Vikan - 21.10.1976, Blaðsíða 43
KÁLBÖGGLAR Á NÝJAN MÁTA
Kálbögglar eru algengur réttur úr
tilbúnu kjötfarsi, sem keypt er í
næstu búð. Hér fer uppskrift, sem
er mjög frábrugðin þessum venju-
legu kálbögglum.
1 kálhöfuð
300 gr hakkað kjöt
100 gr reykt flesk eða skinka
1 dl soðin hrísgrjón
1 dl mjólk
salt og pipar
1 tsk paprika
2 msk fíntklippt steinselja
3 dl soð
Fjarlægið stilkinn úr kálhöfðinu og
sjóðið það í ca. 10 mínútur. Leysið
síðan blöðin frá og látið renna vel
af þeim. Hrærið kjötdeigið saman
með fleskinu og hrísgrjónunum og
þynnið með mjólkinni. Kryddið.
Setjið 2 msk. af blöndunni á hvert
kálblað. Rúllið saman og leggið
bögglana þétt í smurt eldfast form
og látið samskeytin snúa niður.
Hellið dálitlu af kjötsoðinu yfir og
setjið nokkra smjörbita ofan á.
Látið formið standa í 200° heitum
ofni í ca. 1 klst., en gætið þess að
það þorni ekki á því í ofninum. Ef
rétturinn brúnast of mikið að ofan,
setjið þá lok ofan á eða álpappír.
Berið fram með Ijósri sósu eða
soðinu, sem er í forminu.
OSTBAKAÐ BROKKÁL.
(Broccolli).
1/2 kg brokkál (ca. 2 pk. af
frosnu)
Kálið er soðið næstum meyrt í
léttsöltu vatni og látið renna vel af
því. Setjið í smurt eldfast form og
látið síðan þessa sósu ofan á:
1 1/2 msk. smjör eða smjörlíki
2 msk. hveiti
4 dl vökvi (grænmetissoð, mjólk,
rjómi)
salt og pipar.
Blandið 1 dl af rifnum osti saman
við. Setjið síðan ost ofan á áður
en formið er sett í ofn. Bakið við
250°. Látið vera í ofninum þar til
osturinn hefur fengið á sig lit.
Klippið 100 gr af reyktu fleski,
steikið það stökkt á pönnu og
berið fram með.
LITLAR KJÖTBOLLUR MEÐ
RÖSAKÁLI.
Hrærið hakkað kjöt (200 gr) með
salti og pipar, 1 dl af mjólk,2 msk.
brauðmylsnu, 1 msk. sinnepi, og
ca. 1 tsk. kartöflumjöli. 250 gr af
nýju rósakáli er soðið næstum
meyrt (sé notað frosið er það bara
látið þiðna.) Mótið farsið utan um
rósakálið. Brúnið bollurnar á
pönnu og hristið hana til, svo
bollurnar brúnist fallega á alla
vegu. Látið síðan krauma í ca. 10
mínútur undir loki.
DROFN
FARESTVEIT
HUSMÆÐRAKENNARI
Jane Hellen
DEODORANT OG
COLOGNEí SENN
4 FRABÆRAR ILMTEGUNDIR
lEUiHJTf , .
<z.*4meruslza"
TUNGUHALSI 11. SIMI 82700
Jone's'
deodoro colog. deockxo.M cologne
u r c
1 [ V
1
43. TBL. VIKAN 43