Vikan - 27.05.1976, Qupperneq 3
söngvara, þaulprófa hæfni þeirra og gæði
radda, kynnast þeim og leiðbeina á sviði
tónlistarinnar og stofna til kunningsskapar
meðal þeirra sjálfra, sem hann vissi, að er einn
stærsti liðurinn í góðum kór: vinátta félaganna
hver við annan og þekking á kostum og göllum
hversogeins. Sigurðurmunsnemma hafa áttað
sig á því, hve sálfræðin hefur mikið að segja í
samstilltum kór.
Þessi undirbúningur Sigurðar átti eftir að
reynastvel, þvífyrsta söngskemmtun hans mun
hafa verið haldin strax í apríl það ár, og síðan þá
hefuraldrei veriðtekin hvíld, heldur ávallt sótt á
brattann og hver stórsigurinn unninn af öðrum,
bæði hér heima og erlendis.
Þetta þrotlausa starf Sigurðar og þeirra
samtals um 400 manna, sem hafa myndað
kórinn þessi 50 ár, hefuralla tíð verið þeim öllum
brennandi áhugamál, og allt það starf, sem
unnið er þar í algerri sjálfboðavinnu, hafa menn
lauslega reiknað, að væri til jafns við að 7—10
menn hefðu ávallt verið ífastri atvinnu, og þá er
aðeins reiknað með venjulegum æfingum
kórsins, en ekki tekið með það starf, sem hver
maður vinnur við eigin þjálfun, né heldur óþrjót-
andi starf stjórnanda eða annarra forsjármanna
kórsins.
Auðvitað vitum við, að slíkt áhugastarf er
algjörlega unnið vegna eigin áhuga sönglistinni
ogfélagslegsþroska ogáhuga hversmann. Hver
einstakur maður verður að vera í stöðugri
þjálfun, rétt eins og íþróttagarpar, bæði við að
efla og viðhalda sinns eigin söngrödd, beita
henni á réttan hátt í samfélagi við aðra, og ekki
síst að efla og viðhalda eigin aðstöðu til félags-
skapar við alla aðra félaga kórsins, svo eining og
22. TBL. VIKAN 3