Vikan

Tölublað

Vikan - 27.05.1976, Blaðsíða 14

Vikan - 27.05.1976, Blaðsíða 14
Búlgaría er fjalllent land, og minnir náttúrufegurðin viða á austurr/sku Aipana, þar sem skiptast á barrskógar og beitiiönd. Evgenia og eiginmaður hennar, Stefán Hjáimarsson, úti á akri / Bú/garfu. ■ KOM A OVARTI KONUR HÉR HA SÉRMENNTUN í landafræðinni lesa íslensk barnaskólabörn, að Færeyjar og island séu einu löndin í Evrópu, þar sem sauðfé sé tiltölulega fleira en í Búlgaríu, en þar með lýkur víst skyldleikanum milli þessara landa, sem öll Evrópa skilur að. Við lesum líka, að þúlgarar rækti tóbak og angandi rósir til ilmvatnsframleiðslu, og má bæta því við, að þarna séu þeir um leið aö gera tilraun til að bæta fyrir tóbaksdauninn. Sagt er líka, að búlgarar hristi höfuðið játandi og kinki kolli neitandi, alveg öfugt við okkur. Og nágrannar þeirra, albanir, sem eru múhaðmeðstrúar, eru sagðir nudda saman nefjum í kveðjuskyni, eins og nágrannar íslendinga, grænlendingar. Allt eru þetta nú ágætar upplýsingar, en til þess að fræðast ögn meira um þetta land, sem er flestum íslendingum mjög framandi ,tókst Vikunni að hafa upp á eina búlgaranum, sem búsettur er á islandi, Evgeniu Gichevu Hjálm- arsson, sem við fundum á Teiknistofunni Arkir í Reykjavík. Evgenia er arkitekt að mennt og hefur verið búsett á islandi í tvö ár. Við spurðum Evgeniu, hvað hefði borið hana alla þessa löngu leið frá Búlgarlu til Islands. — Tengsl mín og kynni við Island lágu fyrst í gegnum Tékkóslóvakíu, því ég var við arkitektúrnám í Prag, og þar kynntist ég manninum mínum, Stefáni Hjálmarssyni. Eftir aö ég fluttist til islands hef ég haldið nánu sambandi við þá tékka, sem hér eru búsettir. Þar sem ég hef hér engan til aö tala við móðurmálið, er það mér mikils virði aö fá að tala tékknesku öðru hvoru. Þetta segir Evgenia á ágætis íslensku, þótt hún haldi því fram, aö á vinnustaö tali allir við hana ensku, því hún þurfti að bjarga sér á því máli I byrjun. Viö islendingar erum kannski ekki svo ýkja fróðir um þær þjóöir, sem búa í mikilli fjarlægð frá okkur, svo ekki er hægt aö ætlast til aö búlgarar viti mikið um island. Hvaöa hugmynd skyldu nú búlgarar hafa um island og íslendinga? 14 VIKAN 22. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.