Vikan

Tölublað

Vikan - 27.05.1976, Blaðsíða 26

Vikan - 27.05.1976, Blaðsíða 26
klárað að láta ölið lagerast og verða aö alvöruöli. Til hamingju! Og þegar þú ert kominn fram f þriðju lögun, ertu kannski fær um að þiggja nokkrar ábendingar. Nú ertu kominn á það stig, að þú hefur ánægju af að búa til góðan drykk. Ekki bara áfengan. Nú ertu tilbúinn að fara að afla þér ýmissa hluta, sem kannski er hægt að komast af án, en auka ánægjuna til mikilla muna. ■ Þú manst, hvað ölgerðarmaöurinn sagði f upphafi greinar, ,,gott öl er ekki hægt aö búa til f heimahúsum..." Þetta hefur verið alveg rétt, fram að þessum tíma. En nú færist slík „heimavinna" ört í vöxt bæði erlendis og hér heima. Þetta vita framleiðendur ölpakkanna og gera allt til að slfkt megi takast. Þeir hafa til sölu alls konar efni, sem auövelda þetta aö miklum mun. Efni, sem eru dýr, og ölgerðir reyna að komast hjá að nota til að halda verðinu niöri. En litli maðurinn — ég og þú — hafa ef til vill ráö á að kaupa litla skammta í einu til að auka ánægjuna af ölgeröinni með því að auka gæði ölsins, og geta þannig gert það JAFNVEL ENN BETRA en ölgerðirnar. Nú er orðið mögulegt að kaupa svo til alla hluti til alvöruölgerðar. Þú getur fengið keypta stóra kúta til að gerja ölið í. Sérstakan þKpgusykur er gerjast um 30% hraöar, sem aö vísu er ekki nauösynlegur, en betri en strásykur, ýmsar tegundiraf geri, bæði fyrir alvöruöl og létt vín, allskonar tegundir „snefilefna" svo sem gernæringu, gervítamín, steinsölt í vatn, sýrueyöi, mjólkursykur, Campten sótthreins- un, „Finings" og ýms önnur efni til bjórgerðar. Mælitæki allskonar svo sem hitamæli, sykur- flotvog, vínandamæli o.fl., tappa á bjórflöskur, tæki til aö setja á plastslöngur til að sjúga öl upp úr kútum, flöskuhreinsunartæki og flöskuáfyllingartæki, gerjunarlása, jafnvel þrýstitunnur, til að geyma alvöruölið á í stað þess aö setja á flöskur, jafnvel merkimiða o. m. f|. Auðvitað fást svo pakkar, með öllum nauðsynlegum efnum í ölið f flestum verslun um, en þessi ýmsu séráhöld, sem ég hef minnst á, þarf að kaupa í lyfjaverslunum, eöa í sérverslun með slík áhöld. I ensku leiðbeiningunum er oft minnst á ýmsar sjóræningjaeiningar í máli og vog, og þá er gott að muna aö „pint" er hálfur lítri, „Ibs" er hálft kíló, „gallon" um fjórirog hálfur Iftri og „únsan" þeirra, eða „oz", mælist 28,35 grömm á mæltu máli. Og nú ertu líklega alveg tilbúinn til að fara að leggja í fjórðu lögnina, eða áttu kannski eitthvað eftir af þriðju? Nei, mér datt þetta í hug, vinur. En nú skaltu taka þaö rólega, fá þér þau tæki, sem þú hefur efni á og gera þetta vísindalega. Ánægjan af að geta boðið upp á slíkan ágætisdrykk bæði að útliti og bragöi, er vel þess virði. Og ég skal segja þér eitt: Jafnvel þótt við íslendingar séum álitnir óalandi asnar f ölmálum, þá höfum við nógu þroskaðan smekk til að gleöjast yfir glasi af fslensku alvöruöli, sem með dálftilli natni, umhyggju og þolinmæði getur hæglega orðiö töluvert betri mjöður en erlent fjöldaframleitt verksmiðjuöl. Skál í víkingablóöi! KARLSSON Á það skal bent, aö gosiö í flöskunum á sinn þátt í að ryöja öliö tært og hefir þannig afgerandi áhrif á hvernig tekst til með gæðin. Varastu að nota skrúfaða alúmíhum tappa, eins og eru á vfnflöskum, því þeir vilja svfkja, og ölið fær ekki sitt gos og veröur ekki tært. Tappar á ölflöskur fást bæöi úr málmi til einnar notkunar og úr plasti, og má nota þá aftur og aftur. Gjörðu nú svo vel. Hér hefir þú bjór til að bjóða mér uppá, næst þegar ég kem f heimsókn. Aöeins eitt: Smakkaðu fyrst á honum sjálfur. Ef þú finnur á þér eftir eina flösku, þá helliröu öllu saman f vaskinn. Hann er of sterkur fyrir venjulegan íslending. NOKKRAR RÁÐLEGGINGAR: Bruggun alvöruöls tekst yfirleitt ekki fyrr en f þriðju tilraun. í fyrsta skipti drekkurðu allt gumsið strax og gerjun er lokið, færð magapínu og ógeð á öllu draslinu. Hafðu engar áhyggjur af því. Þetta kemur fyrir flesta. í annað sinn kemur þú mestu af því í flöskur áöur en það klárast, magapfnan verður minni og ógeðið minna. Þetta er allt á réttri leið. I þriöja sinn áttu jafnvel eitthvað eftir af þvf sfðasta, svo þér llggur ekki eins á. Þá geturðu 26 VIKAN 22. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.