Vikan - 18.11.1976, Síða 14
4
nýju konu. Tíminn og fjarlægðin,
það er lausnin...”
Falleg arabisk frammistöðu-
stúlka kemur að borðinu með kaffi.
Ali hallar sér að henni og eys yfir
hana lofsyrðum. Hún kann auðsjá-
anlega vel að meta hrósið. Þetta
endar með því að Ali segir: „Þú
ert svo falleg, að ég hugsa að ég
komi hingað aftur einhvern daginn
og biðji þín.” Þá svaraði frammi-
stöðustúlkan: ,,En þú ert þegar
giftur, er það ekki?”
,,Jú, ljúfan, en þú gleymir því að
ég er muslimtrúar, og við getum átt
þrjár eða fjórar konu,” svaraði Ali
glottandi.
Ég minni Ali á að Islamkirkjan
hafi þegar neitað Ali um að kvæn-
ast Veronica Porsche af þvi hún yrði
þá þriðja konan hans. Ali er auð-
sjáanlega lítið skemmt.
Meistarinn mikli ræður illa við
konur, en enginn ber brigður á
hæfileika hans til að prédika. Þegar
hann leggur frá sér hanskana fyrir
fullt og allt, má allt eins búast við,
að Islamkirkjan leggi blessun sina
yfir þriðja hjónabandið, því að Ali
getur vissulega haft mikil áhrif á
verðandi fylgismenn kirkjunnar.
Ali er þeirra öflugasti og dáðasti
fylgismaður, og hann veit það svo
sannarlega. Þetta eykur sjálfs-
traust hans gífurlega, svo búist
ekki við neinni auðmýkt, þegar
meistarinn mikli gerist prestur!
„Sverting ar líta á mig sem hetju
og frelsara. Mér hefur þegar verið
boðið að halda fyrirlestra við 168
háskóla i Bandaríkjunum, og þús-
undir munu koma til að hlusta á
mig ræða markmið lífsins, list
persónuleikans og kraft hugans.
Ég er besta dæmið sem hinn svarti
maður getur vitnað til.”
Hann segir þetta meir af krafti
en sannfæringu og gleði. Skyndi-
lega geri ég mér grein fyrir að Ali
er ekki sá hamingjusami maður
sem hann vill sýnast.
„Fólk ruglar saman ánægju og
hamingju. Ánægja er aðeins tál-
mynd hamingjunnar. Hver getur
sagt, að hann sé fullkomlega ham-
ingjusamur? Hið næsta sem þú
kemst fullkominni hamingju er að
finna djúptækt markmið í lífinu.
Og ég hef fundið markmið — ekki
það að berja menn niður í hringnum
heldur gera eitthvað sem skiptir
máli fyrir samferðafólk mitt — Ég
er að finna hamingjuna... ”
Hann horfir ögrandi á mig, eins
og hann sé að mana mig að
mótmæla. Ég geri það ekki, en er
samt ekki sannfærður. Ég hugsa til
þess að hann skorti aga til að lifa
einkalifi sinu í hinum sanna anda
muslimstrúarinnar, og ég efast um,
að hann geti nokkum tíma beitt sig
svo miklum sjálfsaga að hann helgi
sig einvörðungu trúarlífi. Sýndar-
mennska og glysgimi em augsýni-
lega sterkir eðlisþættir hans.
Áður en hann snýr sér að störf-
um fyrir muslimhreyfinguna fyrir
fullt og allt á hann eftir að gera
kvikmynd um ævi sína.
„ÉG VERÐ MESTI KVIK-
MYNDALEIKARI SEM UPPI
HEFUR VERIД, segir hann með
stjörnublik i augum og miklum
handahreyfingum. „Það mun eng-
inn komast í hálfkvisti við mig.
Ég er svo vinsæll, að ég skora á
hvaða kvikmyndastjörnu sem er að
etja kappi við mig. Ég skora á John
Wayne, Paul Newman, Steve
McQueen, Clint Eastwood, Charles
Bronson eða hvern þeirra sem er að
ganga með mér — hvar sem er i
heiminum — og þá munu menn sjá
hver dregur að sér mestan fjölda!”
