Vikan - 01.04.1976, Qupperneq 3
Hér er attur barnhópurinn samankomin, frá
vinstri Kristin lit/a, sem situr í kjöitu stóra
bróður, Thulins 16 ára, Svava 12 ára, Linda 10
ára, Agnes 17 ára og Ásgeir tvíburabróðir
Kristínar.
Héðan stjórnar Ro/f stórfyrirtækinu Ro/f
Johansen og Company, á veggjunum hanga
myndir og málverk af skipum og bátum og
minna Ro/f á göm/u. góðu árin á sjónum.
Rolf er lifandi dæmi um unga manninn með
bjartsýnina og dugnaðinn að leiðarljósi sem
vinnur sig upp úr sendilsstarfinu í forstjórastól-
inn í einu þekktasta innflutningsfyrirtæki
landsins og að vera hæsti skattgreiðandi í röð
einstaklinga.
En hamingjuna höndlar maður ekki með, og
það dýrmætasta í lífinu er skattfrjálst. Sagt er, að
á bak við alla framgangsríka menn standi kona,
og Rolf fer ekki dult með það, að gæfa hans og
fótfesta i lífinu sé Kristín Ásgeirsdóttir eiginkona
hans og lífsförunautur í 18 ár.
Og það er Kristín, sem tekur á móti okkur,
réttu megin við Laugarásveginn, af hlýju og
látleysi og leiðirokkur inn ível búnarstofur, sem
fyrst og fremst gefa það til kynna, að þær séu
heimili frekar en stássstofur.
Við, sem komið höfum inn úr norðanrokinu,
kunnum vel að meta ylinn, og fyrirforvitnis sakir
fáum við að ganga um húsið, sem byggt er á
þremur hæðum mót suðri, og skoða falleg
málverk og austurlenska muni, áður en við
setjumst niður til að spjalla við þau hjónin.
stofugluggunum má sjá yfir Laugardalinn
þarsem ein síðustu býlin í Reykjavík standa, og
einhvern veginn fannst manni, að Laugardalur-
inn hafi blessunarlega orðið á eftir þróuninni,
þegar bærinn okkar breyttist í borg. En þess
verður víst ekki lengi að bíða að borgin sendi
jarðýtur sínar á vettvang og þessi síðasta vin
borgarinnar verði athafnalífinu að bráð.
Samt virðast íbúar Laugarássins vera ennþá í
einhverjumtengslum viðnáttúruna, líkast til fyrir
þær sakir, að húsin standa hátt og útsýni er yfir
hafið og íbúarnir geta fylgst nánar með öllum
tilbrigðum og duttlungum íslensks veðurfars en
þeir, sem hafa steinsteypuna og malbikið fyrir
augunum.
— Já, á íslandi er allt gott nema veðrið, og þvi
miður verðum við að haga og skipuleggja líf
14. TBL. VIKAN 3