheimili Thorvaldsensfélagsins, en hitt
rekur Johansensfjölskyldan, sagði Rolf Johan-
sen kaupsýslumaður og stoltur 6 barna faðir,
þegar Vikan bað um áheyrn á dögunum. Síðan
bætti hann við, eftir að áheyrnin hafði verið
fúslega samþykkt: — Við erum fyrir neðan
Laugarásveginn, svo þið farið ekki húsavillt.
Rolf, sem er umsvifamikill og löngu lands-
kunnur kaupsýslumaður, er innflytjandi ótal
vörutegunda, allt frá snyrtivörum upp í
hjólbarða. Hann hefur rekið fyrirtæki sitt Rolf
Johansen & Company frá árinu 1955 og heldur
því upp á 21 árs starfsafmæli fyrirtækisins í ár.
Sjálfur er hann ekki nema liðlega helmingi eldri
en afsprengið, en hann varð 43 ára daginn sem
Vikan rakti úr honum gernirnar.
Kristín og fíolf meö örverpin sin, litlu tvíbura-
systkynin Kristínu og Ásgeir sem urðu fimm
ára nýleaa.
2 VIKAN 14. TBL.