Vikan

Tölublað

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 24

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 24
BLÖMnSTÚLKA Sgar Alfre<á> Nobel var ungur, leit hann björt- raugufn á lifiö, taldiþað,, náðargjöf eðal- nn". Mjög ungur hafði hann náð frábærum fangri sem vísindamaður, en að eðlisfari var hann draumlyndur. Æmk, ijágMí'- w/ ffl. ingjánnínir h/aeja að méi Alfred Nobel stríddi /engi viö b/ómgstú" ■Sofie Hess.,, Allt mitt lif hef ég att við ek^ að stríða. Nú verð ég að hafa barnfóstn^ fullorð/ð barn á föstum /aunum, og < Þrjár konur skipuðu sess í hjarta Alfreds Nobels, en hann varð fyrir vonbrigðum með þærallar. Æskuástin hans dó. konan, sem hefði getað orðið lífsakkeri hans, hafði gefið öðrum hjarta sitt, og litla blómasölu- stúlkan, sem hann hreifst af, reyndist vera lítisigld. Alfred Nobel var aldrei reglulega hamingju- samur í einkalífi sínu, og hann var piparsveinn alla ævi. Kvenímynd hans var rússneska yfir- stéttarkonan, sem var jafnoki karlmanna, þegar rætt var um vísindi og heimspeki. — Hvers vegna eru svo fáar slíkar konur til í Svíþjóð og Frakklandi? furðaði hann sig á. Lengi stóðu menn í þeirri trú, að Andriette móðir Nobels hefði verið eina konan, sem hafði einhver áhrif á líf þessa hægláta en merkilega manns. Hann umgekkst hana í einlægni, og hún brást aldrei trausti hans. En samt komu aðrar konur við sögu í lífi hans — og þær meira að segja þrjár: — Ein var æskuástin hans, sem dó frá honum. — Ein hefði getað rofið einmanakennd hans, ef hún hefði ekki svaraði honum játandi, þegar hann spurði hana, hvort hún hefði gefið einhverjum öðrum hjarta sitt. — Og svo var það vínarstúlkan, en samband þeirra varði í fimmtán ár og fékk þeim bæði mikillar sælu og sárustu vonbrigða. Hið versta losnaði hann þó við að reyna. Eftir dauða hans, hótaði hún að selja bréf hans til hennar. Æskuástina sína fann Alfred Nobel í París. Hann var þá ekki orðinn fullra tuttugu ára. Faðir hans hafði sent hann út í hinn stóra heim til þess hann gæti séð sig um og aflað sér frekari menntunar. Alfred Nobel varð ástfang- inn í fyrsta sinn á lífsleiðinni. Áður hafði hon- um fundist veröldin endalaus og þurr eyði- mörk, en allt í einu lifnaði eyðimörkin við. Nú átti hann sér aðeins eitt takmark — að vinna ástir stúlkunnar sinnar. Framtíðin var þeirra. Hún var sænsk, ekki nema sextán ára, og hún vann í lyfjaverslun. Hún var dásamleg í hans augum — sannkölluð lífsins rós. Og hún endurgalt tilfinningar hans. Þau áttu yndislegar stundir saman. En hamingjan varð endaslepp. Dauðinn grúfði ætíð yfir sambandi þeirra eins og óút- máanlegur skuggi. Unga stúlkan var með 24 VIKAN 14.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.