Vikan - 27.05.1976, Síða 12
I SLÆMUM FÉLAGSSKAP?
Elsku Póstur minn!
Þctta er í fjórða skipti, sem ég
skrifa þér, svo mér finnst þú ættir
að svara þessu bréfi.
Svo er mál með vexti, að mér er
bannað að skemmta mér með
kunningjum mínum, því að það er
álitið, að þeir hafi svo spillandi
áhrif á mig. Ég er að verða brjáluð
á þessu. Mér finnst alls ekki kunn-
ingjar mínir hafa nein spillandi
áhrif á mig, þeir eru ekki neitt meiri
fyllibyttur en ég og aðrir. Þess
vegna fínnst mér ástæðulaust að
svívirða mann, hvenær sem ttmi
vinnst til. Eða hvað finnst þér?
Hvað þarf ég að verða gömul til
að taka próf á mótorhjóli?
Getur þú sagt mér, hvað Yama-
ha kostar nú til dags?
Hver er happalitur og — tala
Vogans? Og hvaða merki á best við
hann?
Og svo: Hvað er ég gömul og
hvað lestu úr skriftinni?
Ein lífsleið.
Þar sem þú segist nú skrifa í
fjórða skipti og ferð eindregið fram
á svar við bréfinu, skal látið til
leiðast að svara því, enda þótt þú
.hafir ekki svo mikið við að skrifa
þitt rétta nafn undir bréfið, semþó
er í ncer öllum tilvikum nauðsyn-
legt til að fá svar. Satt að segja skilur
Pósturinn ekki almennilega, hvað
þú ert að fara í bréfinu. Einkum
stafar það af ónákvæmu orðalagi.
Hver er það til dœmis, sem bannar
þér að skemmta þér með kunningj-
um þínum? Og hver er alltaf að
svívirða þig ? Og síðast en ekki síst:
Hvernig ertu svívirt? Þú veist vænti
ég, að konur má svívirða með
mörgu mðti. Mér finnst aldeilis
óforskammað og óforsvaranlegt að
svívirða stúlkur (á þá við að taka
þœr nauðugar), hvenœr sem tími
vinnst til. Hitt finnst mér í hæsta
máta eðlilegt og engin svtvirða,
að foreldrar þtnir setji ofan í við
þig, ef þú ert í slagtogi með ribb-
öldum og drykkjurútum. Ég er ekki
að fullyrða, að kunningjarþtnir hafi
tamið sér ribbaldahátt og svall,
enda segir þú þá ekkert vera verri
en sjálfa þig. Reyndu nú að líta
skynsamlega á málin og ræða þau af
einhverju viti við foreldra þtna. Ef
allt er í besta lagi með kunningja
þtna, er ég næstum um,
að þau setja sig ekki lengur á móti
þvt, að þú umgangist þá eðlilega.
Til þess að öðlast réttindi til
að aka vélhjóli þarftu að vera orðin
fimmtán ára. Ætli Yamahavélhjól
kosti ekki í kringum hálfa milljón?
Hvað áttu við með Vogans? Ef þú
átt við vogarmerkið, þá treysti ég
mér ekki til að segja ákveðið til
um haþþaliti og tölu, en karlmenn
fæddir í hrútsmerkinu, Ijónsmerk-
inu og vatnsberamerkinu ku eiga
vel við vogarkonu. Þú ert fimmtán
ára og úr skriftinni les ég það
helst, að þér hættir til að taka
fljótfæmislegar ákvarðanir.
GETA KONUR ORÐIÐ SKIP-.
STJÖRAR OG FLUGSTJÖRAR?
Halló Póstur!
Mér datt í hug að þú vildir svara
þessu bréfi mínu I Vikunni.
Geta konur ekki orðið flugstjórar
og skipstjórar?
Hvernig fara vatnsberinn og
nautið saman, en steingeitin og
tvíburinn?
Hvað lestu úr skriftinni og hvað
heldurðu að ég sé gömul?
Þakka birtinguna á bréfinu
(þ.e.a.s. ef það verður birt).
Vertu sæll Póstur.
H.
Rétt til getið, Pósturinn er alveg
æstur í að svara bréfinu þínu! Þetta
er annars nokkuð einkennilegt
uþphaf hjá þér, — eða finnst þér
það ekki sjálfri, núna þegarþú sérð
það á þrenti?
Það er víst ekkert, sem bannar
konum að læra flug- og skipstjórn,
& fl