Vikan - 27.05.1976, Page 33
en á því var létt máltíð. Þjónn-
inn var með dyftaða hárkollu, og
andlit hans var kringluleitt, og i því
endurspeglaðist hátíðleiki, sem
hæfði manni í hans stöðu. Hann
hneigði sig fyrir Marianne, og í Ijós
kom þótti, sem kom henni á óvart.
Þessi Denis hlaut að vera hálf-
gerður uppskafningur, úr því að
jafnvel þjónustuliðið var svona
merkilegt með sig. Það dró án efa
dám af húsbóndanum.
„Settu borðið fyrir framan made-
moiselle, en stðan máttu fara.”
,,Á ég ekki að þjóna...”
,,Nei, þetta er ágxtt,” greip
Duroc fram í fyrir honum. ,,Við
skulum sjá um þetta sjálf. ”
Þjónninn dró sig nú virðulega í
hlé, en hin hálfsagða setning
hafði ekki farið framhjá Marianne,
°g hún fór að velta því fyrir sér
með hvaða titli hann hefði ætlað
að ávarpa Duroc. Or þvl að þessi
dularfulli Denis var ókominn, gat
hún allt eins notfært sér fjarveru
hans og reynt að komast að ein-
hverju I sambandi við hann. Hún
þáði heitan súpudisk, en kærði sig
ekki um neitt'annað.
,,Á ég ekki að vera byrjuð að
syngja, þegar m. Denis kemur?”
,Jú, en það er nóg, að þér
byrjið, þegar við heyrum t vagn-
inum.”
Marianne leit I áttina að píanó-
inu.
,,Á ég sjálf að leika undir?”
,,Nei...nei, auðvitað ekki.
Hvað er ég eiginlega að hugsa?
Blðið andartak.”
Hann virtist allur á nálum, en
Marianne hélt áfram að borða súp-
una sína og brosti með sjálfri
sér. Þegar allt kom til alls, þá var
þetta ævintýri bara nokkuð
skemmtilegt, og hún varð æ for-
vitnari að fá að sjá þennan borgara,
sem olli öllu þessu uppnámi. Duroc
kom aftur eftir skamma stund, og
I fylgd með honum var mjósleginn,
einbeittur, ungur maður. Hann var
slðhærður og dökkur yfirlitum.
Ungi maðurinn tók nótnaheftið,
sem hún hafði komið með, og án
þess að líta á hana sertist hann við
píanóið. Duroc gekk yfir til hennar
og var nú orðinn miklu rólegri.
,Jæja, þá erum við tilbúin.
Þér getið gefið m. Hassani allar
þær fyrirskipanir, sem þér kjósið,
en 1 þér skuluð ekki vænta svars.
Hann er nefnilega mállaus,” bætti
hann við lágri röddu og leit I áttina
að píanóleikaranum.
Nú-já, málleysingi? Marianne fór
að hugsa um, hvort þessi m. Denis
sigldi ekki undir fölsku flaggi.
Kannski voru auðæfi hans illa feng-
in. Ef til vill lifði hann I munaði
hér langt úti I sveit, svo að ár-
vökul augu Fouchés næðu ekki til
hans, eða kannski var hann tigin-
borinn samsærismaður. Fouché
hafði gefið það I skyn, að á æðri
stöðum efuðust menn um holl-
ustu Talleyrands. Sumir voru þeirr-
ar skoðunar, að ef hann væri ekki
þegar búinn að svíkja keisarann,
þá yrði þess ckki langt að bíða.
Þetta einfalda og fráleita nafn m.
Denis var áreiðanlega dulnefni,
huliðshjálmur varhugaverðs manns.
Kannski var hann útsendari zars-k
ins eða englendinga?
,,Hvað ætlið þér að syngja
fyrst?” spurði Duroc.
,,Lag eftir Paer, sem ég hef mikl-
ar mætur á. ”
,,M. Denis verður áreiðanlega
ánægður með það. Hann hefur
einnig mikið dálæti á Paer, en hann
er, eins og þér sjálfsagt vitið,
stjórnandi hirðhljómsveitarinnar.”
,,Hefur m. Denis dvalist lengi
I Frakklandi?” spurði Marianne og
reyndi að virðast blátt áfram og
eðlileg.
Duroc starði á hana. , Já...nokk-
uð lengi. Hvers vegna spyrjið þér?”
Nú heyrðist skrölt I vagni úti fyrir
og Marianne losnaði við að svara,
cnda hefði henni sjálfsagt vafist
tunga um tönn. Duroc spratt á
fætur, en Marianne flýtti sér yfir
að hljóðfærinu og tók sér stöðu þar.
Hún snéri baki að dyrunum. Hass-
ani var þegar byrjaður áð spila
innganginn, en Duroc skundaði
fram I forstofuna. Allt I einu gagn-
tók hræðilegur sviðskclkur Mari-
anne. Hendur hennar urðu Iskald-
ar, og hún spennti greipar. Öhugn-
anlegur fiðringur smaug niður eftir
mjóhryggnum á-henni. Hún leit
biðjandi og örvæntingarfull á hinn
svipbrigðalausa undirleikara. Að
utan bárust raddir, en þvl næst
fótatak, og nú varð hún að láta til
skarar skrlða, ellegar yrði þetta hin
mesta hneisa baéði fyrir hana og eins
Talleyrand.
Hörkulegur svipurinn á andliti
Hassanis varð nú skipandi. Mari-
anne opnaði munninn, og sér til
mikillar undrunar heyrði hún nú
slna eigin rödd. Hún var hlý og
örugg, rétt eins og þessi hræði-
legi ótti hefði aldrei náð tökum á
henni.
..Gæfan þokast hægt um gátt,
gægist, hikar, starir.
Hana æskan hyggur dátt,
höndla fyrr en varir.”
Á meðah Marianne söng, hevrði
hún hratt fótatak utan úr fllsa-
lagðri forstofunni, en svo hljóðn-
aði það fyrir framan dyrnar. Eftir
það heyrðist ekkert. Hins vegar var
hún sér þess meðvitandi, að einhver
stóð þarna og fvlgdist með henni.
En það undarlega var. að henni
leið alls ekki illa. heldur virtist
nærvera þessa manns losa hana
undan einhverjum ómcðvituðum
Skemmtileg nýjung
Myndrænar veggfóöursmyndir sem gera skemmtilega breytingu á heimilinu, júmlega 4 metra breiðar,
full lofthæð.
Einnig fjöldi mynda á innihurðir.
Skemmtileg nýjung.
Grensásvegi 11 — sími 83500. Bankastræti 7 — sími 11496.
22. TBL. VIKAN 33