Vikan - 01.04.1976, Side 43
er sykri stráð á hana, svo hún
festist ekki við smjörpappírinn,
sem henni er hvolft á. Losið
pappírsformið af. Sé það fast á,
vætið þá pappírinn með köldu
vatni, þá losnar hann auðveldlega
af. Helmingurinn af aprikósunum
er gerður að mauki og afgangur-
inn er brytjaður fremur gróft.
Þetta verður að vera búið að gera,
þegar kakan er tekin út úr
ofninum. Maukinu smurt á kök-
una og bitunum stráð þar á ofan.
Kökunni rúllað saman, meðan hún
er heit, því kólni hún eitthvað að
ráði, er ómögulegt að rúlla henni
upp. Þegar kakan er alveg orðin
köld, er hún hulin með þeyttum
rjóma og gróft rifnu súkkulaði
stráð yfir. Á myndunum hér til
hliðar má glöggt sjá, hvernig þessi
ágæta kaka er búin til.
HUNANGSKAKA.
3 egg
175 gr sykur
175grhunang
230 gr hveiti
Þeytið egg og sykur sérstaklega
vel. Hitið hunangið aðeins, svo
það verði rétt fljótandi. Setjið
hunang og hveiti til skiptis út í
eggjahræruna. Bakið í stóru hring-
formi við 170° í 1-1 1/4 klst.
Prófið með prjóni, hvort kakan sé
gegnbökuð^
/
Fylling:
Gott er að setja eplafyllingu í
kökuna, og eru þá epli soðin í
litlu vatni með dál. sykri. Einnig
má setja heimatilbúið eggjakrem
eða vanillukrem úr pökkum í kök-
una.
Súkkulaðikrem:
125 gr súkkulaði,
1 msk. vatn
2 dl flórsykur
2—3msk. sjóðandi vatn eða kaffi.
Súkkulaðið brætt yfir gufu og
hrært slétt með 1 msk af vatni.
Hrærið sáldraðan flórsykurinn út
með heita vatninu og blandið
þessu saman við súkkulaðibráð-
ina. Einnig má hafa aðeins bráðið
súkkulaði yfir kökuna. Fallegt er
að skreyta kökuna með marsip-
anmyndum eins og myndin sýnir,
og eru þær þá settar á kökuna
áður en kremið stífnar.
„Veistu hvaö Ljóminn
er Ijómandi góöur”