Hann hlær stríðnislega.
Það á að byrja á myndinni
„The Greatest” í byrjun næsta árs.
Framleiðandi verður John Marshall
og stjórnandi Tom Gries (sem
nýlega stjórnaði myndinni „Break-
heart Pass” með Charles Bronson
i aðalhlutverki'. Ali skrifaði undir
samninginn fyrir þremur árum, en
viðurkennir að hafa aðeins stundað
leiknám í 6 mánuði.
„Ég þarfnast ekki tíma i leiklist,
ekki endilega,” er hann fljótur að
fullyrða. Hann brosir, og það er
auðséð að honum finnst meira
gaman að tala um sig sem verðandi
leikara en prédikara. „Láttu þér
ekki detta i hug að ég þurfi að selja
mig Hollywood. Ég get gert þetta
á eigin vegum, án þess að þurfa
að taka þátt í vitleysu eins og að
leika í brennivinsauglýsingamynd-
um í sjónvarpinu, eða búa í ein-
hverju stjörnu flotthýsi með
skringilegri sundlaug, eða aka um í
Rolls Royce með ljóskur mér til
hvorrar handar. Ég þarf að vera
svörtum bræðrum mínum lýsandi
dæmi, þessum svörtu bræðrum sem
eru að kafna i gettóunum.”
„Hvemig heldurðu, að ég geti
þóst vera kvikmyndastjama og
fíflast með hvítum stúlkum í kvik-
myndum eða á næturklúbbum —
eins og allar svartar kvikmynda-
stjömur og íþróttamenn gera —
þegar ætlast er til, að ég sé fyrir-
mynd míns fólks?”
Já, einmittþað! Hinn mesti hefur
þegar leikið í þremur sjónvarpsaug-
lýsingum, en það skal játað, að
hann hefur ekki auglýst brennivín,
heldur mjólk. Hann bjó um tíma í
dæmigerðu Hollywood flotthýsi
(með sundlaug) og hefur sést undir
stýri í Rolls Royce bifreið, en hann
á reyndar tvo bíla af þeirri gerð!
En hvað sem þessu líður, heilagur
eða breyskur, trúarleiðtogi eða
kvikmyndaleikari, þá munu menn
minnast Alis um langan aldur.
★
Bjarni Jónsson hefur teiknað fyrir okkur myndir
af litla jólasveinastráknum, sem hlakkar svo mikið
til jólanna, að hann getur naumast beðið þeirra.
Jólasveinastrákar eru nefnilega rétt eins og aðrir
krakkar, þegar allt kemur til alls.
Getraunin er í fjórum blöðum, og í hverju blaði
birtast tvær myndir, sem í fljótu bragði virðast
nákvæmlega eins, en ef grannt er skoðað, kemur
í Ijós, að inn á aðra myndina vantar fimm atriði.
Getraunin er í því fólgin að finna þessi fimm atriði
og skrifa heiti þeirra á getraunaseðilinn, sem er hér
á opnunni. Síðasti hluti getraunarinnar birtist í
jólablaðinu, sem kemur út 9. des., og skilafrestur er
til 16. des.
Með tilliti til þess, að á mjög mörgum heimilum
eru fleiri en eitt barn, sem taka vilja þátt í getraun-
innj, auk þess sem mörgum er illa við að þurfa að
klippa út úr blaðinu, þá höfum við ákveðið að taka
heimatilbúna seðla einnig gilda og setjum ekki
önnur skilyrði en að skilmerkilega sé frá þeim
gengið. Og munið að senda ekki einn og einn í
einu, heldur bíða, þangað til öll blöðin fjögur eru
komin.
••
;••
:••
m
ATHUGIÐ:
Getraunin er í fjórum blöðum. Þegar öll
blöðin fjögur eru komin — ekki fyrr —
stingið þið lausnunum í umslag og skrifið
utan á: VIKAN, PÓSTHÓLF 533, REYKJA-
VÍK og merkið umslagið ,,JÓLAGET-
RAUN”. Skilafrestur er til 16. desember.
Vinningar verða afhentir fyrir jól og sendir í
nncti hoim com hna utan
14 VIKAN 47. TBL.