Vikan - 21.10.1976, Qupperneq 14
Stefán ve/tir fyrir sér skottúrum ti/ Granada eða A/hambraha/larinnar.
LEIKHÚSGESTIR
I vetur j'i'tid piö byrjub Leikbusferbinci hjá okkur. bví um
helgitr. á fihtndögum. laugardögum og utnnudögum munum
vit) opna kl. IS.oo. .séntaklega fyrir Leikhúsgesti. Njótir) þess
at) fá góban mat og gói)a þjónustu i rnlegu umbverfi ábnr en
þib farib í Leikhtisib.
HÓTEL
HOLT
Sirni 21011
Þeir, sem fara að sjá Sólarferð
Guðmundar Steinssonar í Þjóð-
leikhúsinu, fá mörg tækifæri til að
hlæja. Brynja Benediktsdóttir,
sem að margra dómi er einn besti
leikstjóri okkar um þessar mundir,
hefur skapað fjöruga og ásjálega
sýningu, og Sigurjóni Jóhanns-
syni hefur ekki brugðist bogalistin
við gerð leikmyndar og búninga.
Höfundur Sólarferðar lét hafa
eftir sér í blaðaviðtali, að rammi
leiksins væri aukaatriði, leikritið
hefði eins getað gerst á Akureyri
eða hvar sem var. Enda virðist
ólíkt snjallara að • kalla leikritið
Vandamál í farangrinum, en það
nafn notaði gagnrýnandi Dag-
blaðsins um leikdóm sinn. Leikrit-
ið fjallar sumsé um hjón, sem eru
komin til Spánar að njóta lífsins,
en eftir því sem dagar líða, kemur í
Ijós, að þeim hefur láðst að skilja
vandamál hjónalífsins eftir heima.
En það er einmitt rammi leiks-
ins, sólarferðin sjálf, sem kátínu
leikhúsgesta vekur. Margir kann-
ast áreiðanlega mætavel við mörg
atvik, sem upp koma, atvik sem
eru kannski hreint ekkert spaugi-
leg ( raunveruleikanum, en þeim
mun meira í frásögn og hvað þá
heldur, þegar búið er að setja þau
upp á leiðsvið. Og þau Þóra og
Róbert, Guðrún og Bessi, Sigurð-
ur Pálsson og fleiri gera sitt til að
skapa reglulega sólarferðar-
stemmningu.
Auðvitað þarf að punta sig upp á kvöldin. Þóra og Guðrún Stephensen.
14 VIKAN 43. TBL.