Vikan - 01.04.1976, Side 25
VMRO
MSTKONA
SNiLUNCS
Alfred Nobel var enn í París, þegar hún varð
að lúta í lægra haldi fyrir veikindunum. i
formi Ijóðsins lýsti hann tilfinningum sínum.
Hann kallaði Ijóðið Lífsins gátu.
,,...því hefði átt að Ijúka svo sem venja er
og færa okkur hjónaband með áhyggjum og
yndi.
En annað var okkur áskapað, annar brúð-
gumi krafðist handar hennar...
Og bauð henni hvílu í brúðarsæng grafar-
innar....
Flest varðandi þetta ástarævintýri er gleymt
og grafið. Enginn veit lengur, hvað stúlkan
hét. Einmanaleikinn varð fylgdarsveinn Nobels
eftir þetta. Æskuástin og sársaukinn vegna
missis stúlkunnar, setti mark sitt á manninn,
og hann reyndi ekki að gleyma henni í
hringiðu nýrra ævintýra.
Meira en tuttugu ár liðu, áður en nokkur
kona hafði aftur teljandi áhrif á hann. Það var
árið 1876. Alfred Nobel var að verða fjörutíu
og þriggja ára, og löngu orðinn kunnur maður.
Hann var vellauðugur, átti mörg glæsileg
heimili — og hann var mesti vinnuþjarkur.
Hann var fyrst og fremst efnafræðingur, en
einnig draumlynt skáld. Vordag einn sat hann
við skrifborð sitt í París, og þá sá hann allt í
einu í hendi sér, að hann kæmist ekki lengur
hjá því að ráöa sér einkaritara til að taka að sér
sívaxandi bréfaskriftir.
Af einhverjum orsökum hafði Nobel sérstaka
ást á Austurríki og þó sér í lagi Vínarborg.
Þess vegna setti hann auglýsingu í eitt dag-
blaðanna í Vín. Hann orðaði hana sjálfur og
kallaði sig ,,vel menntaðan miðaldra mann".
Hann vildi helst ráða konu á hæfilegum aldri
og vel að sér í tungumálum. Meðal umsókn-
anna um starfið leyndist bréf frá Berthu
Kinsky greifynju. Hún var af bæheimsku ætt-
inni Kinsky von Chinic und Tettau, en sú
ætt var þekkt langt aftur í aldir.
Bertha var þrjátíu og þriggja ára,
næstum gömul kona á þess tíma mælikvarða,
og auk þess var hún fátæk og allslaus. En
hún var fögur, auk þess óvenjulega vel
menntuð og þar að auki einstaklega vel að
sér ítungumálum. Sem stóð var hún ráðskona
fjögurra ungra stúlkna af von Suttnerættinni
í höll utan við Vín.
Bertha var í mestu vandræðum. Hún og einn
sonanna á heimilinu, Arthur Gundaccar, sem
var sjö árum yngri en hún, elskuðu hvort
annað af ástríðu. Og einn daginn var komið
að þeim í heitum faðmlögum f garðinum.
Þjónustustúlkan, sem sá þau, var afbrýðisöm
út í Berthu, og sagði hallarfrúnni þegar alla
söguna. Og húsmóðirin var ekki lengi að
tilkynna Berthu, að þjónustu hennar væri ekki
æskt lengur á heimilinu.
Henni léttj því mjög, þegar Alfred Nobel
valdi hana sem einkaritarann sinn. Nú gat hún
„flúið" til Parísar. En svíinn frægi vissi ekkert
um atburðina, sem gerst höfðu, og hún gat
ekki gleymt.
Nobel varð þegar hrifinn af greifynjunni,
og henni gast einnig vel að honum og fan^H.
hann hreint enginn eldri maður. Hann vtír
maður á besta aldri, hafði mild, blá augu og
tregablandinn róm. Hafði hamingjan loksins
vitjað hans? Yrði lukkan hliðholl honum og
Berthu von Kinsky? Dag einn, þegar þau fóru
saman í ökuferð, gat hann ekki orða bundist:
— Er hjarta yðar óbundið?
Allt í einu gat Bertha ekki þagað lengur, og
hún sagði þessum vingjarnlega manni alla
sögu sína. Hann hlustaði með eftirtekt, en
svaraði síðan, að framtíðin gæti enn veitt
henni margt... nýtt líf og ný viðhorf.
Svo varð Alfred Nobel að fara burtu um
tíma. Og aðeins fjörutíu og átta klukkustund-
um eftir brottför hans, fékk Bertha skeyti.
Skeytið var frá Vín, frá Arthur, sem elskaði
hana enn:
— Ég get ekki lifað án þín, stóð í skeytinu.
Til þess að verða sér úti um peninga fyrir
fargjaldinu til Vínar seldi Bertha eina verðmæta
hlutinn, sem hún átti, gullsleginn kross, sem
hún hafði fengið í arf. Og stuttu seinna gengu
hún og Arthur í hjónaband í lítilli kirkju í
Vínarborg. Hjónavígslan fór fram með leynd.
En leiðir Alfreds Nobels og Berthu von
Suttner áttu eftir að liggja saman aftur þótt
þau hittust ekki aftur. Hún varð þekkt sem
höfundur bókarinnar Niður með vopnin og
sem baráttukona fyrir friði í heiminum, og
henni voru veitt friöarverðlaun Nobels löngu
eftir dauða hans. Hugsunin um Berthu dró
Nobel til Baden-bei-Wien stuttu eftir að hún
hvarf út úr lífi hans. i þessari útborg Vínar
14. TBL. VIKAN 25