Vikan - 21.10.1976, Page 19
lipurt og auðvelt í meðförum. Bíla-
borg hefur umboðið, og kostar
þetta hjól 178 þúsund.
Ég vil svo hvetja alla þá, er aka
skellinöðrum og mótorhjólum, til
að nota hjálma, því þeir veita
gífurlegt öryggi.
Ég varð fyrir skömmu vitni að
slysi, þar sem ungur drengur
varð fyrir bíl á skellinöðru. Dreng-
urinn brotnaði illa á fæti, en hafði
hjálm, sem eflaust hefur bjargað
lífi hans. Hjálmurinn brotnaði við
ákeyrsluna en hlífði höfði drengs-
ins, svo hann hlaut enga höfuð-
áverka.
Það er ekkert töffað vera hjálm-
laus og allra síst að fá varanleg
höfuðmeiðsl.
HJÁLMAR GETA BJARGAÐ LÍFI
Glussadælan og bremsudiskurinn á framhjólinu eru til mikilla bóta.
Hadda
fer í búðlr
I versiuninni Búsáhöld og gjafa-
vömr, í Glæsibæ og Miðbæ við
Háaleitisbraut, fæst þessi ung-
barnakoppur. Hahn er úr plasti
og er appelsínugulur að lit. Kr.
1.117.
Aðeins kr. 190.- kosta þessi
marglitu skóhorn úr plasti. I
Skóbæ Laugavegi 49.
Þessi skáröndóttu nærföt úr
100% bómull eru hollensk og
eru til í bláu, brúnu og rauðu,
og kosta kr. 2.080 hjá Ander-
sen og Lauth, Laugavegi 39-
Vesturþýskir skrifborðslampar í
fjórum litum með hreyfanleg-
um ljósarmi fást hjá Lampanum
á Laugavegi 87 og kosta kr.
6.600.
Enn er hægt að fá peysur fyrir
minna en 1.000 kr. Þessar eru í
þrem stærðum, S-M-L, og fást í
7 litum. I Faco, Laugavegi 89,
Laugav. 37 og Hafnarstr. 17.
Ukcujc:
Handofin rúmábreiða frá Mar-
okko á kr. 8.300 í Pólsku
búðinni í Verslanahöllinni og í
Glæsibæ.
43.TBL. VIKAN 19