Vikan - 21.10.1976, Blaðsíða 42
HRÁTT BLÓMKÁLSSALAT.
1 blómkálshöfuð
1/2 agúrka
1 salathöfuð
1 tómatur.
Sósa:
2 1/2 dl sýrður rjómi (creme
fraishe)
2 msk. sinnep
graslaukur
1/2 msk. sykur
Blómkálið sneitt fínt, agúrkan
skorin í bita. Allt látið í skál með
nokkrum salatblöðum. Sósan
hrærð og hellt yfir. Skreytt með
tómatbátum.
KÁLBÖGGLAR MEÐ FLESKI.
200 gr hakkað kjöt
1 tsk. katöflumjöl
1 egg
1 dl mjólk
salt, pipar, múskat.
Farið eins með kálið og sagt var í
fyrri kálbögglauppskriftinni. Rúllið
deiginu síðan inn í kálblöðin og
raðið í vel smurt form. Einnig má
binda utan um bögglana með
bómullarþræði, sjóða og setja
síðan í ofninn með fleski ofan á þá
og láta þá verða stökka. Búið til
Ijósa sósu úr soðinu og setjið
kjörsoðstening saman við.
Hýjar
loftþéttar umbúftir
KAFFIÐ
frá Brasilíu
KMU
RÓSAKÁL MEÐ OSTI.
Þessi réttur er góður fyrir þá sem
eru sérlega hrifnir af ostaréttum.
Sjóðið rósakál svo til meyrt. Rífið
síðan ost yfir, eins mikið og
smekkurinn segir til um, og setjið
yfir rósakálið, Þetta er látið í
eldfast form. Setjið síðan smjör-
bita hér og þar ofan á réttinn.
Einnig má búa til hvíta sósu,
blanda rifnum osti út í og baka í
ofni.
42 VIKAN 43. TBL.