Vikan

Issue

Vikan - 01.04.1976, Page 23

Vikan - 01.04.1976, Page 23
gaman, þegar sagt er við hann, að hanm sé heimskur. Hann gekk aftur út að glugg- anum. Eftir nokkra stund kom hann aftur að segulbandstækinu. — Það var einu sinni lítill dreng- ur, sem bjó í stóru húsi með mömmu sinni, pabba sínum og systur sinni. Og einn daginn kom pabbinn heim, fór inn í vinnu- herbergið sitt, og drengurinn fór inn til hans, án þess að banka fyrst. — Þú ert vondur maður, hrópaði drengurinn. — Ég hata þig! Ég hata þig! Heyrirðu hvað ég segi? Ég hata þig! Og pabbinn fór að gráta. — Vertu góður, sagði hann. — Mér líður ekki vel! Mér finnst svo leiðin- legt, hvaðéghefgert. Vertu góðurog hataðu mig ekki! En litli drengur- inn sagði við hann: — Ég ætla að refsa þér, heimski, heimski maður. Ég vil ekki hafa þig hér lengur! Ég vil losna við þig sem allra fyrst. Hanú spilaði frásögn sína. Svo hélt hann áfram að tala inn á bandið. — Þetta er Dibs. Ég hata pabba minn. Hann er vondur við mig. Honum þykir ekki vænt um mig. Hann vill ekki hafa mig hjá sér. Ég skal segja ykkur, hver hann er, svo að þið gctið passað ykkur á honum. Hann er vondur, mjög vondur, reglulega vondur maður. Aftur sagði hann fullt nafn og heimilisfang föður slns. — Hann er vísindamaður, hélt hann áfram. — Hann hefur mjög mikið að gera. Hann vill, að alltaf sé dauðaþögn. Hann er ekki hrifinn af drengnum. Drengurinn er ekki hrifinn af honum. Hann stöðvaði tækið aftur og kom til mín. — Hann er ekki vondur við mig lengur, sagði hann. — En áður var hann alltaf vondur við mig. Kannski honum sé líka farið að þykja vænt um mig núna. Hann fór aftur að segulbandinu. — Ég hata þig, pabbi, hrópaði hann. — Ég hata þig! Þú mátt ekki læsa mig inni oftar. Þá drep ég þig. Hann spólaði til baka, tók spóluna af og rétti mér hana. — Geymdu þetta, sagði hann. — Settu það í kassann og geymdu það, bara handa okkur. — Allt í lagi. Ég skal geyma spóluna. Bara handa okkur. — Mig langar til að fara inn í leikherbergið, sagði hann. — Við verðum að ljúka þessu I eitt skipti fyrir öll. Við gengum inn I leikherbergið, og Dibs stökk upp I sandkassann og tók þegar að grafa djúpa holu í sandinn. Svo gekk hann að brúðu- húsinu og sótti pabbadúkkuna. — Var það eitthvað, sem þú ætlaðir að segja? spurði hann dúkkuna stranglega. — Þykir þér leiðinlegt að hafa verið svona slæmur? Hann hristi dúkkuna, fleygði henni í sandinn og lamdi hana með skóflunni. — Ég skal búa til fangelsi handa þér og stóran lás á dyrnar, sagði hann. — Svo geturðu séð eftir öllu því slæma, sem þú hefur sagt og gert. Hann sótti kubbana og fór að byggja fangelsi I holunni. Hann var mjög fljótur að því. — Vertu góðurvið mig og gerðu þetta ekki, hrópaði hann í orðastað pabbadúkkunnar. — Mér finnst svo leiðinlegt að hafa verið svona vondur. Vertu góður við mig og leyfðu mér að reyna að bæta ráð mitt. — Ég skal refsa þér! Ég skal refsa þér fyrir allt, sem þú hefur gert! hrópaði Dibs hátt. Hann setti pabbadúkkuna ofan í holuna og kom siðan til mín. — Ég hef alltaf verið hræddur við pabba, sagði hann. — Hann hefur alltaf verið vondur við mig. — Varstu hræddur við hann? spurði ég. — Hann er ekki vondur við mig lengur, sagði Dibs. — En ég ætla samt að refsa honum. — Þig langar enn til að refsa honum, þó að hann sé ekki vondur við þig lengur? sagði ég. — Já, sagði Dibs: — Ég ætla að refsa honum. Svo fór hann aftur I sandkassann og hélt áfram að byggja fangelsi. Svo setti hann pabbadúkkuna í fangelsið, setti spýtu ofan á sem þak, og huldi síðan allt með sandi. — Hver skiptir sér af þér nú? hrópaði hann. Framhald í næsta blaði. SISSOR SOLLRA55 BIlL KAVANAGU e. FRANK FLETCUER 14. TBL. VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.