Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 01.04.1976, Qupperneq 42

Vikan - 01.04.1976, Qupperneq 42
hveiti og blandað í deigið. Stíf- þeyttar eggjahvíturnar skornar varlega í deigið. Sett í vel smurt brauðmylsnustráð form og bakað við 180° í ca. 1 klst. Prófað með prjóni. SÍRÓPSKAKA MEÐ HNETU- KJÖRNUM. 250 gr sýróp 60 gr sykur 75 gr smjör eða smjörlíki 1 egg 250 gr hveiti 3/4tsk. matarsódi 1 /2 dl súrmjólk rifið hýði af 1/2sítrónu 100 gr gróftsaxaðir hnetukjarnar. Sýróp, sykur og smjör hitað, þar til allt er fljótandi. Hrært í og kælt nokkuð. Eggið hrært saman við. Hveiti og matarsóda blandað saman og hrært saman við til skiptis við hveitiblönduna. Sítr- ónuhýðið og hneturnar settar saman við. Deigið sett í 1 stórt form eða 2 minni vel smurð og hveiti stráð. Bakað við 180° í ca. 3/4 klst., prófað með prjóni. HUGSAÐ FYRIR PÁSKA- BAKSTRINUM Nú eru páskarnir á næsta leiti, og eflaust eru margir farnir aö hugsa fyrir páska- bakstrinum. Hér á eftir fara uppskriftir af nokkrum kök- um, sem gjarnan má baka strax, þær verða jafngóðar á annan páskadag, sé þeim pakkað þétt í álpappír. Krem, fyllingu og skreyt- ingar geymum við þó að sjálfsögðu þangað til rétt áður en kökurnar eru bornar fram. ENGIFERKAKA MEÐ SÚKKU- LAÐIBRÁÐ. 200 gr smjör eða smjörlíki 150 gr sykur 3 egg 1 dl súrmjólk 250 gr hveiti 1 tsk matarsódi 3 msk. sultaður engifer (saxaður) (eða 2 tsk. engiferduft) 2 — 3 msk. af engifernum. Bráð: 100 gr suðusúkkulaði m/dál. smjörbita, eða ca. 100 gr flór- sykur, 1 msk. kakó og 1 tsk. van- illa og vatn. Smjör og sykur hrært vel, eggin sett í eitt í senn. Hveiti og matar- sóda hrært saman við til skiptis við mjólkina. Sé engifer fáanlegur í verslunum, er hann skorinn í bita og velt upp úr hveiti. Deigið sett í smurt form, annað hvort eitt stórt eða 2 minni. Bakað við 180° í ca. 1 klst. Prófað með prjóni. Setjið bráð á kökuna, meðan hún er enn volg. ENSK RÚSÍNUKAKA. 200 gr smjör eða smjörlíki 200 gr sykur 2 egg 200 gr hveiti rifið hýði af 1 /2 sítrónu 200 gr rúsínur 100 gr súkkat Smjör og sykur hrært vel. Eggja- rauðurnar settar í ein í senn, síðan hveitið ásamt sítrónuhýði. Rúsín- um og súkkati velt upp úr dál. RÚLLUTERTA MEÐ APRÍKÓSU- FYLLINGU. 3 egg 1 1/2 dl sykur 2 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft Fylling: 1 dós niðursoðnar apríkósur. Skreyting: 2—3 dl þeyttur rjómi rifið súkkulaði. Egg og sykur þeytt Ijóst og létt. Hveiti og lyftidufti blandað saman við. Smjörpappírsform ca. 30x40 cm. að stærð smurt vel. Kakan bökuð við 225° í ca. 10 mínútur. Þegar kakan er tekin úr ofninum, „Hag sýn húsmóöir notar Jurta” ö jurta o *urta ^ I

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.