Vikan - 18.11.1976, Síða 3
Brúðarvöndur
mánaðarins
er gerður af Stefáni Hermanns í
STEFÁNSBLÓM v/Barónsstíg,
sími 10771. Eftirfarandi blóma-
tegundir eru notaðar í vöndinn:
Hvítar- og lilla orchedeur, hvítar-
og lilla fresjur amazonliljur, hvítar
rósir og burkna blöð.
Sky/du þeir
meina þetta?
Haft eftir Grace
furstaynju í
Monaco
að til að öðlast gott heimilislíf
þurfi: ást, þolinmæði, sjáfstjórn
og virðingu fyrir eiginmann-
inum...
Hver hefur ekki not fyrir
nokkur góð ráð til að spara? Hið
ameríska blað „Cosmopolitan"
gefur lesendum sínum nokkur
ráð, sem eru nokkuð óvenjuleg,
svo ekki sé meira sagt. Meðal
annarra þessi:
★ sofðu nakin,
★ farðu í útilegu — það er
ódýrt, hollt og rómantískt, ef
maður tekur réttan félaga
með, og fáðu allt lánað í úti-
leguna,
★ vertu geysilega glöð, ef ein-
hver gefur þér gjöf, gefand-
inn gefur þér þá ef til vill
aðra,
★ gerðu brjóstaæfingar, svo þú
getir gengið brjóstahaldara-
laus,
★ slökktu Ijósið,
★ taktu afganginn með þér
heim frá veitingahúsunum,
flugvélunum og líka ábætinn
úr veislunni,
★ leigðu íbúðina þína í hádeg-
inu til afnota fyrir ejskendur,
★ engan hita á íbúðinni á næt-
urna, sofið bara þétt saman.
Ást í b/óma
Venjur í sambandi við ást og
tilhugalíf hafa nú talsvert breyst
síðan stífflibbaðir ungir menn
dreyptu á límonaðinu sínu á
tímum Viktoríu drottningar. Ein
venjan hefur þó haldist óbreytt
að mestu — blómagjöfin. Hvort
sem um er að ræða blóm til að
vinna hjarta sinnar elskuðu eða
sættast við hana eoa eittnvao
enn eitt, þá hefur það oftast
komiö í hlut karlmannsins að
gefa henni blóm. En af hverju
alltaf henni? Næst þegar þig
langar til að vinna hjarta manns-
ins, sættast við hann eða eitt-
hvað annað — því „segir þú það
ekki með blómum" til tilbreyt-
ingar? Ef maðurinn í lífi þínu
kann ekki að meta það, þá er
hann bara kjáni!
Morgunverður
Morgunverðurinn er eins og
flestir vita ein mikilvægasta mál-
tíð dagsins, því hann er undir-
staðan undir dagsins önn. Við
þurfum að velja alhliða fæðu til
morgunverðar, svo sem mjólk
og mjólkurvörur (kalk og eggja-
hvítur og fleiri næringarrík efni.)
Brauð, hafragraut eða/og slátur
(járn og B-vítamín), egg daglega
(A og D vítamín). Flestir fá leið á
því að fá alltaf sama matinn og
þarf því að hafa dálitla tilbreyt-
ingu við að útbúa morgun-
verðinn.
Ég hef lengi ætlað mér að birta
af og til uppástungur um rétt
samsettan morgunverð, og hér
kemur sú fyrsta.
Hafragrautur moö mjólk og slátri
1 msk. lýsi
1 sneið heilhveitibrauð m/smjöri
og mysuostur
1 sneið hrökkbrauð m/smjöri,
osti og papriku
1/2 appelsína.
47. TBL. VIKAN 3