Vikan

Issue

Vikan - 18.11.1976, Page 16

Vikan - 18.11.1976, Page 16
flð heyra vel oóq hc Rætt við Erling Þorsteinsson og ,,hina strákana” hjá heyrngirmælingadeild Heilsuvemdar- stöðvar Reykjavíkurborgar um — að heyra vel eða heyra ver, og annað því líkt. Að vera eða vera ekki, sagði Shakespeare gamli, en það var bara misskilningui hjá honum, sem byggðist á því, að hann þekkti ekki Erling Þorsteinsson. Erlingur hefði nefnilega breytt þessu skjótlega hjá honum í: Að heyra eða heyra ekki, — og þarmeð hefði sauðsvartur al- múginn, eins og þú og ég, skilið hvað hann átti við. Því að við skiljum það ósköp vel að regin- mismunur er á því að heyra eða heyra ekki, jafnvel þó Erlingur hafi nú kannski annar. skilning á þvú því hann hefur barist við það allt sitt líf. að sá mismunur verði sem minnstur, þannig að jafnvel orð- takið: að heyra eða heyra ekki — verði jafnóskiljanlegt og orðtakið hjá Shakespeare gamla forðum. Erlingur hefur alltaf unnið að því með öllum ráðum og dáð, að allir heyri og enginn heyri ekki og hefði því jafnvel breytt orðtakinu núna í: Að heyra vel eða heyra ver, það er lóðið. Að svo mæltu breyti ég þessari stórkostlegu filósóferingu í jafn stórkostlega reynslu og skýri frá því. hvað mér tókst að heyra vel, þegar Erlingur sagði mér frá bar- áttu sinni við heyrnardeyfu islend- inga allt til þessa dags. IÞað breyt- ir engu. þótt hann hafi talað inn á segulband, og ég hafi heyrnari.æki við segulbandið). En hann mælti svo í meginatriðum: — f'.g hóf störf i Heilsuverndar- stöðinni við þetta fyrir um 10 árum og starfaði hér einn, ásamt Mariu Kjeld. en þá hafði Sonta klúbbur- inn gefið tæki til þess að við gætum hafið störf hér. Um það leyti fór ég þá utan til að kynna mér svipaðar stöðvar, en setti þessa stöð síðan upp. Þá var málum þannig háttað, að við höfðum litið pláss og urðum því að takmarka okkur við eitthvað. í mörg ár hafði ég þá hugsað um slika stöð hér og gerði mér ljóst að byrja varð á byrjuninni, eða rótinni sem auðvitað var sú að finna börnin nógu snemma til þess að hægara væri um vik að gera eitthvað fyrir þau. Litið hafði verið gert fram að þeim tima, nema að í allmörg ár hafði verið til svokölluð Heyrnar- hjálp, sem hafði verið stofnsett af ýmsum mönnum. Þar var um algera einkastofnun að ræða, og í reynd- inni var það eingöngu heyrnar- tækjasala. Þessi félagssamtök voru svo endurlífguð fyrir nokkrum árum og var þá hugsað til þess að gera eitthvað meira — og hefur verið gert — og þá í þá átt, sem ég álit, að slik samtök ættu að beita sér fyrir, en það er að vera samtök heyrnarskertra, svipað og til dæmis samtök berklasjúklinga voru á sín- um tíma. Eftir að við hófum störf hér kom það til álita hjá félaginu að hætta störfum og að við tækjum við Erlingur skoðar ungt eyra. þessari ákveðnu stétt utan borgar- svæðisins, að einungis á Akureyri er til staðar viðurkenndur sérfræð- ingur. Og ég veit aðeins um einn einasta, sem er að læra þetta fag núna. Þessvegna er það, að við getum ekki sagt fólkinu úti á landsbyggðinni að fara til næsta bæjar og fá þar úrskurð og því er málið ákaflega erfitt. — Hér er þessum málum þannig háttað, að reynd stúlka er send í skólana, og ef heyrn einhvers barns orkar tvimælis, þó eru þau börn send hingað rakleiðis, þau mæld og viðeigandi ráðstafanir gerðar. Síðan koma þau hingað aftur, svo við getum fylgst með því, hvort þær ráðstafanir, sem við höfum mælt með, hafa borið árangur. Nú, ef ekki er um annað að ræða, þá fá þessi börn heyrnartæki við sitt hæfi. Svo hafa sum þeirra þurft að fá sérhjálp, og sér heyrnleysingja- skólinn um það eftir bestu getu. Sum börn hafa erfiðleika með mál, ekki bara vegna þess að þau heyra illa, og þá hefur þurft að senda þau í talkennslu. — Síðan við byrjuðum hefur margt breyst, við höfum fengið betra húsnæði og betri hjálp. Til dæmis var Gylfi Baldursson heyrn- arfræðingur hjá okkur um tima, og við höfum fengið meira starfslið. Fyrir þrem árum þótti of litil læknisþjónusta hér, og þá var mér gert, heimilt að starfa hér hálfan dag á hverjum degi, jafnframt að ég var gerður að yfirlækni hér. — Það er engum vafa bundið, að þetta er samt aðeins byrjunin, ég verð t.d. ekki hér eilífur augnakarl, þvi ég geri ráð fyrir, að ég hætti af því. En við höfum lagst gegn því og viljum að það haldi áfram að berjast fyrir málefnum heyrnar- skertra, haldi kannski skemmtanir, fræðslufundi og annað slikt. — Við álítum samt, að heyrnar- tækjasaian eigi að vera aðeins á einum stað, hér hjá okkur á reykjavikursvæðinu, sem reynist vera alveg nóg. Það háir okkur mest í sambandi við slika hjálp viðsvegar um landið, að við erum borgarstofnun, og við vinnum að þvi að verða jafnframt ríkis- stofnun, því að þannig ættum við hægara með ná til allra lands- manna. Hér erum við í raun og veru bundin við það að þjóna einungis ibúum borgarinnar, þótt við höfum samt fengið til þess leyfi að útvíkka dálítið okkar hring og veita okkar þjónustu hverjum sem er. Nú höfum við komið því þannig fyrir, að læknir fer með útsendurum Heyrnarhjálpar, þannig að síður er hætta ó því en áður að sett séu heyrnartæki á mann, sem t.d. er með mergtappa, sem auðvelt væri að skola burt. Nú eru að koma heilsugæslustöðvar um allt land, og landlæknir hefur snúið sér til mín um upplýsingar um þau tæki, sem þyrftu að vera til staðar ó hverri heilsugæslustöð, en það gerir þeim læknum, sem fara um landið, auðveldara að mæla raunverulega heyrn ibúa hvers staðar. — Þetta, ásamt fleiru, sýnir nauðsyn þess, að við værum rikis- fyrirtæki, ásamt því að vera borgar- fyrirtæki, og i raun og veru getum við ekki einbeint okkur að öðrum landshlutum og ákveðið, hvernig þarf að taka á þessum hlutum þar, t.d. gagnvart skólabörnum, líkt og við hófum hér árið 1962, þvi upphafið er auðvitað gagnvart þeim. Æskilegt væri til dæmis, að sendar væru mælingar af þeim utan af landsbyggðinni, þannig að við gætum gefið svar við þeim á grundvelli viðurkenndra mælinga, og sagt til um hvað bæri að gera. Að vísu erum við nú svo fáliðaðir i Pétur Kristjánsson 16 VIKAN 47. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.