Vikan - 21.10.1976, Blaðsíða 44
/ trúnaði!
Þegarégeraðskrifa þetta niður
er auðvitað rigning svona eins og
vant er og svo sem ekki um
talandi. Mérdattíhug.hvaðgetur
maður eiginlega gert í kvöld,
annað en horfa á sjónvarp. Þá
mundi ég allt í einu eftir því, að í
dag er fimmtudagur, ekkert
sjónvarp. Svo að ég ákvað að
slappa bara verulega af, fara í
gott, heitt baðog snemma í rúmið
m ;ð góða bók. Nei, annars, ætti
ég ekki heldur að hugsa fyrst um
ástina mína, láta renna í baðiðfyrir
hann, færa honum síðan eitthvað
gott á bakka inn í baðherbergið.
Ég tók til gráðaost, vínber, kex og
kók með miklum klaka í, bankaði á
dyrnar hjá honum, og andlitið,
sem rétt sást í upp úr baðkerinu,
sendi mér Ijómandi bros, er fékk
hjartað til að slá talsvert örara...
segi ekki meira. Þetta gerir hann
líka oft fyrir mig, færir mér
eitthvaðgottábakka. Þaðeru litlu
hlutirnír, sem gera svo mikið, en
x/íð gerum oftast of lítið af, því
miður.
Hittumst í næstnæstu Viku.
BLÁIFUGLINN.
Áttu von á
gestum í mat ?*
Hér er uppskrift af mjög góðri
nautasteik, og með henni eru
bornir grillaðir tómatar og
agúrkur fylltar með kartöflu-
stöppu. Þetta er auðveldara að
útbúa heldur en við gætum
haldið og mjög bragðgott.
(fyrir 6—8)
3 kg. T-beinsteik í heilu stk.
Steikin lögð í lítið, eldfast fat
með fituhliðina upp, pensluð
með matarolíu. Steikin látin í
ofninn við mikinn hita í 15—20
mín., eða þar til hún hefur
brúnast. Þá er hún tekin úr
ofninum, hellt yfir hana 3 msk.
af heitu koníaki og „flamberuð".
Steikin söltuð og sítrónusafa
dreypt á hana, og snúið henni
G/asbrún mótuð
Venjulega eru smálogar sem
skera toppinn af glerblöðrunni
og bræða kantinn dálítið, svo að
hann verði örlítið bogmyndaður.
Líka er hægt að „sprengja"
kantinn þegar hann er orðinn
kaldur — með því að rispa með
demanti. Þá verður kanturinn
skarpari og viðkvæmari eins og á
þynnstu glösunum. En gömul
aðferð er til, þar sem glermeist-
arinn klippir kantinn og mótar
hann á meðan efnið er heitt,
þannig að hann opnar sig eins
og blóm, áður en hann storknar.
síðan við í fatinu. Stráið pipar-
kornum yfir (grænum). Búið til
sósuna úr 2 dl af vatni og 2 dl af
rjóma. Hellið sósunni yfir steik-
ina og látið fatið í ofninn að nýju.
Minnkið hitann á ofninum í 200°
og látið gegnumsteikjast í tæpan
klukkutíma. Nauðsynlegt er að
vefja henni í álpappír. Látið
steikina bíða í 20 mín., áður en
hún er borðuð. Sósan er blönd-
uð koníaki, sítrónusafa, salti og
fleiri piparkornum. Meðan steikin
bíður þessar 20 mín., er tómöt-
um og agúrkum, sem fylltar eru
með kartöflustöppu stungið í
ofninn í 20 mín við mikinn hita.
í ÁBÆTI.
Perur með piparmyntusúkku-
laði og þeyttum rjóma. Perurnar
látnar í skálar, sem þola að fara í
bakarofninn. Ein á mann er alveg
nóg. Ofan á perurnar læturðu
piparmyntusúkkulaði (After
eight er best, en það fæst t.d.
hjá SS í Austurveri), eina sneið
eða tvær. Síðan er skálunum
brugðið í heitan bakarofninn og
súkkulaðið látið bráðna dálítið.
iskaldur, þeyttur rjómi borðaður
með.
Tómatarnir þvegnir, afhýddir og
lagðir í smurt fat. Þeir eru
penslaðir með olíu, kryddaðir
með basilikum og hakkaðri stein-
selju. Agúrkurnar skornar í ca.
10 sm stykki og skornar eftir
endilöngu, síðan soðnar í 5 mín.
Látið vatnið síga vel af þeim og
saltið þær. Búið til kartöflu-
stöppu (úr pakka), bragðbætið
með rjóma og eggi og smyrjið
þykku lagi á agúrkurnar. Skreyt-
ið með piparsósu eða sinnepi.
,,Avocado"
Hinn sérstaki avocadoávöxtur er
oft á markaðnum, a.m.k. í stærri
matvörubúðum. Þegar þú hefur
borðað ávöxtinn skaltu prófa að
láta steininn í mold, og árangur-
inn verður falleg stofuplanta
með stórum ávölum blöðum. En
sýndu þolinmæði, þetta tekur
tíma.
44 VIKAN 43. TBL.